Beint á leiðarkerfi vefsins
Viðskiptaþing 2012

5.2.2012

Atvinnulíf undirstaða lífskjara að mati 94% landsmanna

94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Viðskiptaráð Íslands. Segja má að þessi almennu viðhorf endurspegli þá uppbyggilegu sýn að 170 þúsund íslensk heimili og 30 þúsund íslensk fyrirtæki myndi órofa heild.

31.1.2012

Aðalfundur 2012 - kjörgögn farin út

Í dag voru send út kjörgögn vegna kosninga til formanns og stjórnar Viðskiptaráðs Íslands. Eins og áður hefur komið fram er kosningin rafræn. Því er eiginlegur kjörseðill ekki sendur út heldur bréf frá framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs þar sem farið er yfir framkvæmd kosninganna.

30.1.2012

Viðskiptaþing 2012 - 15. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 13:30 og stendur þingið til kl. 16.20, en þá hefst móttaka.

24.1.2012

Af talnakúnstum og háum sköttum

Áramótaumfjöllun um skattahækkanir fer nú fram fjórða árið í röð. Að vanda kveinka forsvarsmenn skattastefnu stjórnvalda sér undan henni. Í grein í Fréttablaðinu laugardaginn 14. janúar fjallar fyrrverandi fjármálaráðherra um yfirlit Viðskiptaráðs um skattkerfisbreytingar síðustu ára þar sem bent er á að skattar hafi hækkað verulega og að skattkerfi, sem var að grunngerð gott, hafi verið umbylt og orði svo flókið að sé til óþurftar.

23.1.2012

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki VÍ rennur út 27. janúar

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands fyrir árið 2012 rennur út kl. 16 föstudaginn 27. janúar. Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis, en líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir. Afhending þeirra fer fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi.

Póstlisti VÍ
Aðild að ví

Af talnakúnstum og háum sköttum

Áramótaumfjöllun um skattahækkanir fer nú fram fjórða árið í röð. Að vanda kveinka forsvarsmenn skatta-stefnu stjórnvalda sér undan henni. Í grein í Fréttablaðinu laugardaginn 14. janúar fjallar fyrrv. fjármálaráðherra um yfirlit Viðskiptaráðs um skattkerfisbreytingar síðustu ára þar sem bent er á að skattar hafi hækkað verulega og að skattkerfi, sem var að grunngerð gott, hafi verið umbylt og orði svo flókið að sé til óþurftar.


Slóðin þín:

Forsíða

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta