Fréttir
13.12.2007
Aðalfundur Dansk-íslenska viðskiptaráðsins
Aðalfundur ráðsins var haldinn í Norrænahúsinu í gær. Að loknum hefðbundum aðalfundarstörfum ávörpuðu sendiherra Dana á Islandi Lasse Reiman og Einar Már Guðmundsson rithöfundur fundinn.
11.12.2007
Morgunverðarfundur: Milliverðlagning (Transfer Pricing)
Tæplega 80 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs og PriceWaterhouseCoopers á Grand Hótel nú í morgun. Efni fundarins voru milliverðlagsreglur, en slíkar reglur hafa verið í mikilli þróun undanfarin ár hjá nágrannaríkjum okkar. Á fundinum fjölluðu Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri skattasviðs Ríkisskattstjóra, Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar Landsbankans og Ian Dykes, meðeigandi hjá PwC í Bretlandi um milliverðlagsreglur og hugsanlega nálgun hérlendis.
5.12.2007
Morgunverðarfundur um þróun íslenks fjármálamarkaðar
Um 80 manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík um þróun íslensks fjármálamarkaðar sem haldinn var nú í morgun. Á fundinum Kynnti dr. Friðrik Már Baldursson nýja skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um stöðu og og framþróun fjármálakerfis Íslands. Skýrslan ber nafnið „The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector“ eða “Alþjóðavæðing íslenska fjármálakerfisins” og er rituð af þeim dr. Richard Portes prófessor við London Business School og dr. Friðriki Má Baldurssyni prófessor við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Frosta Ólafsson hagfræðing Viðkskiptaráðs.
28.11.2007
Morgunverðarfundur um stöðu sparisjóðanna
Hátt í 90 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs, Samtaka fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðuneytisins um stöðu sparisjóðanna. Á fundinum fjölluðu Kjartan Gunnarsson formaður sparisjóðanefndar viðskiptaráðherra, Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitisins, Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri Samband íslenskra sparisjóða og Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur um núverandi stöðu og hugsanlega framtíðarþróun sparisjóðanna.
21.11.2007
New report on the Icelandic financial sector
Iceland Chamber of Commerce published a new report on the Icelandic financial sector at a conference held in London today. The report is called “The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector” and was written by Professor Richard Portes from London Business School and Professor Fridrik Már Baldursson from University of Reykjavik in collaboration with Frosti Olafsson, Iceland Chamber of Commerce Chief Economist.
21.11.2007
Ný skýrsla um framþróun og stöðu fjármálakerfis Íslands
Viðskiptaráð Íslands kynnti nýja skýrslu um framþróun og stöðu fjármálakerfis Íslands á fjölmennum fundi í Lundúnum í dag. Skýrslan ber nafnið „The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector“og er rituð af þeim dr. Richard Portes prófessor við London Business School og dr. Friðriki Má Baldurssyni prófessor við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Frosta Ólafsson hagfræðing Viðkskiptaráðs.
6.11.2007
Fjörugar panelumræður
Í kjölfar ræðu Davíðs Oddssonar, formanns stjórnar Seðlabankans, stýrði Friðrik Már Baldursson, prófessor við HR, panelumræðum. Í panel sátu Björn Rúnar Guðmundsson forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Ásgeir Jónsson forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
6.11.2007
Ræða Davíðs Oddssonar
Davíð Oddson, formaður stjórnar Seðlabankans, kom víða við í ræðu sinni á haustfundi Viðskiptaráðs nú í morgun.
6.11.2007
Fjölsóttur og skemmtilegur fundur um peningamál
Tæplega 200 manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica nú í morgun. Þar fór Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, yfir stöðu efnahagsmála í tilefni af útgáfu Peningamála nú nýverið. Yfirskrift fundarins var “Hvenær lækka vextir?”. Friðrik Már Baldvinsson forstöðumaður Rannsóknarstofnunar um fjármál við HR stýrði fundinum og í panel sátu Björn Rúnar Guðmundsson forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Ingólfur Bender forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Ásgeir Jónsson forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.
Fundinn setti Frosti Ólafsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.
29.10.2007
Af hverju er það neytendum í hag að banna ekki uppgreiðslugjöld af húsnæðislánum?
Í yfirlýsingu sinni frá því um helgina lagðist Viðskiptaráð Íslands gegn sértækri lagasetningu sem bannar fjármálastofnunum að innheimta uppgreiðslugjald á lánum. Rétt er að ítreka að Viðskiptaráð fagnar áætlunum ráðherra um niðurfellingu stimpilgjalda og vörugjalda, enda hefur ráðið lengi barist fyrir niðurfellingu þeirra eins og kom skýrt fram í 90 ára skýrslu ráðsins um bætta samkeppnishæfni Íslands (sem nálgast má hér). Er því vísað algerlega á bug að Viðskiptaráð leggist gegn hugmyndum ráðherra um aukna samkeppni á bankamarkaði enda hefur ráðið verið helsti málsvari aukinnar samkeppni og samkeppnishæfni allra atvinnvega hér á landi. Aukið frelsi í viðskiptum er til hagsbóta bæði fyrir neytendur og fyrirtæki og því er Viðskiptaráð almennt á móti lagasetningum eða regluverki sem dregur úr frelsi til samninga.
25.10.2007
Afnám vörugjalda og stimpilgjalda fagnaðarefni
Viðskiptaráð Íslands telur áform viðskiptaráðherra um afnám vörugjalda og stimpilgjalda vera stórt skref í átt að einfaldara og skilvirkara hagkerfi. Framtak ráðherra mun án efa stuðla að lægra vöruverði og auknu gegnsæi í skattkerfinu, til hagsbóta fyrir neytendur og fyrirtæki. Afnám umræddra gjalda hefur löngum verið baráttumál ráðsins. Þannig hvatti ráðið m.a. til afnáms þeirra í skýrslu sinni „90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands“, sem gefin var út í tilefni 90 ára afmælis ráðsins 17. september síðastliðinn. Viðskiptaráð tekur heilshugar undir að álagning vörugjalda og tolla hafi hingað til verið tilviljunarkennd og ómarkviss, en hinn umdeildi iPod tollur er holdgervingur slíkrar álagningar. Með því er þó ekki sagt að stefna eigi að markvissari álagningu tolla, enda eru tollar í flestum tilfellum ekki til annars fallnir en að skerða kjör neytenda og vernda óhagkvæmar atvinnugreinar.
23.10.2007
Fjölmenni á fund um viðskiptastefnu ESB
Um 60 manns sátu morgunverðarfund Viðskiptaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi í gær sem bar yfirskriftina „Viðskiptastefna ESB – eitthvað fyrir Ísland?“ Á fundinum fjölluðu Percy Westerlund sendiherra framkvæmdastjórnarinnar, Aðalsteinn Leifsson forstöðumaður MBA náms Háskólans í Reykjavík og Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins um viðskiptastefnu ESB og stöðu Íslands innan og utan hennar.
18.10.2007
Nýr formaður Spánsk - íslenska viðskiptaráðsins
Sigríður Á. Andersen kjörin formaður Spánsk - íslenska viðskiptaráðsins, fyrst kvenna í sögu millilandaráða.
5.10.2007
Orkuveita Reykjavíkur á villigötum
Fyrr í vikunni var tilkynnt um sameiningu orkufyrirtækjanna Geysir Green Energy og Reykjavík Energy Invest, en með sameiningu þeirra verður til eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á sviði endurnýjanlegra orkugjafa í heiminum.
Viðskiptaráð Íslands telur að vissulega muni sameining fyrirtækjanna koma til með að festa enn frekar í sessi stöðu Íslands sem leiðandi miðstöðvar hugvits, þróunar og nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa. Sameining fyrirtækjanna gerir þeim kleift að sækja enn harðar á markað fyrir jarðvarmaorkuframleiðslu, en sá markaður stækkar á ógnarhraða og því ljóst að tækifærin leynast víðsvegar.
26.9.2007
Túlkun Viðskiptaráðs á 15. gr. laga um rafræna eignaskráningu verðbréfa
Í síðustu viku ákváðu Straumur, Verðbréfaskráning Íslands og Kauphöllin sameiginlega að fresta fyrirhugaðri evruskráningu hlutabréfa Straums. Tilefnið var athugasemd Seðlabanka Íslands er laut að tilhögun á verðbréfauppgjörinu, nánar tiltekið að 15. gr. laga nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu, en Seðlabankinn telur að samkvæmt því ákvæði sé honum einum heimilt að annast slíkt uppgjör.
15. gr. laga um rafræna eignaskráningu verðbréfa nr. 131/1997
Seðlabanki Íslands tekur við innlánum frá reikningsstofnunum sem aðild eiga að verðbréfamiðstöð og annast efndalok viðskipta þeirra með rafbréf. [...](leturbreyting undirritaðs)
Túlkun Viðskiptaráðs Íslands
Samkvæmt réttarríkishugtakinu lýtur þjóðfélagsskipanin lögum og allar athafnir hins opinbera þurfa að eiga sér stoð í tilteknum réttarreglum. Sett lög eru þar að öllu jöfnu rétthæst, á eftir ákvæðum stjórnarskrárinnar. Einkaaðilar eru ekki bundir á sama hátt og opinberir aðilar og þurfa athafnir þeirra því ekki með beinum hætti að eiga sér lagastoð, heldur þurfa þeir aðeins að gæta þess að athafnir þeirra rúmist innan þess ramma sem löggjafinn hefur sett. Er íslenskri réttarskipan þannig háttað að athafnir einkaaðila eru heimilar séu þær ekki beinlínis óheimilar samkvæmt tilteknum réttarreglum.
Umrætt ákvæði, eins og það verður lesið samkvæmt orðanna hljóðan, kveður á um að Seðlabanki Íslands annist efndalok viðskipta með rafbréf. Hvergi í ákvæðinu er annars vegar kveðið á um að öðrum sé slíkt óheimilt eða hins vegar að Seðlabankanum sé það einum heimilt. Greinargerð laganna veitir ekkert svar við ofangreindu. Miðað við þá réttarskipan sem er við lýði hér á landi er því öllum fyrirtækjum sem viðskiptaráðherra hefur veitt leyfi til að starfrækja verðbréfamiðstöð, skv. 3. gr. laganna, heimilt að annast umrædd efndalok viðskipta. Framangreind lögskýring er í samræmi við það grundvallarsjónarmið lögskýringa að skýra beri lagaákvæði svo að það feli í sér eðlilega, sanngjarna og hagkvæma reglu. Það er ekkert eðlilegra, sanngjarnara og sér í lagi hagkvæmara en að heimila samkeppni um slík uppgjör.
Þannig tekur Viðskiptaráð undir þá túlkun sem sett hefur verið fram að Seðlabankanum sé skylt að annast umrædd efndalok en öllum öðrum leyfishöfum það heimilt.
Haraldur I. Birgisson
Lögfræðingur Viðskiptaráðs
18.9.2007
Viðbrögð ráðherra við tillögum Viðskiptaráðs
Erlendur Hjaltason afhenti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra og Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra afmælisskýrslu ráðsins, 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Eftir að hafa veitt skýrslunni viðtöku fjölluðu ráðherrarnir um álit sitt á tillögunum.
17.9.2007
Finnur kynnti 90 tillögurnar
Í ræðu sinni á 90 ára afmæli Viðskiptaráðsins í dag kynnti Finnur Oddson 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands.
Finnur sagði meðal annars “90 tillögum Viðskiptaráðs má lýsa sem stefnuskrá ráðsins. Sumar eru sjálfsagðar en aðrar umdeildar, en höfuðmarkmið þeirra er að ýta við umræðu sem hefur það að markmiði að styrkja samkeppnishæfi Íslands. Tillögunum er beint til stjórnvalda með það fyrir augum að gera umhverfi atvinnulífs á Íslandi einfaldara, skilvirkara og réttlátara. Þannig má efla íslenskt samfélag, öllum til heilla.”
17.9.2007
Megintilgangur Viðskiptaráðs að gæta hagsmuna atvinnulífsins
Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs, hélt opnunarávarp á afmælisfundi Viðskiptaráðs Íslands nú í dag. Í ávarpinu fór Erlendur yfir hlutverk Viðskiptaráð í þróun íslensks viðskiptaumhverfis undanfarin 90 ár.
17.9.2007
Samstarfi ríkisstjórnar og Viðskiptaráðs fagnað
Í ávarpi sínu á 90 ára afmælisfundi Viðskiptaráðs lýsti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, yfir fullum vilja til frekara samstarfs við Viðskiptaráð og vonaði að ráðið og stjórnvöld gætu unnið áfram að mikilvægum framfaramálum sem stefna að því að bæta lífskjör í landinu. Sagði forsætisráðherra að samstarf Viðskiptaráðs og ríkisstjórnarinnar hafi skipt miklu máli í þeim breytingum sem átt hafa sér stað í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár.
17.9.2007
Viðskiptaráð Íslands 90 ára
Í dag eru 90 ár liðin frá stofnun Verzlunarráðs Íslands, en ráðið var stofnað í KFUM húsinu við Amtmannsstíg í Reykjavík þann 17. september 1917.
Í tilefni dagsins stóð Viðskiptaráð fyrir fjölmennum afmælisfundi þar sem ríkisstjórn Íslands var afhent ný skýrsla ráðsins sem ber yfirskriftina „90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands“. Skýrslan inniheldur eina tillögu fyrir hvert starfsár ráðsins og spanna tillögurnar vítt svið, allt frá atvinnumálum til skattamála og menntunar- og heilbrigðismála, en þær eiga allar sammerkt að þeim er ætlað að gera íslenskt hagkerfi samkeppnishæfara.
17.9.2007
Til hamingju með afmælið
Í dag eru 90 ár liðin frá stofnun Viðskiptaráðs Íslands. Í tilefni af afmælinu býður ráðið félagsmönnum sínum og velvildarmönnum til afmælisfundar og móttöku í Salnum og Gerðarsafni, Kópavogi. Á fundinum verða 90 tillögur að bættri samkeppnishæfni Íslands kynntar og afhentar ráðherrum nýrrar ríkisstjórnar. Forsætisráðherra heldur í kjölfarið ávarp. Síðan mun rektor Háskólans í Reykjavík kynna framtíðarsýn skólans. Að lokum munu fulltrúar ríkisstjórnarinnar ræða afmælistillögur Viðskiptaráðs Íslands.
30.8.2007
Viðskiptaráð fagnar framfaraskrefi í rekstri OR
Tillaga um breytingu á rekstrarformi Orkuveitu Reykjavíkur úr sameignarfélagi í hlutafélag er skref í rétta átt og fagnar Viðskiptaráð henni. Í kjölfarið væri eðlilegt að selja fyrirtækið til einkaaðila og nýta þannig kraft einkaframtaksins í útrás íslenskra orkufyrirtækja.
28.8.2007
Ályktun - fundur Viðskiptaráða Norðurlandanna
Nú um helgina var árlegur samráðsfundur Viðskiptaráða Norðurlandanna haldinn í Reykjavík. Meginályktun fundarins var eftirfarandi: “Fulltrúar þingsins hvetja norræn stjórnvöld til að styrkja samstarf sín á milli við innleiðingu laga og reglugerða er varða viðskiptaumhverfið.”
28.8.2007
Framkvæmdastjórar ICC á Norðurlöndum funda á Íslandi
27.8.2007
Fundur norrænna viðskiptaráða
Nú um helgina var haldinn fundur Viðskiptaráða Norðurlandanna. Á fundinn mættu fulltrúar frá öllum helstu viðskiptaráðum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmerkur auk Viðskiptaráði Íslands.
8.8.2007
Ný skoðun Viðskiptaráðs - Sparisjóðaumhverfið
Á undanförnum árum hefur orðið mikil og ör þróun í starfsemi
sparisjóðanna. Nú er svo komið að þeir eru þátttakendur á flestum þeim
sviðum sem aðrir viðskiptabankar starfa. Framþróun og vöxtur
sparisjóðanna hefur leitt í ljós talsverð vandkvæði á núverandi
starfsumhverfi. Nýleg tillaga stjórnar SPRON um hlutafjárvæðingu
sjóðsins er skynsamleg tilraun til að draga úr þeim skorðum sem
lagaumhverfið setur sparisjóðunum. Það er þó ljóst að slíkur gjörningur
er óraunhæfur möguleiki fyrir marga sjóði.
27.7.2007
Vel heppnuð ráðstefna um skattamál
Í gær var haldin fjölmenn ráðstefna um möguleika til skattalækkana á Þjóðminjasafni Íslands. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands stóð fyrir ráðsstefnunni í samstarfi við fleiri aðila, m.a. Viðskiptaráð Íslands.
18.7.2007
Viðskiptaráð tekur þátt í verkefni um skattamál
Viðskiptaráð er meðal samstarfsaðila í verkefni um þau tækifæri sem felast í frekari skattalækkana. Verkefnið er leitt af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, en á meðal annarra samstarfsaðila eru Háskólinn í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamband íslenskra útvegsmanna, SI og VR.
Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni www.skattamal.is.
4.7.2007
Ný skoðun Viðskiptaráðs - Sveitarfélög og samkeppnisraskanir
Reykjavíkurborg hóf nýlega að auglýsa endurvinnslutunnur undir
pappírsúrgang fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. Hingað til hefur
borgarbúum boðist að aka með pappírsúrgang sinn í nálægar grenndarog
endurvinnslustöðvar. Um er að ræða aukna þjónustu við borgarbúa
samkvæmt auglýsingunni og er þetta hluti af áætlun Reykjavíkurborgar
um að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Aukin umhverfisvitund
forsvarsmanna borgarinnar er fagnaðarefni og til fyrirmyndar fyrir
önnur sveitarfélög.
4.7.2007
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs lagt niður
Viðskiptaráð Íslands hefur frá og með 1. júlí sagt upp verksamningi sínum við þátttakendur Upplagseftirlits Viðskiptaráðs. Upplagseftirlitið hefur verið starfrækt frá miðbiki áttunda áratugar síðustu aldar og var eftirlitið á sínum tíma nauðsynleg upplýsingaveita fyrir auglýsendur og útgefendur. Öflug íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum árum tekið við þessu hlutverki eftirlitsins og sinnt þörfum útgefenda og auglýsenda með umtalsvert betri hætti sem er fagnaðarefni að mati ráðsins.
Viðskiptaráð vill þakka þátttakendum Upplagseftirlitsins fyrir ánægjulegt samstarf undanfarin ár og óskar þeim velfarnarðar í framtíðinni.
3.7.2007
Nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Dr. Finnur Oddsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Finnur tekur við starfinu af Höllu Tómasdóttur sem lætur af störfum í haust til að stofna eigið fyrirtæki. Finnur er doktorsmenntaður í frammistöðustjórnun í Bandaríkjunum en þar starfaði hann einnig sem ráðgjafi hjá Aubrey Daniels International í þrjú ár. Hann hefur starfað hjá Háskólanum í Reykjavík undanfarin sex ár sem lektor við viðskiptadeild, framkvæmdastjóri Stjórnendaskóla HR og sem forstöðumaður MBA náms. Finnur mun áfram gegna stöðu lektors við Háskólann í Reykjavík meðfram nýju starfi.
3.7.2007
Samningi um Samræmda vefmælingu sagt upp
Viðskiptaráð Íslands hefur frá og með 1. júlí sagt upp samstarfssamningi sínum við Modernus ehf. um Samræmda vefmælingu. Samræmd vefmæling verður því framvegis eingöngu á vegum Modernus ehf. Er uppsögn þessi liður í endurskipulagningu ákveðinna þátta í starfsemi ráðsins.
Viðskiptaráð vill þakka Modernus ehf. og þátttakendum Samræmdar vefmælingar fyrir ánægjulegt samstarf undanfarin ár og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
29.5.2007
Viðskiptaráð veitir verðlaun fyrir námsárangur
Eitt af hlutverkum Viðskiptaráðs er stuðningur við menntun í landinu og er ráðið helsti bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Þann 26. maí síðastliðinn fór fram útskrift við Verslunarskóla Íslands. Um langt skeið hefur Viðskiptaráð veitt viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur við útskrift.
25.5.2007
Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn farsældar í starfi
Viðskiptaráð óskar nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar farsældar í starfi sínu á komandi kjörtímabili. Það er ljóst að fjölmörg brýn verkefni liggja fyrir og sterkur þingmeirihluti nýrrar ríkisstjórnar kemur tvímælalaust til að styðja við þá vinnu.
16.5.2007
Fjölmiðlafundur Viðskiptaráðs Íslands og Glitnis
4.5.2007
Velheppnað málþing um traust og trúverðugleika
Í gær var haldið málþing um traust og trúverðugleika í Salnum, Kópavogi, á vegum AP almannatenglsa, Viðskiptaráðs Íslands og Capacent. Á þinginu fluttu erindi þau Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, David Brain, framkvæmdastjóri Edelman í Evrópu og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknastjóri Capacent. Jafnframt fóru fram fjörugar pallborðsumræður þar sem fulltrúar viðskiptalífs, fjölmiðla og stjórnmálamanna ræddu helstu niðurstöður íslensku könnunarinnar og báru saman við niðurstöður alþjóðlegu könnunar Edelman.
4.5.2007
Frumkvöðlasjóður stofnaður
Í gær var undirritaður stofnsamningur frumkvöðlasjóðs Dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík. Sjóðnum er ætlað að stuðla að því frumkvöðlastarfi sem grunnur var lagður að innan HR í starfstíð Guðfinnu. Stofnupphæð sjóðsins er fimm milljónir króna og leggur Bakkavör til alla upphæðina.
25.4.2007
Ný skoðun Viðskiptaráðs
Nú þegar líður að kosningum spretta loforð stjórnmálaflokka landsins upp eins og krókusar að vori. Mörg af þeim eru góð, önnur verri og ýmis slæm. Aðstæður eru um margt óvenjulegar í hagkerfinu um þessar mundir og því eðlilegt að taka tillit til þeirra þegar loforðin eru lögð fram. Í því samhengi er vert að benda á skoðun Viðskiptaráðs frá því í haust þar sem bent var á mikilvægi þess að halda kosningaþenslu í lágmarki.
Með loforðum sínum og orðræðu fyrir kosningar gefa stjórnmálaflokkar til kynna áherslur sínar og stefnu. Viðskiptaráð hefur ávallt leitast við að vera stefnumótandi afl með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni íslensks hagkerfis og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Það er því ekki úr vegi að benda á æskileg kosningaloforð, hafi stjórnmálaflokkar landsins hug á að fylgja sömu markmiðum.
24.4.2007
Fjölsótt ráðstefna um einkaframkvæmd
Yfir 100 gestir sóttu ráðstefnu um einkaframkvæmd sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í gær. Ráðstefnan var samstarfsverkefni ýmissa aðila, en auk Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík komu að verkefninu Samtök atvinnulífsins, KPMG, Glitnir, Þyrping, Nýsir, ÍAV, Seltjarnarnesbær, Baugur, Sjóvá og Milestone.
23.4.2007
Heppilegt fyrir opinbera aðila að selja fasteignir sínar
Heppilegt væri fyrir ríki og sveitarfélög að selja fasteignir sínar fasteignafélögum og leigja þær svo af þeim. Þetta er niðurstaða skýrslu sem Viðskiptaráð Íslands hefur gefið út og verður kynnt á ráðstefnu um einkaframkvæmd sem haldin verður í Háskólann í Reykjavík í dag klukkan 15:30.
19.4.2007
Vel sóttur fundur um samstarfsverkefni við UNDP
Vel var mætt á fund sem haldinn var í tilefni af undirritun samstarfsverkefnis utanríkisráðuneytisins og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands.
3.4.2007
Forsætisráðherra Svíþjóðar heimsækir VÍ
Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, kom í stutta opinbera heimsókn til landsins í gær. Hann kom til landsins um morguninn og hélt til hádegisfundar með Geir H. Haarde forsætisráðherra. Eftir fund sinn með forsætisráðherranum heimsótti Reinfeldt skrifstofur Viðskiptaráðs Íslands þar sem hann ræddi framrás íslenskra fyrirtækja við stjórnendur úr atvinnulífinu.
27.3.2007
Atkvæði kvenna, fjölmennur fundur
Afar góð mæting var á fund Viðskiptaráðs, Atkvæði kvenna, en ríflega 100 manns sóttu fundinn. Á fundinum héldu konur úr atvinnulífinu framsögur um hagsmunamál er varða þeirra starfsvettvang og spurðu forystumenn stjórnmálaflokkanna spurninga þeim tengdum. Fyrirkomulag fundarins var þannig að framsögumenn settu fram eina spurningu í lok hvers erindis og höfðu stjórnmálaleiðtogarnir 5 mínútur hver til að svara spurningunum 5. Fundarstjóri var Kristján Kristjánsson, forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group.
21.3.2007
Samstarfssamningur við MIT háskólann í Boston
Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með nýjum samstarfssamningi íslensks atvinnulífs við MIT háskólann í Boston í umboði Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs.
18.3.2007
Ráðstefnu um einkaframkvæmd frestað
Fyrirhugaðri ráðstefna um einkaframkvæmd sem halda átti 22. mars hefur verið frestað.
9.3.2007
Umfjöllun um Ísland í the Wall Street Journal
Fjallað er um þann árangur sem náðst hefur í íslensku hagkerfi með skattabreytingum síðustu ára á vefsíðu tímaritsins the Wall Street Journal.
8.3.2007
Mannabreytingar hjá Viðskiptaráði
Haraldur Ingi Birgisson hefur verið ráðinn sem lögfræðiráðgjafi hjá Viðskiptaráði Íslands. Haraldur mun ljúka meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík í vor. Hann hefur áður starfað hjá Landsbankanum og Sparisjóði Kópavogs.
Davíð Þorláksson, sem verið hefur lögfræðingur Viðskiptaráðs frá 2005, hefur horfið til annarra starfa hjá nýjum fjárfestingabanka, Askar Capital hf., sem er að stærstum hluta í eigu Milestone. Áður en hann gekk til liðs við Viðskiptaráð starfaði hann m.a. hjá Íbúðalánasjóði.
5.3.2007
Nýr starfsmaður á skrifstofu
Hulda Sigurjónsdóttir er nýr starfsmaður á skrifstofu Viðskiptaráðs Íslands. Hún mun sinna margvíslegum verkefnum, s.s. útgáfu ATA Carnet skírteina, upprunavottorðum, síma og móttöku.
Hulda hefur fjölbreytta menntun og reynslu að baki. Hún hefur stúdentspróf frá FB, sveinspróf í kjólasaum og diploma í förðunarfræði. Hún bjó í Madrid og Kuala Lumpur síðustu tvö árin, en hefur nú kastað akkeri á Íslandi.
1.3.2007
Simon Anholt
Vegna umfjöllunar um Simon Anholt í grein Viðskiptablaðsins þann 23. febrúar sl. telur Viðskiptaráð mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri. Í umræddri grein kemur fram að erfiðlega hafi reynst að fá upplýsingar um menntun og reynslu Anholt. Síkar fullyrðingar eru algjörlega úr lausu lofti gripnar enda er Viðskiptaráð boðið og búið til að veita umræddar upplýsingar.
20.2.2007
Íslensku skattaumhverfi hrósað
Daniel J. Mitchell, skattasérfræðingur, hrósaði íslensku skattaumhverfi í viðtali á heimasíðu Cato stofnunarinnar nýverið. Cato stofnunin í Washington er ein sú virtasta á sviði skattaumbóta í heiminum. Í viðtalinu var rætt við Mitchell um kosti flatra skatta og sagði hann að ef Bandaríkjamenn færu sömu leið og Íslendingar myndi þeir sjá framfarir á borð við þær sem verið hafa á Íslandi að undanförnu.
9.2.2007
Metþátttaka á Viðskiptaþingi 2007
Hátt í 500 manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands og er það meiri þátttaka en nokkurn tíma áður. Meðal gesta voru lykilmenn í íslensku viðskiptalífi, ráðherrar, þingmenn, fræðimenn, erlendir sendiherrar og embættismenn. Yfirskrift þingsins var að þessu sinni: „Ísland, best í heimi?“ og þingið var tileinkað alþjóðlegu orðspori og ímynd Íslands.
7.2.2007
Hvernig verður Ísland best í heimi?
Viðskiptaráð verður 90 ára á þessu ári, en frá upphafi hefur ráðið lagt sig í framkróka um að vera í fararbroddi nýrra hugmynda um umhverfi atvinnulífsins. Á Viðskiptaþingi í dag kynnti Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, nýja stefnuskrá þar sem fjallað er um helstu skilyrði sem þurfa að vera til staðar svo Ísland verði best í heimi.
7.2.2007
Forsætisráðherra boðar frekari umbætur í skattamálum
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, boðaði frekari umbætur í skattamálum í ræðu sinni á Viðskiptaþingi í dag.
7.2.2007
Menntamálaráðherra afhendir námsstyrki Viðskiptaráðs
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti námsstyrki Viðskiptaráðs á árlegu Viðskiptaþingi sem haldið var á Nordica hóteli í dag. Það er löng hefð fyrir því á Viðskiptaþingi að veita styrki úr námssjóði Viðskiptaráðs. Undanfarin ár hefur þremur efnilegum námsmönnum verið veittur styrkur.
7.2.2007
Samstillt átak þarf til að bæta ímynd Íslands
Ímynd Íslands er ekki nægjanlega sterk. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem gerð var í 35 löndum meðal hátt í 30 þúsund manna og kynnt var á Viðskiptaþingi 2007 í dag. Ísland varð í 19. sæti meðal þeirra 38 landa sem rannsökuð voru. Þeir þættir sem eru skoðaðir eru útflutningur, stjórnhættir, menning og saga, fólkið, ferðamennska og innflutningur fólks og fjárfestingar.
7.2.2007
Formaður Viðskiptaráðs: Ástand gengismála óviðunandi
Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs, sagði í setningarræðu Viðskiptaþings 2007 að það yrði ekki unað við núverandi ástand gengismála mikið lengur.
6.2.2007
Viðskiptaþing 2007 haldið á morgun
Metþátttaka verður á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, eða hátt í 500 manns og er þegar uppselt á þingið. Meðal gesta verða lykilmenn í íslensku viðskiptalífi, ráðherrar, þingmenn, fræðimenn, erlendir sendiherrar og embættismenn. Þingið verður haldið á Nordica hótel milli klukkan 13:30 og 16:30 á morgun. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: „Ísland, best í heimi?“ og er tileinkað alþjóðlegu orðspori og ímynd Íslands.
30.1.2007
Stefnir í metþátttöku á Viðskiptaþing
Þegar hafa hátt í 400 manns skráð sig á árlegt Viðskiptaþing sem haldið verður á miðvikudaginn í næstu viku. Salurinn tekur aðeins 450 manns í sæti og því er mikilvægt að þeir sem vilja mæta skrái sig sem allra fyrst.
23.1.2007
26 sóttu um námsstyrki Viðskiptaráðs
Alls sóttu 26 um námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands, en umsóknarfrestur rann út á föstudaginn. Þetta er svipaður fjöldi og í fyrra, en þá sóttu 25 um. Að þessu sinni bárust umsóknir frá 13 konum og 13 körlum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, mun afhenta styrkina á Viðskiptaþingi 7. febrúar n.k.
22.1.2007
Viðskiptaráð verðlaunar námsmenn við útskrift HR
Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs Íslands, afhenti dúxum hverrar deildar verðlaun við útskrift HR sem fram fór laugardaginn 20. janúar s.l. Að þessu sinni voru það Sara Margareta Fuxén sem hlaut verðlaun fyrir afbragðs árangur í viðskiptadeild, Ólafur E. Friðriksson fyrir árangur í lagadeild og Sigurjón Þorsteinsson fyrir árangur í tækni- og verkfræðideild.
19.1.2007
Arna Harðardóttir ráðin til Viðskiptaráðs
Arna Harðardóttir hefur verið ráðin til Viðskiptaráðs Íslands. Hún mun starfa sem fjármálastjóri Viðskiptaráðs og Sjálfseignarstofnunar Viðskiptaráðs um viðskiptamenntun, sem á og rekur Háskólann í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands.
17.1.2007
Framkvæmdastjóri VÍ hlýtur verðlaun FKA
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) veitti þremur konum viðurkenningar í dag. Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, hlaut aðalverðlaun félagsins fyrir framúrskarandi frammistöðu í viðskiptum og atvinnurekstri.
16.1.2007
Umsóknarfrestur vegna námsstyrkja rennur út á föstudag
Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn styrkjanna er veittur úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.
16.1.2007
Viðskiptafrelsi mikið á Íslandi
Ísland er í 9. til 10. sæti, ásamt Lúxemborg, yfir lönd þar sem viðskiptafrelsi er hvað mest. Frelsisvísitala er reiknuð út fyrir hvert hinna 127 landa sem skoðuð eru. Litið er til stærðar hins opinbera, réttarkerfis og verndar eignarréttarins, aðgengi að traustum gjaldmiðli, frelsi til að eiga viðskipti við útlendinga og reglna um fjármálamarkaði, vinnuafl og fyrirtæki.







