Beint á leiðarkerfi vefsins

Formannskjör

Framboðsfrestur vegna formannskjörs rann út 25. janúar sl. Eitt framboð barst innan frestsins frá Hreggviði Jónssyni forstjóra Veritas Capital hf. og er hann því einn í framboði.

Lög Viðskiptaráðs gera ráð fyrir eftirfarandi hvað varðar formann stjórnar:
  • Þeir einir eru kjörgengir til embættis formanns Viðskiptaráðs sem gefa skriflega kost á sér.
  • Skila skal framboðum til skrifstofu ráðsins eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
  • Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi og kosning til formanns er bundin en til stjórnar óbundin.
  • Komi fram einungis eitt framboð til formanns skal engu að síður fara fram kosning.
  • Á kjörseðli skal standa hve mörg atkvæði hann veitir. Kjörseðillinn skal vera þannig úr garði gerður að formann skal kjósa sérstaklega en stjórnarmenn í einu lagi.
  • Atkvæði greidd í formannskjöri til frambjóðanda sem ekki nær kjöri, skulu lögð við þau atkvæði sem hann fær löglega greidd í stjórnarkjöri og teljast sameiginlega til atkvæða greiddum honum í stjórnarkjöri.
  • Þeir 18 menn sem flest atkvæði hljóta í stjórnarkjöri, að teknu tilliti til atkvæða í formannskjöri teljast réttkjörnir í stjórn ráðsins.
  • Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skal hún kjósa sér varaformann og 3 úr hópi aðalmanna, sem ásamt formanni mynda 5 manna framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs.
  • Stjórn Viðskiptaráðs fer með æðsta vald í málefnum ráðsins á milli aðalfunda. Hún skal koma saman til fundar eftir því sem þörf krefur og formaður ákveður. Skrifstofa ráðsins boðar til fundar á tryggilegan hátt með þriggja daga fyrirvara.
  • Formanni er skylt að boða til fundar innan viku ef 1/3 stjórnarmanna fer fram á það skriflega eða fram kemur ósk um það frá framkvæmdastjórnarmanni.
  • Forfallist formaður stjórnar, hvort heldur tímabundið eða varanlega, er stjórn Viðskiptaráðs heimilt að skipa annan úr röðum aðalmanna í hans stað til næsta aðalfundar.
  • Hafi formaður setið samfleytt í fjögur ár má eigi endurkjósa hann formann fyrr en minnst tvö ár eru liðin frá því hann lét af formennsku.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Aðalfundur 2012 » Formannskjör

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta