Fréttir
29.12.2005
Vel heppnaður blaðamannafundur
Í dag kynntu Viðskiptaráð, Kauphöllin og Samtök atvinnulífsins aðra útgáfu af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þórður Friðjónsson formaður nefndarinnar lagði áherslu á mikilvægi leiðbeininganna fyrir atvinnulífið og benti á að öllum skráðum félögum í kauphöllinni bæri að fara eftir reglunum.
29.12.2005
Stjórnarhættir fyrirtækja, önnur útgáfa
Árið 2004 gáfu Viðskiptaráð Íslands, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins út leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Nú er lokið endurskoðun leiðbeininganna og hefur ný útgáfa verið gefin út. Mikil og góð reynsla var af leiðbeiningunum og ákveðið var að gefa út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar til að svara kalli atvinnulífsins.
7.12.2005
Skýrsla Viðskiptaráðs um tvísköttun
Viðskiptaráð Íslands kynnti í dag skýrslu um tvísköttun. Í skýrslunni fjallar Viðskiptaráð um gerð tvísköttunarsamninga og þá hagsmuni sem eru í húfi vegna mikilvægi þeirra í alþjóðaviðskiptum.
5.12.2005
160 manns hlýddu á Davíð Oddsson ræða hagstjórnarvandann
Húsfyllir var á fundi Viðskiptaráðs um hagstjórnarvandann sem haldinn var á Grand Hótel í morgun. Á fundinum hélt Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, framsögu um hagstjórnarvandann og fór víða í umfjöllun sinni.
30.11.2005
Staðgengill framkvæmdastjóra
Eins og kunnugt er tók Þór Sigfússon framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands nýverið við forstjórarstöðu hjá Sjóvá. Ekki hefur enn verið ráðið í stöðu Þórs hjá VÍ en Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur ráðsins er staðgengill hans.
30.11.2005
Hækkandi fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði
Viðskiptaráð áréttar að engin rök hníga að því að hækkandi fasteignaverð eigi sjálfkrafa að leiða til breikkunar á skattstofnum sveitarfélaga. Hækkandi fasteignaverð er öðrum þáttum fremur afsprengi formbreytingar við fjármögnun fasteigna og slík breyting kallar á endurskoðun kerfis um fasteignagjöld.
25.11.2005
Samkeppni ríkisfyrirtækja við einkaaðila
27.10.2005
Stofnun Adams Smiths skrifar um Ísland
Á vef Adam Smith-stofnunarinnar má finna nýja grein eftir Dr. Madsen Pirie um Ísland en að þessu sinni gerir hann raforkuframleiðslu landsins að útgangspunkti sínum.
24.10.2005
Er Ísland flatskattaland?
Árni M. Mathiesen kynnir nefnd um endurskoðun skattamála.
14.10.2005
Afhjúpun styttu
Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands afhenti í dag Verzlunarskóla Íslands styttu eftir myndlistarkonuna Steinunni Þórarinsdóttur í tilefni af 100 ára afmæli skólans.
6.10.2005
Einfaldara Ísland
Viðskiptaráð Íslands fagnar ummælum forsætisráðherra um átakið Einfaldara Ísland í stefnuræðu hans á Alþingi. Í máli forsætisráðherra kom fram að hann muni beita sér fyrir því að ráðuneyti fari yfir lög og reglur í því augnamiði að auka skilvirkni og draga úr regluvirki stjórnsýslunnar.
22.9.2005
Yfirfullt á fundi um konur í forystu fyrirtækja
22.9.2005
Einkaframtakið í sjúkraflutninga
17.9.2005
Skýrsla: Útrás íslenskra fyrirtækja til Lundúna
Viðskiptaráð Ísland og Bresk-íslenska viðskiptaráðið luku núverið við gerð skýrslu um útrás íslenskra fyrirtækja til Lundúna.
