Fréttir
23.6.2006
Um hundrað manns á fundi Viðskiptaráðs í Kaupmannahöfn
Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Kaupmannahöfn í dag. Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð neikvæð umræða um íslensk efnahagsmál í Danmörku, einkum eftir útkomu skýrslu Danske Bank. Fundurinn var þriðji í röðinni en VÍ stóð fyrir fundum í New York og London í maí. Fundargestir í Kaupmannahöfn voru flestir starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir dr. Frederic S. Mishkin og dr. Tryggvi Þór Herbertsson um fjármálastöðugleika á Íslandi og svöruðu spurningum frá fundargestum um íslenskt hagkerfi.
21.6.2006
Skoðun VÍ - Alþingi fór í um 90% tilfella eftir tilmælum Viðskiptaráðs
Starfsári Alþingis lauk 3. júní síðastliðin og höfðu þá 119 frumvörp, af þeim 234 sem lögð voru fram, orðið að lögum. Önnur frumvörp hafa þá dagað uppi í meðförum þingsins og er nauðsynlegt að leggja þau fram að nýju á næsta þingi, ef vilji er til þess að þau verði að lögum.
16.6.2006
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs Íslands er orðið áratuga gamalt og tekur annars vegar til eftirlits með upplagi dagblaða og hins vegar til eftirlits með upplagi tímarita og kynningarrita. Niðurstöður upplagseftirlits fyrir dagblöð eru birtar tvisvar á ári í janúar fyrir júlí - desember og í júlí fyrir janúar - júní. Niðurstöður upplagseftirlits fyrir tímarit og kynningarrit eru birtar þrisvar á ári, í janúar fyrir september til desember, í maí fyrir janúar - apríl og í september fyrir maí - ágúst.







