Beint á leiðarkerfi vefsins

Landsnefnd ICC

Alþjóða viðskiptaráðið (International Chamber of Commerce - ICC) hefur starfað síðan 1919 og eru höfuðstöðvar þess í París. Aðild að því eiga rúmlega 8000 fyrirtæki, samtök og stofnanir. Landsnefndir (National Comittees) eru starfandi í meira en 140 löndum, þar á meðal á Íslandi. Þekkt hugtök og fyrirbæri í viðskiptum má rekja til starfs ICC, svo sem flutningsskilmálana INCOTERMS (FOB/CIF) og samræmdar reglur um bankaábyrgðir (UCP500).

Hlutverk ráðsins
Eitt meginhlutverk ICC er að koma fram fyrir hönd viðskiptalífsins á alþjóðlegum vettvangi gagnvart stofnunum eins og ESB, WTO, OECD o.fl. Einnig er ICC umsagnaraðili fyrir Sameinuðu þjóðirnar í málum sem varða alþjóðaviðskipti. Helsta baráttumál Alþjóða viðskiptaráðsins eru hindrunalaus milliríkjaviðskipti á öllum sviðum.

Einnig er starfandi á vegum ráðsins Alþjóða gerðardómurinn, en hann hefur frá árinu 1923 verið ein af meginstoðum í starfsemi ráðsins og nýtur virðingar sem úrlausnaraðili í álitamálum sem upp koma í alþjóðaviðskiptum. Nánari upplýsingar um Landsnefnd Alþjóða viðskiptaráðsins veitir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, forstöðumaður alþjóðasviðs.

Bóksala ICC
ICC Publishing S.A. gefur út hagnýt uppflettirit um alþjóðleg viðskipti. Efnistök eru margvísleg; bankaviðskipti, málefni alþjóðlega gerðardómstólsins, alþjóðlegir viðskiptasamningar, flutningsskilmálar ofl.

Skoða má úrval bóka í ICC Business Bookstore en fyrirspurnir varðandi bækur má einnig senda á með tölvupósti á Viðskiptaráð Íslands.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Þjónusta » Landsnefnd ICC

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta