Úttekt á góðum stjórnarháttum: Greiðsluveitan ehf.

Greiðsluveitan ehf. hefur lokið formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrri hluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Greiðsluveitan er sjálfstætt starfandi einkahlutafélag í eigu Seðlabanka Íslands. Hjá því starfar hópur sérfræðinga sem sinnir hinum ýmsu verkefnum tengdum starfsemi félagsins. Félagið hefur nýverið tekið yfir forræði og ábyrgð á rekstri ýmissa mikilvægra grunnkerfa greiðslumiðlunar.
Tilgangur félagsins er að starfrækja greiðslukerfi og önnur þjónustukerfi tengd fgreiðslumiðlun í samræmi við gildandi lög og reglur, þ.á.m að viðhalda og tryggja öryggi og virkni þeirra, svo og skyld starfsemi.

Greiðsluveitan ehf. lauk úttektarferlinu í febrúar 2014, en það var Advance sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Greiðsluveitan úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Greiðsluveitunni er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Greiðsluveitunnar til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Greiðsluveituna ehf. er aðgengileg hér.

Tengt efni

Úttekt á stjórnarháttum: Stefnir hf. til fyrirmyndar

Stefnir hf. er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á ...
8. mar 2012

Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum: Mannvit og Stefnir

Mannvit og Stefnir luku nýverið við að endurnýja úttekt á stjórnarháttum sínum ...
2. júl 2013

Úttekt á stjórnarháttum: Íslandsbanki hf.

Íslandsbanki hf. hefur lokið formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja ...
13. mar 2014