Status Report
Skýrsluna má nálgast hér (pdf)
Glærur úr skýrslunni má nálgast hér (pptx)
Frá falli bankanna í október 2008 hefur íslenskt efnahagslíf gengið í gegnum margskonar breytingar. Vegna skorts á upplýsingagjöf til erlendra aðila hafa þeir sjaldnast heildaryfirsýn yfir þessar breytingar og stöðu mála. Því hefur Viðskiptaráð staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008, en nýjasta útgáfa af skýrslunni: The Icelandic Economic Situation - Status report er gefin út í ágúst 2011. Af henni má ráða að þrátt fyrir fjölmörg vandamál þá er hagkerfið enn stöndugt á flesta mælikvarða.
Viðskiptaráð hefur með reglubundnum hætti gefið út þessa skýrslu og þá með sérstaka áherslu á þá viðburði sem fara hæst hverju sinni. Nýjasta
útgáfan er sú fjórtánda í röðinni og hafa síðustu útgáfur tekið töluverðum efnislega breytingum frá þeim fyrri. Í fjórtándu útgáfunni bætist við umfjöllun um samsetningu íslensks atvinnulífs auk þess sem bætt hefur verið við gröfum og myndum. Þá eru einnig birtar upplýsingar úr nýlegri skýrslu ráðsins Tökumst á við tækifæri – atvinnulíf til athafna.
Nýjar glærur
Þá hefur Viðskiptaráð reglulega gefið út samhliða skýrslunni glærur þar sem stiklað er á stóru. Nýjusta útgáfa þeirra má nálgast hér.
Þessi skýrsla er fyrst og fremst hugsum sem safn upplýsinga, tilvísana og hlekkja í vefsíður og gögn annarra aðila frekar en greining á þróun og stöðu efnahagsmála. Í skýrslunni er að finna efni frá margvíslegum aðilum t.a.m. um:
- Fall og endurskipulagningu bankakerfisins
- Utanríkissamskipti
- Breytingar á hinu pólitíska landslagi
- Stöðu hagkerfisins, t.d. skuldastöðu þjóðarbúsins, verðbólgu, atvinnuleysi, krónuna og skattabreytingar
- Icesave samkomulagið, þjóðaratkvæðagreiðslurnar, ESA ferlið og rök gegn ríkisábyrgð
- IMF áætlunina
- Úrvinnslu á skuldavanda fyrirtækja og heimila
- Aðildarferlið að Evrópusambandinu
Til að fá allar frekari uppfærslur af skýrslunni er hægt að skrá sig hér.







