Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.1.2012

Aðalfundur 2012 - kjörgögn farin út

Í dag voru send út kjörgögn vegna kosninga til formanns og stjórnar Viðskiptaráðs Íslands. Eins og áður hefur komið fram er kosningin rafræn. Því er eiginlegur kjörseðill ekki sendur út heldur bréf frá framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs þar sem farið er yfir framkvæmd kosninganna.

30.1.2012

Viðskiptaþing 2012 - 15. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 13:30 og stendur þingið til kl. 16.20, en þá hefst móttaka.

26.1.2012

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki VÍ rennur út 27. janúar

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands fyrir árið 2012 rennur út kl. 16 á morgun, föstudaginn 27. janúar. Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis, en líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir. Afhending þeirra fer fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi.

24.1.2012

Af talnakúnstum og háum sköttum

Áramótaumfjöllun um skattahækkanir fer nú fram fjórða árið í röð. Að vanda kveinka forsvarsmenn skattastefnu stjórnvalda sér undan henni. Í grein í Fréttablaðinu laugardaginn 14. janúar fjallar fyrrverandi fjármálaráðherra um yfirlit Viðskiptaráðs um skattkerfisbreytingar síðustu ára þar sem bent er á að skattar hafi hækkað verulega og að skattkerfi, sem var að grunngerð gott, hafi verið umbylt og orði svo flókið að sé til óþurftar.

11.1.2012

Námsstyrkir Viðskiptaráðs: umsóknarfrestur til 27. janúar

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og hafa námsstyrkir Viðskiptaráðs 2012 nú verið auglýstir til umsóknar.

10.1.2012

Mikilvægt að einfalda skattaumhverfið aftur

Í morgun fór fram árlegur skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Oddný Harðardóttir, nýskipaður fjármálaráðherra, setti fundinn og sagði augljóst að skattamál virtust mörgum ofarlega í huga. Hún ræddi m.a. tíðar breytingar á skattkerfinu síðustu ár, sem skapað hafa óvissu...

4.1.2012

Yfir 100 breytingar á skattkerfinu

Viðskiptaráð hefur nú tekið saman uppfært yfirlit yfir þær skattabreytingar sem hafa átt sér stað hér á landi síðustu árin. Ljóst má vera að um umtalsverðan fjölda breytinga er að ræða, en flest allir skattar sem snerta atvinnulífið hafa hækkað verulega og í ofanálag hafa verið kynntir til sögunnar fjöldi nýrra skatta.

22.12.2011

Andlát: Gísli V. Einarsson, fyrrum formaður VÍ

Gísli V. Einarsson, fyrrum formaður Viðskiptaráðs Íslands (áður Verslunarráð Íslands) er fallinn frá 80 ára að aldri. Hann fæddist 14. júní árið 1931 og lést hinn 20. desember sl. Gísli var kjörinn formaður ráðsins árið 1974.

16.12.2011

Fundur um gjaldeyrishöft: Afnám á einu ári?

Í gærmorgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir vel sóttum morgunverðarfundi um gjaldeyrishöftin. Á fundinum var gefin út ný skýrsla Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif haftanna, en í henni er m.a. lagt mat á kostnað atvinnulífs af umgengni við höftin. Einnig var kynnt tillaga vinnuhóps sérfræðinga úr röðum atvinnulífs og háskóla að...

16.12.2011

Eldhugar á stefnumóti við stjórnendur

Þriðjudaginn 6. desember stóðu Viðskiptaráð Íslands og Innovit fyrir mentor kvöldverði undir yfirskriftinni Ný-sköpun-Ný-tengsl. Valdir „mentorar“ úr íslensku atvinnulífi buðu til kvöldsins nokkrum fulltrúum nýrra og vaxandi fyrirtækja sem eru rétt að byrja slíta barnsskónum í atvinnulífinu.

Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta