Fréttir
29.12.2006
Gleðilegt ár!
Við óskum starfsmönnum aðildarfyrirtækja okkar, og landsmönnum öllum, gleðilegs árs með kærri þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.
Starfsfólk Viðskiptaráðs Íslands
29.12.2006
Iðnaðarmálagjald óréttlát tímaskekkja
Iðnaðarmálagjald er óréttlát tímaskekkja sem löngu er tímabært að afnema. Í stefnu Samtaka iðnaðarins segir að meginhlutverk þeirra sé m.a. að þjóna íslenskum iðnaði og gæta hagsmuna hans. Ef samtökin bera hag iðnfyrirtækja sannanlega fyrir brjósti ættu þau að hafa forgöngu um að þau þurfi ekki að sæta óeðlilegri gjaldtöku eins og þessari.
21.12.2006
Geðveik jól
Viðskiptaráð Íslands afhendir Hugarafli styrk í stað þess að senda jólakort.
8.12.2006
Erlent vinnuafl - allra hagur
Viðskiptaráð Íslands og Deloitte héldu nýverið sameiginlegan morgunverðarfund á Nordica hóteli um erlent vinnuafl. Erindi fluttu Jóhanna Waagfjörd framkvæmdastjóri Haga, Páll Jóhannesson forstöðumaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir viðskiptalögfræðingur hjá Deloitte. Erlendur Hjaltason forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs setti fundinn, en fundarstjóri var Margrét Sanders framkvæmdastjóri rekstrar Deloitte.
7.12.2006
Jólaferð Viðskiptaráðs Íslands til Kaupmannahafnar
Viðskiptaráð vill koma þökkum á framfæri til allra þátttakenda sem og gestgjafa í jólaferð ráðsins til Kaupmannahafnar nú í síðustu viku. Um afar ánægjulega og fróðlega ferð var að ræða þar sem fólki gafst færi á að skyggnast inn í viðskiptalíf Íslendinga í Danmörku.
4.12.2006
Hver gætir hagsmuna heildarinnar?
Stjórnvöld höfðu gefið okkur skattgreiðendum fögur fyrirheit um að tekjuskattur einstaklinga yrði lækkaður um 2% um áramótin. Það var m.a.s. búið að lögfesta þá lækkun. Í sumar gaf ríkisstjórnin hinsvegar út þá yfirlýsingu að skatturinn yrði aðeins lækkaður um 1% og er nú verið að keyra þá breytingu í gegnum þingið.
1.12.2006
Niðurstaða menntamálanefndar veldur vonbrigðum
Niðurstaða menntmálanefndar veldur Viðskiptaráði Íslands verulegum vonbrigðum. Verði frekari skorður ekki settar við umfangi RÚV á auglýsingamarkaði er verið að skerða verulega rekstrarskilyrði einkarekinna fjölmiðla.
27.11.2006
Breytt flugmálastefnu Kanada gagnast Íslendingum
Viðskiptaráð fagnar fyrirhuguðum breytingum á heimildum til loftferða milli Íslands og Kanada.
22.11.2006
Vegamál - umbætur og einkaframkvæmd
Góð mæting var á sameiginlegan fund Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka verslunar og þjónustu um umbætur í vegamálum og kosti einkaframkvæmdar í því samhengi. Framsögumenn voru Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Suðurlandsvegar ehf. Auk þess fór Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri SVÞ yfir sýn samtakanna í þessum efnum og Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar skýrði frá tæknilegum atriðum tengdum vegagerð. Fundinum stýrði Anna Kristín Gunnarsdóttir alþingismaður í fjarveru Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra Akureyrarbæjar. Í kjölfar erinda framsögumanna fóru fram pallborðsumræður þar sem gestum gafst kostur á að koma með spurningar.
21.11.2006
Ísland í 12. sæti
Alþjóðabankinn (World Bank) hefur gefið út skýrsluna „Doing Business 2007“ þar sem kannað var hversu auðvelt er að reka fyrirtæki í 175 löndum. Ísland lenti í 12. sæti að þessu sinni en var áður í 11. sæti.
7.11.2006
Hagstjórnarvandinn - fjölmennur og líflegur fundur
Vel á annað hunrað manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Hótel Sögu nú í morgun. Þar fór Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, yfir stöðu efnahagsmála í tilefni af útgáfu Peningamála. Yfirskrift fundarins var “Hagstjórnarvandinn – horft til framtíðar”. Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ stýrði fundinum og í panel sátu Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Þóra Helgadóttir hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka og Þórarin G. Pétursson hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands.
9.10.2006
Lækkun virðisaukaskatts, vörugjalda og tolla fagnaðarefni
Viðskiptaráð fagnar yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til lækkunar matvælaverðs.
3.10.2006
Fjölmennur fundur um krónuna
Á annað hundrað manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Grand hótel í morgun. Yfirskrift fundarins var: „Er krónan að laumast út bakdyramegin?“ Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður Marels og Þorvarður Tjörvi Ólafsson hagfræðingur í Seðlabankanum fluttu erindi, en fundarstjóri var Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningadeildar Landsbankans.
12.9.2006
Nýr hagfræðingur Viðskiptaráðs
Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Hann lærði hagfræði við Háskóla Íslands og Macquarie University í Sydney. Frosti starfaði áður hjá gjaldeyris- og afleiðumiðlun Landsbanka Íslands.
Halldór Benjamín Þorbergsson, sem verið hefur hagfræðingur ráðsins síðan á fyrri hluta ársins 2005, hverfur til annara starfa innan sæmstæðunnar Milestone ehf.
28.8.2006
British Icelandic Northern Trade Misson 2nd - 5th Ocotber 2006
At a time when Icelandic corporate investment activity in the UK continues to increase, this trade mission will give delegates an excellent opportunity to explore the Yorkshire and Humber area and make strong contacts with a wide variety of businesses.
The Humber has for many years had strong commercial ties with Iceland, in fish and transport. This mission will open doors to the wider Yorkshire area and particulary the financial centre of Leeds where great sectors, as well as many others.
The Yorkshire Business community looks forward to giving a warm welcome to all Icelandic delegates.
3.8.2006
Útgjöld umfram heimildir of algeng hjá ríkinu
Ríkisendurskoðun þurfti enn einu sinni að benda á mikilvægi þess að fjárlög séu virt, í skýrslu sem stofnunin gaf út í dag. Það nær ekki nokkurri átt að meira en fjórðungur fjárlagaliða fari fram úr heimildum en það eru alls um 9 milljarðar sem eru um 3% af heildarútgjöldum ríkisins.
26.7.2006
Ný skýrsla: Krónan og atvinnulífið
Viðskiptaráð Íslands gaf í dag út skýrsluna Krónan og atvinnulífið, en skýrsluna má nálgast á vef ráðsins.
14.7.2006
Mikilvæg skref stigin til lækkunar matarverðs
Viðskiptaráð Íslands fagnar skýrslu formanns matvælanefndar sem var afhent forsætisráðherra í dag, en VÍ átti fulltrúa í nefndinni. Í skýrslu formanns matvælanefndar má finna útreikninga Hagstofunnar á beinum verðáhrifum einstakra útfærslna sem ræddar voru í nefndinni og eru til þess fallnar að dýpka alla umræðu um lækkun matvælaverðs á Íslandi.
3.7.2006
Bush skipar Mishkin seðlabankastjóra
George W. Bush forseti Bandaríkjanna hefur skipað dr. Frederic S. Mishkin einn af seðlabankastjórum Bandaríkjanna. Eins og kunnugt er ritaði Mishkin nýverið skýrslu um efnahagsstöðugleika á Íslandi ásamt dr. Tryggva Þór Herbertssyni, sem Viðskiptaráð Íslands gaf út. Niðurstaða skýrslunnar var sú að ekki væri ástæða til að óttast fjármálakreppu á Íslandi.
23.6.2006
Um hundrað manns á fundi Viðskiptaráðs í Kaupmannahöfn
Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Kaupmannahöfn í dag. Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð neikvæð umræða um íslensk efnahagsmál í Danmörku, einkum eftir útkomu skýrslu Danske Bank. Fundurinn var þriðji í röðinni en VÍ stóð fyrir fundum í New York og London í maí. Fundargestir í Kaupmannahöfn voru flestir starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir dr. Frederic S. Mishkin og dr. Tryggvi Þór Herbertsson um fjármálastöðugleika á Íslandi og svöruðu spurningum frá fundargestum um íslenskt hagkerfi.
21.6.2006
Skoðun VÍ - Alþingi fór í um 90% tilfella eftir tilmælum Viðskiptaráðs
Starfsári Alþingis lauk 3. júní síðastliðin og höfðu þá 119 frumvörp, af þeim 234 sem lögð voru fram, orðið að lögum. Önnur frumvörp hafa þá dagað uppi í meðförum þingsins og er nauðsynlegt að leggja þau fram að nýju á næsta þingi, ef vilji er til þess að þau verði að lögum.
16.6.2006
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs Íslands er orðið áratuga gamalt og tekur annars vegar til eftirlits með upplagi dagblaða og hins vegar til eftirlits með upplagi tímarita og kynningarrita. Niðurstöður upplagseftirlits fyrir dagblöð eru birtar tvisvar á ári í janúar fyrir júlí - desember og í júlí fyrir janúar - júní. Niðurstöður upplagseftirlits fyrir tímarit og kynningarrit eru birtar þrisvar á ári, í janúar fyrir september til desember, í maí fyrir janúar - apríl og í september fyrir maí - ágúst.
30.5.2006
Viðskiptaráð verðlaunar afbragðs stúdenta
Viðskiptaráð Íslands hefur í gegnum tíðina verðlaunað afbragðsnema við útskriftir í þeim skólum sem ráðið starfrækir, Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Síðastliðinn laugardag var árleg útskrift Verzlunarskólans þar sem Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs flutti ræðu og verðlaunaði tvo nemendur.
18.5.2006
Sigríður Andersen lætur af störfum hjá VÍ
Sigríður Ásthildur Andersen, lögfræðingur, hefur látið af störfum hjá Viðskiptaráði Íslands
15.5.2006
Fjölmennur fundur Viðskiptaráðs í Lundúnum
Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Lundúnum í dag. Fundurinn var annar í röðinni en VÍ stóð fyrir fundi í New York fyrir röskum hálfum mánuði síðan.
11.5.2006
Fréttatilkynning: Ísland heldur sæti sínu sem fjórða samkeppnishæfasta hagkerfi heims
Viðskiptaráð Íslands og Glitnir kynntu í dag niðurstöður IMD-viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði.
Samkvæmt könnuninni, sem tekur til yfir 300 þátta, er Ísland fjórða samkeppnishæfasta hagkerfi heims og það samkeppnishæfasta í Evrópu. Bandaríkin, Hong Kong og Singapúr lentu í fyrstu þremur sætunum. Þróunin hefur verið Íslandi hagfelld síðustu ár og landið hefur verið á meðal efstu þjóða allt frá árinu 2003.

8.5.2006
Viðskiptamenntun á leið inn í framhaldsskólana
Nýverið voru gerðar breytingar á lögum um framhaldsskóla þar sem m.a. viðskipta- og hagfræðibraut kom inn sem fjórða brautin í framhaldsskólann. Með þessu er tryggt að ungt fólk hefur skýrt val um viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi en það hefur ekki verið til staðar um nokkurt skeið.
3.5.2006
Ný skýrsla: Efnahagslegur stöðugleiki á Íslandi
Íslenskt efnahagslíf og stöðugleiki hafa verið mikið í umræðunni á alþjóðlegum vettvangi að undanförnu. Viðskiptaráð Íslands ákvað að biðja einn af virtustu hagfræðingum heims að kanna ástand og horfur í íslenskum efnahagsmálum til þess að dýpka umræðuna og ljá henni fræðilega vigt.
26.4.2006
Reykjavik International School (Alþjóðaskólinn) í sókn
Alþjóðaskólinn er nú á öðru starfsári og hefur vakið mikinn áhuga. Skólinn er með aðstöðu í Víkurskóla í Grafarvogi. Námskrá skólans samanstendur af bandarískri og alþjóðlegri námskrá. Í skólanum er kennt á ensku en hluti af kennslunni fer fram í Víkurskóla og allir nemendur læra íslensku, annað hvort sem móðurmál eða sem annað tungumál.
21.4.2006
Hlutverki Íbúðalánasjóðs breytt?
Viðskiptaráð fagnar því að verið sé að skoða breytingar á starfsemi Íbúðalánasjóðs í núverandi mynd. Í desember 2004 fjallaði Viðskiptaráð um hlutverk ríkisins á íbúðalánamarkaði. Ítrekað var mikilvægi þess að bankarnir kæmu að fasteignalánum og að breyta þyrfti starfsemi Íbúðarlánasjóðs.
10.4.2006
Skoðun VÍ - Leyfaumhverfi veitingahúsa á Íslandi verra en í Evrópu
Viðskiptaráð hefur að undanförnu kannað leyfaumhverfi veitingahúsa á Íslandi annars vegar og í nokkrum öðrum evrópulöndum hinsvegar. Niðurstöðurnar, sem kynntar voru á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar 6. apríl, sýna að íslenskir veitingamenn búa að jafnaði við flóknara og viðameira leyfaumhverfi en evrópskir starfsbræður þeirra. Hérlendis þarf að sækja um mörg leyfi og oft kemur sama stofnunin að mörgum þeirra. Ástæðan virðist vera sú að ekki hafi verið litið heildrænt á þessi mál auk þess sem lagagrundvöllur fyrir einu leyfanna virðist einnig vera í besta falli vera hæpinn.
Sjá skoðunina í heild hér.
27.3.2006
Skoðun VÍ - Út með tölvumál hins opinbera
Viðskiptaráð hefur á síðustu árum bent á hluti sem betur væru komnir í höndum einkaaðila. Hefur ráðið jafnan miðað við það að ef tiltekið verkefni væri jafn vel eða betur unnið af einkaaðilum með jafn miklum eða minni tilkostnaði þá ætti ríkið að eftirláta einkaaðilum að sinna því. Á þetta við um mörg þau verkefni sem ríkið er enn í dag að inna af hendi. Skýrr hf. bauðst nýverið til að leysa ýmsar tölvudeildir ríkisins af hólmi með 20% minni tilkostnaði fyrir ríkið. Svör ríkisins voru ekki eins jákvæð eins og við hefði mátt búast.
Sjá skoðunina í heild hér.
21.3.2006
Myndir frá Viðskiptaþingi
Hér má sjá myndir frá Viðskiptaþingi sem haldið var miðvikudaginn 8. febrúar sl.
15.3.2006
Skoðun VÍ - Ríkið í samkeppni við fasteignafélög
Íslenska ríkið á fasteignir fyrir rúmlega 50 milljarða að fasteignamati þegar undanskildar eru fasteignir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og þannig er íslenska ríkið í samkeppni við fasteignafélög um eignarhald og rekstur fasteigna. Þetta kemur fram í könnun sem Viðskiptaráð Íslands gerði á fasteignum í eigu ríkisins og fjallað verður um á ráðstefnu um þróun fasteignamarkaðarins og rekstur fasteigna sem haldin er í tengslum við stórsýninguna Verk og vit í Laugardalshöll.
24.2.2006
Skoðun VÍ - Ríkisútvarpið hf.
Enn á ný er gerð tilraun af hálfu stjórnvalda til að breyta um rekstrarform á Ríkisútvarpinu. Stofnunin er olnbogabarn stjórnkerfisins og virðist einhverra hluta vegna undanskilið þeirri eðlilegu kröfu frjáls markaðar að ríkið stundi ekki samkeppni við einkaaðila.
Nú hefur menntamálaráðherra sett fram frumvarp þar sem lagt er til að stofnunin verði gerð að hlutafélagi en frumvarpið dregur í engu úr þeirri hörðu samkeppni sem stofnunin stundar við einkaaðila sem njóta ekki sama stuðnings frá hinu opinbera.
Sjá má skoðunina í heild sinni hér.
9.2.2006
Opinberar stofnanir ríflega 1.000
Í nýútkominni skýrslu Viðskiptaráðs, Ísland 2015, er ranglega sagt að ríkisstofnanir séu ríflega 1.000.
9.2.2006
Viðskiptaráð veitir efnilegum námsmönnum styrki
Það er löng hefð fyrir því á Viðskiptaþingi að veita styrki úr námssjóði Viðskiptaráðs.
8.2.2006
Erlendur Hjaltason kjörinn formaður Viðskiptaráðs
Erlendur Hjaltason forstjóri Exista ehf. hefur verið kjörinn formaður Viðskiptaráðs.
8.2.2006
Metþátttaka á velheppnað Viðskiptaþing
Um 400 manns mættu á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem var að ljúka.
17.1.2006
Viðskiptaráð verðlaunar afburðanámsmenn við útskrift HR
Viðskiptaráð Íslands veitti þremur nemendum úr viðskiptadeild, lagadeild og tækni- og verkfræðideild viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur við útskrift HR laugardaginn 14. janúar s.l.
17.1.2006
Aftur til framtíðar
Skattkerfið lýtur sömu lögmálum og annað gangverk samfélagsins og þarf að vera í stöðugri mótun og svara breyttum áherslum atvinnulífs ekki síður en almennings. Frumkvæði fjármálaráðherra að endurskoðun skattkerfisins er gleðiefni.
4.1.2006
Halla Tómasdóttir ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands hefur ráðið Höllu Tómasdóttur sem framkvæmdastjóra ráðsins frá 1. mars n.k. Hún tekur við starfinu af Þór Sigfússyni, sem nýlega var ráðinn forstjóri Sjóva.







