Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.7.2004

Fjölgun einkaaðila - Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Höskuldur Ásgeirsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar svarar Verslunarráði Íslands í Morgunblaðinu 26. júlí 2004

26.7.2004

Enn um ríkisvæðingu - viðbrögð á viðbrögð ofan

Skoðun VÍ á umfangi ríkisstarfsemi og vangaveltur ráðsins um mögulega ríkisvæðingu hafa vakið viðbrögð úr ýmsum áttum. Sýnist sitt hverjum og hafa þegar birtst hér á síðunni afstaða manna úr tveimur ríkisstofnunum sem minnst var á í Skoðuninni.

20.7.2004

Athugasemdir vegna Skoðunar um ríkisvæðingu

Á heimasíðu Verslunarráðs þann 13. júlí 2004 birtist grein sem nefnist Er ríkisvæðing að taka við af einkavæðingu? Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands gerir athugasemdir við greinaskrifin.
Vinnueftirlitið vill einnig koma sjónarmiðum sínum á framfæri og gerir það hér.

13.7.2004

Áhyggjur Verslunarráðs á rökum reistar

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar Framkvæmd fjárlaga árið 2003 kemur fram að margar stofnanir og ráðuneyti hafi farið langt fram úr fjárheimildum á undanförnum árum. Verslunarráð telur nauðsynlegt að ríkisstarfsmenn verði látnir sæta ábyrgð ef ákvæðum í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er varða vörslu fjármuna og hagkvæma ráðstöfun þeirra, er ekki framfylgt. VÍ hefur lagt til að ríkisstjórnin fækki ríkisstofnunum líkt og breska ríkisstjórnin er um þessar mundir að leggja til. 

1.7.2004

Fundur VÍ um einkarekna grunnskóla

Verslunarráð hélt fund um fjárhagsgrundvöll einkarekinna grunnskóla þann 1. júlí. VÍ fékk Auði Finnbogadóttur MBA nema við HR til að kanna fjárhagslegan rekstargrundvöll fyrir ímyndaðan, nýjan hverfisskóla á höfuðborgarsvæðinu og kynnti Auður niðurstöður sínar. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi menntamálaráðherra, hélt erindi um grunnskóla og sagði frá starfshóp sem hefur að markmiði að yfirfara lög um grunnskóla nr. 66/1995.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta