Afhverju gerðardómur?
Talið er að u.þ.b. 80% allra alþjóðlegra viðskiptasamninga sem gerðir eru á heimsvísu innihaldi ákvæði sem kveður á um að úr öllum ágreiningi sem upp kann að koma skuli leyst fyrir gerðardómi. Þá má geta þess að u.þ.b. 80% viðskiptatengdra deilumála Í Svíþjóð eru útkljáð fyrir gerðardómi, en þar í landi er mikil og rík hefð fyrir gerðardómsmeðferð.
Úrlausn ágreiningsefna fyrir gerðardómum er um margt ólík því ferli sem fram fer fyrir almennum dómstólum. Kostir gerðarmeðferðar umfram almenna dómstóla eru nokkrir, t.a.m. hvað varðar sjálfræði samningsaðila og hraða málsmeðferðar, en ferlið hefur þó jafnframt tiltekna galla. Hér að neðan er farið yfir helstu kosti og galla gerðarmeðferðar.
|
Kostir
- Sveigjanleg málsmeðferð.
- Sjálfræði samningsaðilanna.
- Auðvelt að fullnusta úrlausnir.
gerðardóma um nær allan heim, á grundvelli New York samningsins.
- Deila aðilanna verður síður opinber, þó er aldrei hægt að tryggja fullkominn trúnað.
- Hraðari málsmeðferð, en niðurstaða fyrir gerðardómi næst að öllu jöfnu innan sex mánaða frá því að gerðardómurinn er fullskipaður.
- Endanleg niðurstaða, “one stop shop” þ.e. úrlausnir gerðardóma hafa res judicata áhrif.
- Val á gerðarmönnum,þurfa ekki að vera löglærðir og geta því verið sérfræðingar sem hafa þekkingu á sakarefninu.
|
Gallar
- Málsmeðferðin getur verið dýrari, það þó ekki alltaf sbr. skráningargjald hjá VÍ er 250.000. Málsaðilar greiða þóknun gerðarmanna.
- Ekki hægt að sameina mál, aðilar bundir af gerðarsamning – ekki hægt að leita úrlausnar almennra dómstóla nema með samþykki gagnaðila.
- Inngrip landsdómstóla.
- Ekki hægt að áfrýja.
- Ekkert þvingunarvald, t.a.m. bráðabirgðagerðir, kvaðning vitna ekki möguleg né aðstoð við sönnunarfærslu.
|
Ofangreint yfirlit er fengið úr kynningu frá Fróðleiksfundi KPMG.
Áhugaverð tölfræði frá gerðardómsstofnun viðskiptaráðsins í Stokkhólmi.