Fréttir
15.6.2004
Verslunarráð varar við ólögmætum "lottóbréfum"
Verslunarráð varar fólk við bréfum um að viðkomandi hafi unnið lottóvinning, án þess að hafa keypt tiltekna lottóseðla. Tilgangur þeirra sem að gylliboðunum standa er eingöngu að svíkja út peninga. Umsvifalaust á að henda þeim bréfum sem berast og alls ekki að greiða umbeðnar fjárhæðir né gefa upp reikningsnúmer, kreditkortanúmer eða veita upplýsingar um persónuskilríki.
14.6.2004
Skólaslit hjá Verzlunarskóla og Háskólanum í Reykjavík
Skólar Sjálfseignarstofnunar Verslunarráðs Íslands um viðskiptamenntun, Verzlunarskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík, hafa nú lokið skólaárinu 2003-2004.







