Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalfundur 2012

Aðalfundur Viðskiptaráðs verður haldinn kl. 11:00 á Hilton Reykjavík Nordica (salur I), samhliða Viðskiptaþingi 15. febrúar næstkomandi.

Á aðalfundi VÍ skal samkvæmt lögum ráðsins taka fyrir þessi mál:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Umræða um reikninga.
  3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt.
  4. Lagabreytingar.
  5. Kosning kjörnefndar.
  6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð.
  7. Önnur mál.
  8. Stjórnarkjör og framboð til formanns

Stjórn ráðsins er skipuð 19 einstaklingum og jafn mörgum til vara. Kosning stjórnar er óbundin þannig að kjörgengir eru allir skuldlausir félagsmenn (stjórnendur í fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði). Ábendingarlistinn, með nöfnum 57 aðila sem gefa sérstaklega kost á sér til stjórnarsetu og fylgir kjörseðli, er því aðeins leiðbeinandi.

Formaður stjórnar er kosinn sérstaklega í bundinni kosningu. Komi aðeins fram eitt framboð til formanns fer engu að síður fara fram kosning.

Rafræn atkvæðagreiðsla
Í fyrsta sinn í sögu ráðsins fer fram rafræn atkvæðagreiðsla, en kjörnefnd ráðsins mun senda félagsmönnum rafrænan kjörseðil a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund. Aðildarfélagar fá þá sent bréf með slóð á kosningavefinn og sérstakt auðkenni hvers félaga, sem hann notar til að opna sinn kjörseðil. Frekari leiðbeiningar um hvernig skila megi kjörseðli má finna hér.

Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 17:00 þriðjudaginn 14. febrúar. Úrslit kosninga verða tilkynnt á aðalfundinum, en kjörtímabil stjórnar er á milli aðalfunda sem haldnir eru á tveggja ára fresti.

Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu ráðsins í síma 510-7100.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Aðalfundur 2012

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta