Fréttir
30.6.2003
Merki VÍ á vefsíður aðildarfyrirtækja
Verslunarráð Íslands býður aðildarfyrirtækjum sínum að sækja á vef ráðsins merki þess, bæði á ensku og íslensku, til þess að setja á eigin heimasíður. Með merki VÍ á heimasíðum fyrirtækja á ensku má skapa traust sem gagnast getur á margan hátt í erlendum samskiptum.
30.6.2003
Mikil umræða um skýrslu VÍ um valfrelsi í gunnskólum
Nokkur umræða hefur átt sér stað um skýrslu VÍ um valfrelsi í grunnskólum sem gefin var út í maí sl. Fjölmenni var á morgunverðarfundi VÍ um skýrsluna. Á fundinum komu fram ólík sjónarmið um einkaskóla.
11.6.2003
Mikilvægt að fyrirtæki séu ábyrg og setji sínar eigin leikreglur
Framkvæmdastjóri Alþjóða verslunarráðsins (ICC) , Maria Livanos Cattaui, hélt erindi um Ábyrg fyrirtæki í alþjóðavæddu umhverfi yfir hátíðarkvöldverði í Grillinu í tilefni af 20 ára afmæli ICC á Íslandi. Þar sagði Maria meðal annars að fyrirtækin sjálf verði að vera ábyrg og mega aldrei gera ráð fyrir að stjórnvöld setji þeim reglur til að fara eftir.







