Fréttir
20.11.2003
Íslenskir bankar hafa stutt við bakið á útrás fyrirtækja
-sagði Carl Lövenhielm á námsstefnu Verslunarráðs 20. nóvember
18.11.2003
Afnám áminningarskyldu í ríkisstarfsemi er mjög til bóta
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem fjármálaráðherra leggur fram. Sveigjanleiki í opinberri starfsemi, sem var markmið laganna frá 1996, virðist einungis hafa verið í aðra áttina; forstöðumenn geta umbunað starfsmönnum en búa við takmarkað svigrúm til breytinga á starfsliði sínu.
7.11.2003
Seðlabankastjóri á morgunverðarfundi VÍ
Haustútgáfa Peningamála Seðlabankans var til umræðu á morgunverðarfundi Verslunarráðs í morgun en skýrslan kom út í gær. Fundurinn var með öðru sniði en áður því að þessu sinni var efnt til hringborðsumræðna að lokinni framsögu Seðlabankastjóra. Þátttakendur í umræðunum voru fulltrúi stjórnar VÍ, Hörður Arnarson (Marel hf.) og forstöðumenn greiningadeilda bankanna, þeir Þórður Pálsson (Kaupþingi Búnaðarbanka), Ingólfur Bender (Íslandsbanka) og Björn Rúnar Guðmundsson (Landsbanka). Umræðum stjórnaði Guðrún Hálfdánardóttir fréttastjóri Viðskiptablaðs Morgunblaðsins.
4.11.2003
Afstaða almennings til ÁTVR
Er markmiðið með útlitsbreytingum ÁTVR að fela uppruna og eðli áfengiseinokunar ríkisins? Leyfist ríkinu nú það sem öðrum hefur verið óheimilt, þ.e. að auglýsa áfengi og að auka aðgengi almennings að áfengi?
Sigríður Á. Andersen lögfræðingur VÍ veltir þessu fyrir sér.
3.11.2003
Glæsileg viðbygging Verzlunarskólans afhent
Verzlunarskóla Íslands var í dag afhent glæsileg ný viðbygging við skólann.







