Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.12.2005

Vel heppnaður blaðamannafundur

Í dag kynntu Viðskiptaráð, Kauphöllin og Samtök atvinnulífsins aðra útgáfu af Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þórður Friðjónsson formaður nefndarinnar lagði áherslu á mikilvægi leiðbeininganna fyrir atvinnulífið og benti á að öllum skráðum félögum í kauphöllinni bæri að fara eftir reglunum.

29.12.2005

Stjórnarhættir fyrirtækja, önnur útgáfa

Árið 2004 gáfu Viðskiptaráð Íslands, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins út leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Nú er lokið endurskoðun leiðbeininganna og hefur ný útgáfa verið gefin út. Mikil og góð reynsla var af leiðbeiningunum og ákveðið var að gefa út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar til að svara kalli atvinnulífsins.

7.12.2005

Skýrsla Viðskiptaráðs um tvísköttun

Viðskiptaráð Íslands kynnti í dag skýrslu um tvísköttun. Í skýrslunni fjallar Viðskiptaráð um gerð tvísköttunarsamninga og þá hagsmuni sem eru í húfi vegna mikilvægi þeirra í alþjóðaviðskiptum.

5.12.2005

160 manns hlýddu á Davíð Oddsson ræða hagstjórnarvandann

Húsfyllir var á fundi Viðskiptaráðs um hagstjórnarvandann sem haldinn var á Grand Hótel í morgun. Á fundinum hélt Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, framsögu um hagstjórnarvandann og fór víða í umfjöllun sinni.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta