Almenn hagsmunagæsla
Sem heildarsamtök viðskiptalífsins starfar Viðskiptaráð óskipt að hagsmunum allra sem stunda viðskipti. Það er eitt öflugusta tæki viðskiptalífsins í baráttu fyrir úrbótum á almennu rekstrarumhverfi fyrirtækja og bættum starfsskilyrðum með jafnræði, frjálsa samkeppni, heilbrigða viðskiptahætti og lágmörkun ríkisrekstrar að leiðarljósi.
Öflugur vettvangur fyrir félaga
Aðild að Viðskiptaráði gefur fyrirtækjum kost á að hafa áhrif á stefnumótun ráðsins og koma hagsmunamálum sínum á framfæri á öflugum vettvangi. Þau mál er koma á borð Viðskiptaráðs geta jafnt varðað viðskiptalífið í heild sem og þrengri hagsmuni aðildarfyrirtækja.







