Háskólinn í Reykjavík
SVÍV stóð að stofnun Háskólans í Reykjavík sem að grunni til var byggður á áratuga reynslu og frábærum árangri Verzlunarskóla Íslands. Skólinn hefur nú starfað í nærri áratug við góðan orðstír. Á þessum tíma hefur skólinn tekið miklum breytingum, en stærsta skrefið var vafalaust sameining hans við Tækniháskóla Íslands. Öflugur nýr og sameinaður háskóli, Háskólinn í Reykjavík, býður nú upp á vandað og fjölbreytt nám á mörgum sviðum. Skólinn opnar ótal spennandi tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf til að mæta breyttum tímum og styrkir innviði og samkeppnishæfni íslensks hagkerfis.
Á árinu 2010 flutti Háskólinn í Reykjavík í nýtt stórglæsilegt 35.000 fermetra húsnæði við rætur Öskjuhlíðar upp af Nauthólsvík. Hið nýja húsnæði er táknmynd þeirra máttarstólpa er skólinn byggir á en þeir samanstanda af alþjóðlegum kröftum, þvegfaglegri tækni, framsækni, sköpunargleði og frelsi. Þannig endurspeglar húsnæðið hlutverk HR sem er miðlun og sköpun þekkingar. Með því er ætlunin að bæta hæfni og lífsgæði einstaklinga, samkeppnisstöðu fyrirtækja og velsæld þjóðarinnar í heild.

Snemma árs 2007 lét Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir af störfum sem rektor HR. Hún hafði gegnt því embætti frá stofnun skólans og stýrt því mikla uppbyggingarstarfi sem þar fór fram. Þá tók við nýtt tímabil í uppbyggingarsögu skólans þegar Dr. Svafa Grönfeldt tók við starfi rektors sem hún gegndi til byrjunar ársins 2010. Þá kom nýr rektor til starfa, Dr. Ari Kristinn Jónsson, en áður hafði hann gegnt starfi forseta tölvunarfræðideildar skólans. Það er ljóst að framtíð skólans er björt og gaman verður að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu og alþjóðavæðingu Háskólans í Reykjavík.
Heimasíða HR: www.hr.is







