Fréttir
31.10.2003
Fyrirsjáanleg aukning í einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
30 - 40% af heilbrigðiskerfinu verður í einkarekstri árið 2010, sagði Þór Sigfússon á Málþingi hjúkrunarfræðinga 31. okt. 2003.
31.10.2003
Viðskiptatengsl við Japan, Holland og Úganda
28.10.2003
Danskir fjárfestar áhugasamir um kaup í íslenskum fyrirtækjum
Eitt hundrað danskir fjárfestar mættu á kynningu Dansk íslenska verslunarráðsins í Kaupmannahöfn.
27.10.2003
Evrópsk verslunarráð telja ýmislegt hamla útrás til Rússlands
Skrifræði, tollamál, staðlar og einkaréttur eru þau atriði sem verslunarráð í Evrópu telja helst ábótavant og hamla útrás til Rússlands samkvæmt könnun sem Eurochambres hefur gert.
23.10.2003
Nýsköpun rædd hjá Breska sendiráðinu og VÍ
Rætt var m.a. um viðskiptaengla á fundi sem Breska sendiráðið stóð fyrir 23. október í samráði við VÍ, BRÍS og Háskólann í Reykjavík. Fram kom á fundinum að árið 2003 er gert ráð fyrir að 830 milljónum punda verði varið í áhættuverkefni (venture capital) í Bretlandi en þessi upphæð var tæplega 5 sinnum hærri þegar fjármagn flæddi í þessi verkefni fyrir nokkrum árum síðan.
22.10.2003
Framtíðarsýn nýrrar kynslóðar á fjármálamarkaði
21.10.2003
Fjöldi starfandi eykst um 1000 en opinberum starfsmönnum um 1300
Ársverkum (stöðugildi) hjá hinu opinbera fjölgaði um rúmlega 1300 á tveggja ára tímabili á árunum 2000-2002 á meðan fækkun varð í einkageiranum.
8.10.2003
Þór Sigfússon skrifar um alþjóðavæðingu og erlenda sérfræðinga hérlendis
Nú þegar eru mörg íslensk fyrirtæki búin að hasla sér völl erlendis og þau eiga það flest sammerkt að starfsemin er að langstærstum hluta erlendis. Næsta skrefið í alþjóðavæðingu er að búa okkur undir það að hingað komi útlendingar til starfa hjá íslenskum þekkingarfyrirtækjum, bæði tímabundið og án tímamarka.
8.10.2003
Aðstaða erlendra sérfræðinga hér á landi
Í dag var haldinn blaðamannfundur þar sem kynntar voru tillögur að bættum aðbúnaði og umhverfi erlendra sérfræðinga sem starfa á Íslandi. Á vegum Verslunarráðs var myndaður starfshópur í maí sl. og var skýrslu hans dreift á blaðamannafundinum.
7.10.2003
Engar hömlur á fjárfestingum í Svíþjóð
Kai Hammerich forstjóri Invest in Sweden bendir á að það er einkum tvennt sem er nauðsynlegt til að laða að erlenda fjárfestingu; alþjóðlegir skólar og traustar samgöngur til og frá landinu.







