Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.11.2005

Staðgengill framkvæmdastjóra

Eins og kunnugt er tók Þór Sigfússon framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands nýverið við forstjórarstöðu hjá Sjóvá. Ekki hefur enn verið ráðið í stöðu Þórs hjá VÍ en Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur ráðsins er staðgengill hans.

30.11.2005

Hækkandi fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði

Viðskiptaráð áréttar að engin rök hníga að því að hækkandi fasteignaverð eigi sjálfkrafa að leiða til breikkunar á skattstofnum sveitarfélaga. Hækkandi fasteignaverð er öðrum þáttum fremur afsprengi formbreytingar við fjármögnun fasteigna og slík breyting kallar á endurskoðun kerfis um fasteignagjöld.

25.11.2005

Samkeppni ríkisfyrirtækja við einkaaðila

Fyrir um ári síðan var spurt að því í skoðun Viðskiptaráðs hvort að ríkisvæðing væri að taka við af einkavæðingu. Var tilefnið ábending Ríkisendurskoðunar um að fjölmargar ríkisstofnanir hefðu farið fram úr fjárlögum. Áður hafði Viðskiptaráð bent á að samhliða almennri einkavæðingu ríkisfyrirtækja hefur ríkisstofnunum fjölgað undanfarin ár og rekstur þeirra orðið sífellt umfangsmeiri. Þá er þátttaka ríkisins í atvinnulífinu enn umfangsmikil þótt lítið fari fyrir henni í daglegri umræðu.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta