Beint á leiðarkerfi vefsins

Námsstyrkir

Viðskiptaráð Íslands hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis. Undanfarin ár hafa verið veittir tveir styrkir árlega og hefur afhending þeirra farið fram á aðalfundi ráðsins eða Viðskiptaþingi, en þessir viðburðir eru að jafnaði haldnir í febrúarmánuði.

Árið 2005 var að auki, í fyrsta sinn, veittur námsstyrkur úr námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni, til einstaklings í framhaldsnámi á sviði upplýsingatækni. Á síðasta Viðskiptaþingi voru veittir tveir upplýsingatæknistyrkir og verður svo einnig á næsta ári.

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs 2012 rennur út föstudaginn 27. janúar 2012 klukkan 16.00.

Hér á eftir fylgja svör við nokkrum algengum spurningum varðandi námsstyrkina.

Hverjir geta fengið styrk?
Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess.

Styrkir úr námssjóði um upplýsingatækni er eingöngu veittur umsækjendum í upplýsingatækninámi.

Skilyrði styrkveitingar er að umsækjendur hafi lokið háskólanámi eða öðru sambærilegu námi og hafi hafið framhaldsnám. Það er með öðrum orðum ekki markmið styrkveitinganna að styrkja þá sem hyggja á framhaldsnám (hafa t.a.m. fengið inni í erlendum skólum en ekki hafið nám).

Hvað eru styrkirnir margir?
Styrkirnir eru fjórir.

Hversu háir eru styrkirnir?
Hver styrkur er að upphæð kr. 400.000. 

Hvenær rennur umsóknarfrestur út?
Auglýst eftir umsóknum í desember og janúar, umsóknarfrestur fyrir árið 2012 rennur út 27. janúar 2012.

Hvenær eru styrkirnir afhentir?
Styrkirnir eru ýmist afhentir á aðalfundi Viðskiptaráðs eða á Viðskiptaþingi, en þessir viðburðir fara að jafnaði fram um miðjan febrúar. Styrkir árið 2012 verða afhentir á Viðskiptaþingi sem haldið verður 15. febrúar 2012.

Hver veitir styrkina?
Framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs fjallar um umsóknir og ákveður hverjir hljóta styrki úr námssjóði Viðskiptaráðs. Ráðgjafanefnd námssjóðs um upplýsingatækni fjallar um styrkumsóknir vegna upplýsingatæknináms.

Er eitthvert sérstakt umsóknareyðublað?
Nei, ekki er um neitt slíkt að ræða. Gert er ráð fyrir að umsækjendur skili inn stuttu bréfi til Viðskiptaráðs og láti umbeðin gögn fylgja með. Rétt er að hafa í huga að þeir sem sækja um styrk vegna upplýsingatæknináms verða einnig hafðir með við umfjöllun umsókna hinna tveggja styrkjanna.

Hvað þarf að fylgja með umsókninni?
Umsóknum þarf a.m.k. að fylgja:

  • Afrit af prófskírteini (prófskírteini úr fyrra háskólanámi).
  • Vottorð um skólavist erlendis (staðfesting frá skólanum).
  • Lýsing á hinu erlenda námi (stutt lýsing, hægt er að láta fylgja með ítarlegri upplýsingar, t.d. ljósrit úr kennsluskrá viðkomandi skóla eða deildar).
  • Ferilskrá með ljósmynd af umsækjanda.
  • Stutt lýsing á markmiðum umsækjanda að námi loknu (hámark 1 blaðsíða).

Athugið að hér er um lágmarksupplýsingar að ræða. Gagnlegt getur verið að senda með einkunnir úr námi erlendis (ef þær liggja fyrir), meðmæli, upplýsingar um starfsreynslu og félagsstörf og annað, sem áhrif getur haft á matið á umsækjandanum.

Hvert á að skila umsóknum?
Umsóknum skal skilað til Viðskiptaráðs Íslands, Kringlunni 7, 103 Reykjavík eða með tölvupósti á thordis@vi.is og skulu þær merktar „Námsstyrkur 2012“.

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs 2012 rennur út föstudaginn 27. janúar 2012 klukkan 16.00.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Bakhjarl menntunar » Námsstyrkir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta