Ábendingalisti
Samkvæmt lögum Viðskiptaráðs skulu fylgja kjörseðli ábendingar stjórnar um a.m.k. 57 manns sem vilja taka að sér stjórnsetu. Allir skuldlausir félagar eru hins vegar kjörgengir við kosningar og er kosningin þannig óbundin. Ábendingarlistinn er því leiðbeinandi.
Ábendingarlistann í heild sinni má nálgast hér.
Lög Viðskiptaráðs gera ráð fyrir eftirfarandi hvað varðar stjórn ráðsins:
- Stjórnin er skipuð 19 aðalmönnum og jafn mörgum til vara.
- Stjórnarmenn skulu kosnir í einu lagi.
- Þegar aðildarfélagi fær kjörseðilinn skrifar hann annars vegar nafn þess formannsframbjóðanda sem hann kýs og síðan nöfn þeirra 12 manna, er hann kýs í stjórn.
- Óheimilt er að kjósa sama mann bæði sem formann og almennan stjórnarmann og telst slíkt atkvæði ógilt.
- Þeir 18 menn sem flest atkvæði hljóta í stjórnarkjöri, að teknu tilliti til atkvæða í formannskjöri teljast réttkjörnir í stjórn ráðsins. Þeir 19 menn sem næstir koma að atkvæðamagni eru réttkjörnir varamenn.
- Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skal hún kjósa sér varaformann og 3 úr hópi aðalmanna, sem ásamt formanni mynda 5 manna framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs.
- Kjörtímabil stjórnar og framkvæmdastjórnar er á milli aðalfunda Viðskiptaráðs.
- Stjórn Viðskiptaráðs fer með æðsta vald í málefnum ráðsins á milli aðalfunda. Hún skal koma saman til fundar eftir því sem þörf krefur og formaður ákveður.
- Stjórn er ályktunarfær ef 2/3 stjórnarmanna sitja fund.
- Forfallist stjórnarmaður, hvort heldur tímabundið eða varanlega, er stjórn Viðskiptaráðs heimilt að skipa annan í hans stað úr hópi aðildarfélaga til næsta aðalfundar.







