Fréttir
28.9.2004
Útgerðarmenn og fulltrúar launþega skiptust á skoðunum á morgunverðarfundi VÍ
Líflegar umræður voru á morgunverðarfundi VÍ um vinnustaðasamninga fyrirtækja. Guðmundur Kristjánsson aðaleigandi útgerðarfélagsins Brims og Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ fluttu framsöguerindi. Auk þeirra tóku Elfar Aðalsteinsson stjórnarformaður Eskju hf. og Gunnar Páll Pálsson formaður VR þátt í pallborðsumræðum.
27.9.2004
Staða einkarekinna skóla í verkfalli kennara
Nú þegar verkfall kennara stendur yfir heldur kennsla áfram að mestu í einkareknum skólum. Einkareknu skólarnir eru með sérsamninga við flesta sína kennara.
21.9.2004
Bréf til iðnaðar- og viðskiptaráðherra í kjölfar skýrslu
Í kjölfar skýrslu iðnaðar- og viðskiptaráðherra sendi Verslunarráð, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins ráðherra bréf til þess að vekja athygli á hlutverki Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
17.9.2004
Hvar er þörfin? - Því skyldum við ekki setja reglur?
14.9.2004
Þátttaka opinberra fyrirtækja í útboði
Í ágúst hélt Sorpa bs. útboð vegna gámaþjónustu við endurvinnslustöðvar. Meðal þátttakenda var Vélamiðstöðin ehf. sem þrátt fyrir ehf.-titilinn er opinbert fyrirtæki.
14.9.2004
Alþjóðaskóli á Íslandi tekur til starfa
Verslunarráð Íslands lýsir yfir ánægju sinni á opnun alþjóðaskólans í Reykjavík (Reykjavík International School) sem er til húsa í Víkurskóla v/Hamrahlíð.
9.9.2004
VÍ sendir framkvæmdanefnd um einkavæðingu bréf
Verslunarráð hefur bent á mikilvægi þess að ríkisstofnunum séu ekki falin verkefni sem einkaaðilar hafa alla burði til þess að taka að sér. Ein þeirra stofnana sem hafa komið til umræðu innan Verslunarráðs í þessu sambandi er Siglingastofnun Íslands (SÍ).
8.9.2004
Aukið frumkvæði fyrirtækja
Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs, kallaði eftir auknu frumkvæði íslenskra fyrirtækja á morgunverðarfundi Íslandsbanka í gær.
Í erindi Þórs kemur fram að mikil tækifæri liggja fyrir einkafyrirtæki í þjónustu sem hið opinbera sinnir að mestu í dag.







