Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.12.2004

Ný tækifæri í einkarekinni tæknifrjóvgun

Nýlega tók einkarekin tæknifrjóvgunarstofa, ART Medica, til starfa. Heilbrigðishópur Verslunarráðs hefur bent á kosti einkareksturs í heilbrigðiskerfinu og bauð Guðmundi Arasyni, lækni í heimsókn. 

23.12.2004

Áramótaheitið: Tökum til í ríkisbúskapnum!

Ástæða þess að hallaði undan fæti hjá Svíum í samkeppni við aðrar þjóðir fyrir síðustu aldamót var sú að rausnarlegt velferðarkerfið var farið að móta þjóðarsálina. Svíar hafa tekið til í sínu velferðarkerfi með all nokkrum árangri og þeim vegnar betur.

21.12.2004

Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektors Háskólans í Reykjavík, veitt Viðskiptaverðlaunin 2004

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti í dag Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektors Háskólans í Reykjavík, Viðskiptaverðlaunin 2004

20.12.2004

Hlutverk ríkisins á íbúðalánamarkaði

Ekki er langt síðan ríkið starfrækti ýmsa sjóði eins og Framkvæmdasjóð, Hlutafjársjóð og Iðnþróunarsjóð.  Tímar og aðstæður breyttust og sjóðir þessir lögðust af.  Nú eiga sér stað vatnaskil á íbúðalánamarkaði með aukinni samkeppni.  VÍ skoðar hvort Íbúðalánasjóður hafi hlutverk í þessu breytta umhverfi og áhættu í rekstri hans?

17.12.2004

Rektor nýs sameinaðs háskóla

Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverand rektor Háskólans í Reykjavík, hefur verið skipuð rektor nýs sameinaðs háskóla Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands (THÍ). 

10.12.2004

Námsstyrkir Verslunarráðs auglýstir

Á árlegu Viðskiptaþingi Verslunarráðs hafa verið veittir tveir námsstyrkir vegna framhaldsnáms. Nú bætist við einn styrkur sem miðaður er við framhaldsnám í upplýsingatækni.

8.12.2004

"Stjórnarmenn geta ekki firrt sig ábyrgð" - morgunverðarfundur um innra eftirlit fyrirtækja

Morgunverðarfundur Verslunarráðs um innra eftirlit fyrirtækja, var haldinn 8. desember. Ólafur Kristinsson endurskoðandi hjá PwC, Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans og Heiðrún Jónsdóttir lögmaður á Lex lögmannsstofu fluttu erindi.

3.12.2004

Horfur í efnahagsmálum - fundur með Seðlabankasjóra

Á afar fjölmennum fundi Verslunarráðs um stöðu og horfur í efnahagsmálum, skýrði Birgir Ísleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri frá hækkun stýrivaxta bankans um eina prósentu úr 7,25% í 8,25%. Auk þess sem hann fjallaði um ástand og horfur í efnahagsmálum og nýja þjóðhagsspá og verðbólguspá bankans.

25.11.2004

Líflegur fundur um orkumál í morgun

Á fjölmennum morgunverðarfundi í morgun kynnti Verslunarráð skýrslu sína um markaðsvæðingu orkukerfisins sem starfshópur ráðsins hefur unnið að undirfarið misseri.

12.11.2004

Rætt um eignatengsl í viðskiptalífinu

Á morgunverðarfundi Verslunarráðs í morgun voru menn almennt sammála um að eignatengsl væru veruleg í íslensku viðskiptalífi.

9.11.2004

Sjónarhóll, HÍ og VÍ í samstarf

Verslunarráð Íslands hefur gert samning við Sjónarhól og félagsvísindadeild Háskóla Íslands um rannsóknaraðstöðu sem mun nýtast fyrir rannsóknir sem varða fjölskyldur barna með sérþarfir.

2.11.2004

Iceland Export Directory 2005

Útflytjendahandbókin 2005 kemur út í janúar nk.  Bókinni er dreift víða bæði hér á landi og erlendis.  Skráning nýrra upplýsinga er hafin bæði fyrir bókina  og á vefinn www.icelandexport.is

27.10.2004

Nýtt háskólaráð sameinaðs skóla Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands

Gengið hefur verið frá skipan stjórnar, sem jafnframt mun gegna hlutverki háskólaráðs, í nýjum sameinuðum háskóla sem tekur yfir alla starfsemi Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands.

27.10.2004

Nýr háskóli styrkir íslenskt atvinnulíf

Framtíðin blasir við nýjum sameinuðum háskóla að mati Sigþrúðar Ármann lögfræðings hjá Verslunarráði Íslands.

20.10.2004

Nauðsynlegt að líta til frekari beinna fjárfestinga útlendinga

Erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi voru ræddar á fjölsóttum morgunverðarfundi Verslunarráðs í morgun.

19.10.2004

Nýr háskóli við samruna Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands

Samkomulag hefur tekist milli menntamálaráðuneytis, Verslunarráðs (VÍ), Samtaka atvinnulífs (SA), Samtaka iðnaðarins (SI) og stjórnenda Háskólans í Reykjavík (HR) og Tækniháskóla Íslands (THÍ) um stofnun nýs háskóla með samruna HR og THÍ.

14.10.2004

Frumvörp iðn.- og viðskiptaráðherra um hlutafélög og samkeppni

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið birti nýlega á heimasíðu sinni frumvörp til breytinga á hlutafélögum og einkahlutafélögum og einnig frumvarp til nýrra samkeppnislaga.

13.10.2004

Fundur um erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi

28.9.2004

Útgerðarmenn og fulltrúar launþega skiptust á skoðunum á morgunverðarfundi VÍ

Líflegar umræður voru á morgunverðarfundi VÍ um vinnustaðasamninga fyrirtækja. Guðmundur Kristjánsson aðaleigandi útgerðarfélagsins Brims og Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ fluttu framsöguerindi. Auk þeirra tóku Elfar Aðalsteinsson stjórnarformaður Eskju hf. og Gunnar Páll Pálsson formaður VR þátt í pallborðsumræðum.

27.9.2004

Staða einkarekinna skóla í verkfalli kennara

Nú þegar verkfall kennara stendur yfir heldur kennsla áfram að mestu í einkareknum skólum. Einkareknu skólarnir eru með sérsamninga við flesta sína kennara.

21.9.2004

Bréf til iðnaðar- og viðskiptaráðherra í kjölfar skýrslu

Í kjölfar skýrslu iðnaðar- og viðskiptaráðherra sendi Verslunarráð, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins ráðherra bréf til þess að vekja athygli á hlutverki Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.

17.9.2004

Hvar er þörfin? - Því skyldum við ekki setja reglur?

Á morgunverðarfundi Verslunarráðs spurði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra því skyldum við ekki setja reglur? Vísaði spurningin til tillagna nefndar viðskiptaráðherra um að fá samkeppnisyfirvöldum i heimild til þess að krefjast þess að fyrirtæki, við tilteknar aðstæður, breyttu skipulagi sínu.

16.9.2004

Frá morgunverðarfundi um íslenskt viðskiptaumhverfi

 

14.9.2004

Þátttaka opinberra fyrirtækja í útboði

Í ágúst hélt Sorpa bs. útboð vegna gámaþjónustu við endurvinnslustöðvar. Meðal þátttakenda var Vélamiðstöðin ehf. sem þrátt fyrir ehf.-titilinn er opinbert fyrirtæki.

14.9.2004

Alþjóðaskóli á Íslandi tekur til starfa

Verslunarráð Íslands lýsir yfir ánægju sinni á opnun alþjóðaskólans í Reykjavík (Reykjavík International School) sem er til húsa í Víkurskóla v/Hamrahlíð.  

9.9.2004

VÍ sendir framkvæmdanefnd um einkavæðingu bréf

Verslunarráð hefur bent á mikilvægi þess að ríkisstofnunum séu ekki falin verkefni sem einkaaðilar hafa alla burði til þess að taka að sér. Ein þeirra stofnana sem hafa komið til umræðu innan Verslunarráðs í þessu sambandi er Siglingastofnun Íslands (SÍ).

8.9.2004

Aukið frumkvæði fyrirtækja

Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs, kallaði eftir auknu frumkvæði íslenskra fyrirtækja á morgunverðarfundi Íslandsbanka í gær.

Í erindi Þórs kemur fram að mikil tækifæri liggja fyrir einkafyrirtæki í þjónustu sem hið opinbera sinnir að mestu í dag.

27.8.2004

Ábyrgð fyrirtækja á skattskuldum starfsmanna

Ábyrgð fyrirtækja á skattskuldum og ýmsum opinberum gjöldum starfsmanna sinna nær langt út fyrir það sem eðlilegt getur talist. Auk þess að geta  leitt af sér bein fjárútlát hefur þessi ábyrgð einnig í för með sér mikla og tímafreka vinnu fyrir launagreiðanda – að ógleymdum óþægilega miklum afskiptum af einkamálefnum starfsmanna sinna.
Sigríður Á. Andersen lögfræðingur VÍ skoðaði málið.

23.8.2004

Viðræður hafnar um sameiningu Háskólans í Reykjavík og Tækniháskólans

 

23.8.2004

15% landið Ísland

Verslunarráð hyggst kynna hugmyndir um 15% landið Ísland á vormánuðum 2005. Tillögurnar miðast við að sem flestir skattar verði 15% þ.á m. tekjuskattar einstaklinga, tekjuskattar fyrirtækja og virðisaukaskattur.

13.8.2004

Félögum VÍ býðst að birta greinar og skoðanir á heimasíðu ráðsins

27.7.2004

Fjölgun einkaaðila - Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar svarar Verslunarráði Íslands í Morgunblaðinu 26. júlí 2004

26.7.2004

Enn um ríkisvæðingu - viðbrögð á viðbrögð ofan

Skoðun VÍ á umfangi ríkisstarfsemi og vangaveltur ráðsins um mögulega ríkisvæðingu hafa vakið viðbrögð úr ýmsum áttum. Sýnist sitt hverjum og hafa þegar birtst hér á síðunni afstaða manna úr tveimur ríkisstofnunum sem minnst var á í Skoðuninni.

20.7.2004

Athugasemdir vegna Skoðunar um ríkisvæðingu

Á heimasíðu Verslunarráðs þann 13. júlí 2004 birtist grein sem nefnist Er ríkisvæðing að taka við af einkavæðingu? Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands gerir athugasemdir við greinaskrifin.
Vinnueftirlitið vill einnig koma sjónarmiðum sínum á framfæri og gerir það hér.

13.7.2004

Áhyggjur Verslunarráðs á rökum reistar

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar Framkvæmd fjárlaga árið 2003 kemur fram að margar stofnanir og ráðuneyti hafi farið langt fram úr fjárheimildum á undanförnum árum. Verslunarráð telur nauðsynlegt að ríkisstarfsmenn verði látnir sæta ábyrgð ef ákvæðum í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er varða vörslu fjármuna og hagkvæma ráðstöfun þeirra, er ekki framfylgt. VÍ hefur lagt til að ríkisstjórnin fækki ríkisstofnunum líkt og breska ríkisstjórnin er um þessar mundir að leggja til. 

1.7.2004

Fundur VÍ um einkarekna grunnskóla

Verslunarráð hélt fund um fjárhagsgrundvöll einkarekinna grunnskóla þann 1. júlí. VÍ fékk Auði Finnbogadóttur MBA nema við HR til að kanna fjárhagslegan rekstargrundvöll fyrir ímyndaðan, nýjan hverfisskóla á höfuðborgarsvæðinu og kynnti Auður niðurstöður sínar. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi menntamálaráðherra, hélt erindi um grunnskóla og sagði frá starfshóp sem hefur að markmiði að yfirfara lög um grunnskóla nr. 66/1995.

15.6.2004

Verslunarráð varar við ólögmætum "lottóbréfum"

Verslunarráð varar fólk við bréfum um að viðkomandi hafi unnið lottóvinning, án þess að hafa keypt tiltekna lottóseðla. Tilgangur þeirra sem að gylliboðunum standa er eingöngu að svíkja út peninga. Umsvifalaust á að henda þeim bréfum sem berast og alls ekki að greiða umbeðnar fjárhæðir né gefa upp reikningsnúmer, kreditkortanúmer eða veita upplýsingar um persónuskilríki.

14.6.2004

Skólaslit hjá Verzlunarskóla og Háskólanum í Reykjavík

Skólar Sjálfseignarstofnunar Verslunarráðs Íslands um viðskiptamenntun, Verzlunarskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík, hafa nú lokið skólaárinu 2003-2004.

26.5.2004

Vel heppnuð ferð að Kárahnjúkum

Verslunarráðið bauð félögum að fara í ferð að Kárahnjúkavirkjun 19. maí sl.

14.5.2004

Fjárhagsstaða einkaskóla erfið

13.5.2004

Fyrirtækjasamsteypur í íslensku umhverfi. Ræða eftir Þór Sigfússon á fundi FVH 13. maí 2004

13.5.2004

Verður þú á ÓL í Aþenu?

Verslunarráðið í Aþenu verður með aðstöðu fyrir viðskiptamenn til þess að kynnast grískum fyrirtækjum og fleira á meðan Ólympíuleikunum stendur í haust.

5.5.2004

Hvernig kemst Ísland úr 5. í 3. sæti?

Háskólinn í  Reykjavík  hefur kynnt niðurstöður skýrslu IMD viðskiptaháskólans í Lausanne um samkeppnishæfni þjóða (World Competitiveness Yearbook 2004).   Skýrslan sýnir berlega að rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur batnað til muna á undanförnum áratug.  Verslunarráð leggur til aðgerðir til að koma Íslandi ofar á listann.

3.5.2004

Aukið opinbert eftirlit íþyngir fyrirtækjum

Kostnaður af opinberu eftirliti er gríðarlegur. Áætlað er að beinn kostnaður fyrirtækja í landinu sé um 7,2 milljarðar á ári. Óbeini kostnaðurinn er áætlaður allt að 4 milljarðar á ári. Beinn kostnaður hins opinbera er áætlaður á bilinu einn og hálfur til fimm milljarðar á ári. Það kemur í hlut atvinnulífsins og landsmanna allra að greiða fyrir.

28.4.2004

Frjálst útvarp eftir Þór Sigfússon

Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp til laga sem takmarkar eignarhald að fjölmiðlum. Við þá hugmynd er ýmislegt að athuga.

21.4.2004

Ísland ekki vænlegasti kosturinn fyrir erlend fyrirtæki, þrátt fyrir 18% tekjuskatt

Skattar á erlend fyrirtæki hér á landi eru miklu mun hærri en 18% tekjuskattur gefur til kynna. Erlend fyrirtæki á Írlandi búa við 12,5% fyrirtækjaskatt. Þetta og fleira var rætt á morgunverðarfundi um það hvort að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja sé að versna.

6.4.2004

Umfjöllun um íslensk fyrirtæki erlendis skapar tækifæri

29.3.2004

Stjórnarhættir stofnana og fyrirtækja sem ekki eru rekin í ágóðaskyni

Stjórnir góðgerðarfélaga og sjálfseignarstofnana þurfa að leggja áhgerslu á góða stjórnarhætti við val á stjórnarmönnum ekki síður en stjórnir hlutafélaga.

25.3.2004

Fjölmenni á Incoterms

Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins á Íslandi hélt í gær fjölmennt námskeið um alþjóðlegu viðskiptaskilmálanna, Incoterms 2000,  á Hótel Nordica. 

17.3.2004

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja kynntar

Verslunarráð Íslands kynnti í gær nýútkomnar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.

15.3.2004

Af samkeppnisrekstri ríkisins -eftir Sigríði Á. Andersen

Sigríður Á. Andersen ber saman ríkiseinokunarverslunina í Flugstöðinni og áfengisverslun ríkisins.

23.2.2004

Heildstæð umfjöllun um einkaframkvæmd - ný skýrsla VÍ

Verslunarráð Íslands kynnir nú fyrstu heildstæðu samantektina um einkaframkvæmd á Íslandi.

12.2.2004

Afhending námsstyrkja Verslunarráðs

Á Viðskiptaþingi Verslunarráðs eru jafnan veittir tveir námsstyrkir.

11.2.2004

Úrslit kosninga formanns og stjórnar Verslunarráðs

Á aðalfundi Verslunarráðs sem haldinn var 11. febrúar 2004 var kosinn nýr formaður og ný stjórn ásamt varastjórn.

11.2.2004

Frá Viðskiptaþingi Verslunarráðs Íslands 2004

Mjög góð þátttaka var á Viðskiptaþingi Verslunarráðs Íslands.

10.2.2004

Raunverulegt val. Eftir Sigþrúði Ármann

Sveitarfélög eiga að tryggja að sömu upphæðir séu greiddar með hverju barni í einkaskólum, sjálfstæðum skólum og opinberum skólum. Með því eiga nemendur og foreldrar raunverulegt val.

28.1.2004

Peningaþvætti snertir Íslendinga í auknum mæli

Umfang peningaþvættis í heiminum er gríðarlegt og hefur það slæm áhrif á fyrirtæki og samfélagið í heild. Peningaþvætti raskar samkeppni á hinum frjálsa markaði og spillir góðum stjórnarháttum. Vandamál peningaþvættis snerta Íslendinga í auknum mæli og fjölgaði tilkynningum til ríkislögreglustjóra um tæp 30% árið 2003 frá árinu á undan. VÍ skoðar hvernig fyrirtæki og þjóðfélagið allt geti barist gegn peningaþvætti.

27.1.2004

Fjallað um samkeppnishæfni krónunnar

Fjallað var um stöðu krónunnar í ljósi hugsanlegrar samkeppni við aðra gjaldmiðla hér á landi á hádegisverðarfundi Verslunarráðs í dag.

25.1.2004

Af fundi um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu

Rætt var um möguleika Íslendinga á að taka við erlendum sjúklingum á fjölmennum fundi Sænsk-íslenska verslunarráðsins og Versluanrráðs Íslands um einkarekstur í heilbrigðsþjónustu.

21.1.2004

Jón Elvar Guðmundsson lögmaður skrifar um skattlagningu hlunninda

16.1.2004

Hvernig er háttað mati á kostnaði atvinnulífsins vegna nýrra laga og reglna?, spyr Þór Sigfússon

16.1.2004

Bjarnfreður Ólafsson lögmaður hjá Taxis ræðir um skattamál

Bjarnfreður Ólafsson lögmaður hjá Taxis ræðir um skattamál

15.1.2004

Bætir löggjöf gegn hringamyndun lífsgæði? spyr Sigþrúður Ármann

Mikilvægt er að málefnaleg umræða fari fram. Við verðum að líta á málið í heild og komast að niðurstöðu hvort atvinnulífið á Íslandi þurfi umrædd lög.

13.1.2004

Áhugasamir um viðskipti við Kína

Útlit er fyrir að Kína verði heimsins stærsta hagkerfi eftir nokkra áratugi með þeim mikla hagvexti sem þar hefur verið undanfarin ár. 


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta