Beint á leiðarkerfi vefsins

Málsvari fyrirtækja

Aðild að Viðskiptaráði Íslands er frjáls, ólíkt því sem tíðkast hjá viðskiptaráðum víða erlendis. Þetta gefur ráðinu mikilvæga sérstöðu þar sem starfsemi þess er ekki háð hagsmunum neinna annarra en aðildarfélaga. Þar sem ráðið er með öllu óháð framlögum eða annarri fyrirgreiðslu af hálfu stjórnvalda er það í mun sterkari stöðu til að veita það mikilvæga aðhald sem þörf er á.

Samskipti við opinbera aðila
Viðskiptaráð beitir sér fyrir jákvæðum breytingum á lögum, reglum og stjórnarframkvæmd er varða íslenskt viðskiptalíf. Ráðið fær öll frumvörp er snerta hagsmuni viðskiptalífsins til umsagnar og hefur samband við aðildarfélög þegar frumvörpin snerta hagsmuni þeirra beint. Ráðið gerir athugasemdir í samvinnu við félagsmenn sína og kemur þeim á framfæri til Alþingis. Með þeim hætti er ráðið málsvari aðildarfélaga sinna á Alþingi. Auk þess eru félagar Viðskiptaráðs tilnefndir í nefndir vegna einstakra frumvarpa og brýnna málefna.

Viðskiptaráð annast samskipti við hið opinbera, sendiráð og stjórnvöld fyrir hönd aðildarfélaga sinna. Auk þess veitir ráðið aðildarfélögum sínum aðstoð í ágreiningsmálum við ríkisstofnanir og stjórnvöld. Málum félagsmanna er fylgt eftir með virku aðhaldi gagnvart opinberum aðilum, bréfa- og greinaskrifum, skipan vinnuhópa, útgáfu skýrslna og í óformlegum samskiptum.

Aðstoð og stuðningur við fyrirtæki
Fyrirtæki eiga oft erfitt með að feta sig í þungu regluverki hins opinbera. Á fjölmörgum sviðum eru höft lögð á starfsemi með óþarfa skrifræði og óskilvirkri reglusetningu. Viðskiptaráð beitir sér fyrir breytingum til batnaðar í þeim efnum auk þess að veita félögum sínum aðstoð og stuðning í einstökum málum.

Viðskiptaráð leggur mikla áherslu á minni ríkisumsvif og berst gegn útþenslu hins opinbera. Umfang reksturs ríkisins getur haft mikil áhrif á starfsumhverfi og starfsmöguleika einkafyrirtækja í landinu. Sérstaklega er mikilvægt að standa vörð um hagsmuni þeirra fyrirtækja sem standa í samkeppni við ríkið. Viðskiptaráð hefur verið leiðandi í umræðu um einkaframkvæmd og m.a. bent á kosti aukins einkareksturs í heilbrigðis-, mennta- og orkumálum.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Þjónusta » Málsvari fyrirtækja

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta