Fréttir
18.8.2003
88% sænskra fyrirtækja hlynnt evrunni
88% aðildarfyrirtækja verslunarráðs Stokkhólmsborgar eru hlynnt upptöku evrunnar í Svíþjóð. Þetta kom m.a. fram í ræðu Peters Eghards framkvæmdastjóra verslunarráðs Stokkhólmsborgar á ársfundi framkvæmdastjóra norrænna verslunarráða sem haldinn var í Finnlandi í ágúst.
18.8.2003
Sundabraut og orkufyrirtæki i einkaeigu!
"Það eru lítil takmörk fyrir því hvað hægt er að einkavæða", sagði Eamonn Butler framkvæmdastjóri Adam Smith Institute á morgunverðarfundi VÍ. Butler hvatti til þess að Íslendingar reyndu samkeppnisvæðingu og einkavæðingu í orkugeiranum. Reynsla Breta hefði sýnt að jafnvel í greinum sem voru taldar búa við náttúruleg einokunarskilyrði í Bretlandi hafi samkeppni átt erindi.
12.8.2003
Athugun VÍ leiðir í ljós að skrifræði við stofnun fyrirtækja er lítið hérlendis en kostnaður hár
12.8.2003
Athugun VÍ leiðir í ljós að skrifræði við stofnun fyrirtækja er lítið hérlendis en kostnaður hár
Til að efla nýsköpunarstarfsemi ber að ryðja burt hindrunum við stofnun fyrirtækja. Hérlendis er skrifræði við stofnun fyrirtækja lítið. Krafa um innborgað hlutafé er lægri hér en víða annars staðar. Hins vegar er kostnaður vegna skráningar fyrirtækja töluvert hærri en í mörgum öðrum OECD ríkjum.







