Samkeppnishæfni IMD
IMD viðskiptaháskólinn í Sviss (e. International Institute for Management Development) hefur starfrækt rannsóknarstofnun um samkeppnishæfni þjóða heims frá árinu 1989. Rannsóknarstofnunin á í samstarfi við 54 aðila víða um heim með það að leiðarljósi að gefa stjórnvöldum, fyrirtækjum og stofnunum sem besta mynd af samkeppnishæfni þjóða heims.
Samkeppnislisti IMD
Stærsti liður í starfi stofnunarinnar er útgáfa samkeppnislistans „IMD World Competitiveness Yearbook.“ Samkeppnislistinn er einn sá virtasti í heiminum og byggir á rannsóknum um samkeppnishæfni ásamt ítarlegum og yfirgripsmiklum upplýsingum frá samstarfsaðilum stofnunarinnar. Listinn hefur þá sérstöðu að byggja að 2/3 hluta á tölulegum upplýsingum til að tryggja eins hlutlægan mælikvarða og unnt er. En til að endurspegla einnig þróun samkeppnishæfni eins og þátttakendur upplifa hana styðst listinn að hluta til stjórnendakönnun meðal þáttökulanda. Samanlagt byggir listinn á yfir 300 mælikvörðum í dag og gefur nákvæma mynd af meginþáttum samkeppnishæfni þjóða.
Hlutverk Viðskiptaráðs
Viðskiptaráð Íslands annast samantekt á tölulegum upplýsingum og stjórnendakönnun atvinnulífsins á Íslandi í samstarfi við IMD. Tilgangur samstarfsins er að gefa innlendum og erlendum aðilum sem nákvæmastar upplýsingar um stöðu íslensks atvinnulífs og efnahags. Þessar upplýsingar geta stjórnvöld, stofnanir og fyrirtæki notað til að bæta samkeppnishæfni landsins gagnvart öðrum löndum heims.
Niðurstöður 2011
Ísland er í 31. sæti sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims þetta árið og fellur um eitt sæti milli ára. Þau lönd sem eru með svipaða samkeppnishæfni og Ísland eru Tékkland í 30. sæti og Indland í 32. sæti. Svíþjóð er efst Norðurlandanna í 4. sæti listans og fer upp um tvö sæti milli ára. Danmörk og Noregur eru svo í 12. og 13 sæti listans. Heildarniðurstöðu könnunarinnar má nálgast á undirsíðu hér.
Tenglar
Skjöl með nánari upplýsingum um listann má finna hér. Vefsíðu listans má finna hér. Netútgáfu listans má nálgast hér.







