Fréttir
13.12.2007
Aðalfundur Dansk-íslenska viðskiptaráðsins
Aðalfundur ráðsins var haldinn í Norrænahúsinu í gær. Að loknum hefðbundum aðalfundarstörfum ávörpuðu sendiherra Dana á Islandi Lasse Reiman og Einar Már Guðmundsson rithöfundur fundinn.
11.12.2007
Morgunverðarfundur: Milliverðlagning (Transfer Pricing)
Tæplega 80 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs og PriceWaterhouseCoopers á Grand Hótel nú í morgun. Efni fundarins voru milliverðlagsreglur, en slíkar reglur hafa verið í mikilli þróun undanfarin ár hjá nágrannaríkjum okkar. Á fundinum fjölluðu Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri skattasviðs Ríkisskattstjóra, Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar Landsbankans og Ian Dykes, meðeigandi hjá PwC í Bretlandi um milliverðlagsreglur og hugsanlega nálgun hérlendis.
5.12.2007
Morgunverðarfundur um þróun íslenks fjármálamarkaðar
Um 80 manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík um þróun íslensks fjármálamarkaðar sem haldinn var nú í morgun. Á fundinum Kynnti dr. Friðrik Már Baldursson nýja skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um stöðu og og framþróun fjármálakerfis Íslands. Skýrslan ber nafnið „The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector“ eða “Alþjóðavæðing íslenska fjármálakerfisins” og er rituð af þeim dr. Richard Portes prófessor við London Business School og dr. Friðriki Má Baldurssyni prófessor við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Frosta Ólafsson hagfræðing Viðkskiptaráðs.