15.9.2005
Alþjóðabankinn skýtur stoðum undir niðurstöður Viðskiptaráðs og IMD
Nýlega birti Alþjóðabankinn (e. World Bank) skýrslu sem skýtur styrkum stoðum undir niðurstöður Viðskiptaráðs og IMD-viðskiptaháskólans, enda kemur fram í skýrslu Alþjóðabankans að Ísland sé á meðal þeirra landa sem best er að eiga viðskipti við.
14.9.2005
Krónuhópur Viðskiptaráðs
Viðskiptaráð Íslands hóf nýverið vinnu við skýrslu um stöðu íslensku krónunnar. Meginverkefni nefndarinnar er að ákvarða hvernig núverandi kerfi verðbólgumarkmiðs þjóni hagsmunum íslensks atvinnulífs.
1.9.2005
Nafnabreyting kynnt - Viðskiptaráð Íslands
Nafnabreyting Verslunarráðs Íslands var kynnt í gær á fjölmennri samkomu félaga ráðsins á Nordica hóteli.
16.8.2005
Reykjavíkurborg selur loksins Vélamiðstöðina
Í gær var undirritaður samningur um kaup Íslenska Gámafélagsins ehf. á Vélamiðstöðinni ehf. sem hefur verið í eigu Reykjavíkurborgar.
4.8.2005
Reglubyrði felur í sér áhættu fyrir atvinnulífið
Ví skoðar hvernig best er að bregðast við auknu regluverki hérlendis.
23.7.2005
Einkaframtakið er drifkrafturinn á Suðurnesjum
Misskilnings gætir varðandi uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ef menn telja að grundvöllur hennar sé aðkoma ríkisins að rekstri flugstöðvarinnar og þjónustu innan hennar.
Sigríður Ásthildur Andersen lögfræðingur VÍ svarar gagnrýni framsóknarmanna á Suðurnesjum á málflutning VÍ í grein birtri í Morgunblaðinu í dag.
24.6.2005
Vald og ábyrgð ríkisstofnana
Niðurstaðan Ríkisendurskoðunar, um að margar stofnanir komist upp með að fara langt fram úr fjárheimildum, oft ár eftir ár, án þess að gripið sé til lögbundinna aðgerða, vekur upp spurningar um tengsl valds og ábyrgðar hjá forstöðumönnum ríkisstofnana. Búið er að færa meira vald til yfirmanna og forstöðumanna en ábyrgðin hefur ekki flust með.
6.6.2005
Arðrán í þróunarríkjum
"Mikil umbrot eru í landinu þar sen milljónir manna eru að feta leiðina frá kommúnistaeinveldi til markaðshyggju. Þar leynast víða tækifæri fyrir útlend fyrirtæki ef rétt er á málum haldið...,,
25.5.2005
Austurland getur orðið eitt af kraftmestu atvinnusvæðum við norðanvert Atlanshaf
2.5.2005
Umsagnir VÍ um lagafrumvörp nú í þinglok
Verslunarráð gefur ár hvert umsagnir um hátt í hundrað lagafrumvörp.
20.4.2005
Skattskýrslan á póstkorti?
Nýjasta tölublað The Economist er helgað skattaumfjöllun, einkum umfjöllun um einfaldari skattkerfi.
12.4.2005
Samanburður á viðskiptaumhverfi; Ísland í 9-10 sæti af 150 ríkjum
Ísland lendir í 9-10 sæti af 150 ríkjum ef gerður er samanburður á viðskiptaumhverfi hérlendis á þessu ári og öðrum ríkjum fyrir árið 2004. Skýrslan "Doing Business" sem unnin er af Alþjóðabankanum í samvinnu við VÍ og VUR gerir góð skil á viðskiptaumhverfi 150 ríkja víða um heim. Úttekt er gerð á mikilvægum þáttum í viðskiptaumhverfi viðkomandi ríkja og tekur mið af lagalegu umhverfi og áhrifum þess á viðskiptalífið.
1.4.2005
Gamlir draugar á 150 ára verslunarafmæli
Nú í dag eru liðin 150 ár frá því að verslun var hér á landi gefin frjáls. Enn eru þó á mörgum sviðum höft sem varna því að verslun geti talist fullkomlega frjáls. Verslunarráð Íslands hvetur til þess að gamlir draugar í skattkerfinu verði kveðnir niður.
16.3.2005
Fjölmenni og fjörugar umræður á morgunverðarfundi VÍ
Yfir hundrað manns mættu á fund Verslunarráðs, þar sem umræðuefnið var "Er Íslandsvélin að ofhitna." Erindi fluttu Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og ráðuneytisstjóri, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands og Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
18.2.2005
Lagasetning leysir ekki allan vanda - frá morgunverðarfundi VÍ og lagadeildar HR
Margt athyglisvert kom fram á morgunverðarfundi Verslunarráðs og lagadeildar Háskólans í Reykjavík, sem fram fór í morgun. Rætt var um hvort setja ætti frekari lög á viðskiptalífið. Árni Harðarson, yfirmaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte, Mette Neville, prófessor við Viðskiptaháskólann í Árósum og Elfar Aðalsteinsson framkvæmdastjóri fluttu erindi.
9.2.2005
Námsstyrkir Verslunarráðs afhentir í gær
Þrír styrkir úr námssjóðum Verslunarráðs voru veittir á Viðskiptaþingi í gær.
8.2.2005
Fjölmennasta og glæsilegasta Viðskiptaþing Verslunarráðs
Árlegt Viðskiptaþing Verslunarráðs var haldið í dag á Nordica hóteli og hefur aldrei verið jafn fjölmennt. Jón Karl Ólafsson formaður Verslunarráðs, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og sérstakur gestafyrirlesari Viðskiptaþingsins í ár Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður fluttu erindi.
2.2.2005
Ísland - höfn höfuðstöðva
1.2.2005
Framtíð einkarekinna skóla
Í dag flutti minnihlutinn í borgarstjórn tillögu m.a. þess efnis að borgarstjórn hefji samningaviðræður við fulltrúa sjálfstæðra skóla á leik- og grunnskólastigi til að finna framtíðarlausn fyrir rekstur þessara skóla.
28.1.2005
Halldór Ásgrímsson og Björgólfur Thor Björgólfsson, aðalræðumenn á Viðskiptaþingi Verslunarráðs
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Björgólfur Thor Björgólfsson verða aðalræðumenn á Viðskiptaþingi Verslunarráðs þann 8. febrúar n.k.
27.1.2005
Ríkið á eignarhluti í yfir 200 hlutafélögum og einkahlutafélögum
Ríkið, ríkisstofnanir og sjóðir í eigu ríkisins eru hluthafar í yfir tvöhundruð hlutafélögum og einkahlutafélögum. Verslunarráð hefur verið í fararbroddi þeirra sem bent hafa á kosti einkavæðingar og möguleika á því sviði.
13.1.2005
Samskipti skattyfirvalda og viðskiptalífs þarf að styrkja segir Þór Sigfússon á Skattadegi Deloitte
"Að sumu leyti kallar breytt viðskiptaumhverfi á önnur vinnubrögð og verklag í samskiptum skattyfirvalda og viðskiptalífs", sagði Þór Sigfússon framkvæmdastjóri VÍ á Skattadegi Deloitte. Ræða hér.
11.1.2005
"Orðheldni í viðskiptalífinu ómetanlegt til fjár" - morgunverðarfundur VÍ, SA og GLÍMUNNAR um traust í viðskiptalífinu
Morgunverðarfundur Verslunarráðs, Samtaka atvinnulífsins og Glímunnar (tímarit um guðfræði og samfélag) um traust í viðskiptalífinu var haldinn 11. janúar 2005. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, Gylfi Magnússon, dósent viðskipta- og hagfræðideild HÍ og Þröstur Olaf Sigurjónsson, aðjúnkt viðskiptadeild HR fluttu erindi.







