Leiðbeiningar vegna kosninga 2012
Eftir að farið hefur verið inn á vefslóðina sem gefin var upp í bréfi sem sent var félögum (þann 31. janúar) skal skrá inn lykilorð (sjá: 1). Lykilorðið má finna í áðurnefndu bréfi. Eftir að lykilorð hefur verið skráð í reitinn skal velja „Sækja minn kjörseðil“ (sjá: 2).
Þá birtist kjörseðill viðkomandi aðildarfélaga. Á kjörseðlinum er annars vegar kosið um formann og hins vegar stjórn. Í stjórnarkjöri má velja allt að 12 fulltrúa, annað hvort af ábendingarlista eða með því skrá nöfn forsvarsmanna annarra aðildarfélaga. Hver félagi hefur atkvæðafjölda í samræmi við greitt árgjald, fyrir hvern og einn þann sem hann kýs (dæmi: félagi með skráð 50 atkvæði veitir hverjum þeim sem hann kýs 50 atkvæði, að hámarki 600 atkvæði kjósi hann 12 fulltrúa). Að vali loknu skal smella á „Skila kjörseðli“, neðst á síðu.
Þá birtist staðfestingarsíða (samanber mynd hér að neðan), með yfirliti yfir þá fulltrúa sem valdir hafa verið á kjörseðli. Til að ljúka kosningu er smellt á „Staðfesta kosningu“ og er kjörseðli þar með skilað. Ef gera þarf breytingar á kjörseðli má velja „Breyta kjörseðli“ og er þá farið aftur í fyrra skref.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Viðskiptaráðs Íslands í síma 510-7100.







