Beint á leiðarkerfi vefsins

Niðurstöður 2010

Sterkir innviðir þrátt fyrir efnahagsáföll

Ísland var þrítugasta sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims árið 2010 samkvæmt IMD. Singapúr, Hong Kong og Bandaríkin voru í þremur efstu sætunum, en afar lítill munur var á þeim þremur.  

Viðskiptaráð Íslands í samvinnu við efnahags- og viðskiptaráðuneytið kynnti niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi í mars 2010. Glærur af fundinum má nálgast hér.

Landslag samkeppnishæfni
Íslands árið 2010 má sjá með
því að smella á myndina. Á
myndinni má sjá sæti landsins
í ólíkum flokkum listans.

Megin veikleika Íslands árið 2010 mátti rekja til efnahagskreppunnar, þ.e. slaks fjárfestingaumhverfis, fjármálalegs óstöðugleika og annarra fjármálalegra þátta. Helsti styrkleiki Íslands þótti fólginn í sterkum samfélagslegum innviðum, en þar var Ísland í 9. sæti í könnuninni sem er svipað og hjá öðrum Norðurlöndum. Sterkir innviðir í samfélaginu voru  taldir auðvelda vöxt á komandi árum og skapa gnótt möguleika. Endurreisn fjármálakerfisins og endurkoma eðlilegrar fjármálastarfsemi var svo talin koma til með að hafa mjög jákvæð áhrif á samkeppnishæfni þjóðarinnar á næstu árum. Sömu sögu var hægt að segja ef unnt væri að loka fjárlagagatinu árið 2013 og ná jöfnuði í fjármálum hins opinbera. Endurskoðun á umgjörð peningastefnunnar og uppbygging trúverðugleika Seðlabanks væri einnig hafin sem ætti að skila sér í bættri samkeppnishæfni.

Álagspróf á skuldabyrði þjóða – ásættanleg skuldastaða 2032
Árið 2010 var bryddað upp á þeirri nýbreytni að gera álagspróf á skuldastöðu þjóða. Í því prófi er spáð fyrir um það hvenær skuldir þjóða muni ná viðráðanlegu stigi (um 60% af landsframleiðslu). Var þetta í fyrsta skipti sem IMD tók saman upplýsingar um þetta málefni. Við gerð álagsprófsins var gert ráð fyrir að jöfnuður í fjármálum hins opinbera næðist árið 2015 og lönd myndu verja um 1% af landsframleiðslu til að greiða niður skuldir. 

Samkvæmt úttekt IMD mun Ísland ná þeim áfanga árið 2032, einu ári á undan Bandaríkjunum. Japan rekur lestina og mun þurfa að greiða niður skuldir til ársins 2084 til að ná ásættanlegri skuldabyrði og Ítalía til ársins 2060. Ef forsendur frá í samkomulagi AGS og ríkisstjórnarinnar um jöfnuð í ríkisfjármálum árið 2013 þá má telja víst að staðan verði betri en þessar niðurstöður gáfu til kynna. Á blaðamannafundinum benti Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra á að við þessa útreikninga var miðað við vergar skuldir (heildarskuldir) hins opinbera í stað hreinna, en hefði verið miðað við hreinar skuldir þá hefði staðan mælst betri. 

Viðhengd skjöl
IMD niðurstöður 2010 - prófíll Íslands (pdf)
IMD niðurstöður 2010 - fréttatilkynning (pdf)
IMD niðurstöður 2010 - glærukynning (pdf)


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Þjónusta » Samkeppnishæfni IMD » Niðurstöður 2010

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta