Fréttir
27.3.2007
Atkvæði kvenna, fjölmennur fundur
Afar góð mæting var á fund Viðskiptaráðs, Atkvæði kvenna, en ríflega 100 manns sóttu fundinn. Á fundinum héldu konur úr atvinnulífinu framsögur um hagsmunamál er varða þeirra starfsvettvang og spurðu forystumenn stjórnmálaflokkanna spurninga þeim tengdum. Fyrirkomulag fundarins var þannig að framsögumenn settu fram eina spurningu í lok hvers erindis og höfðu stjórnmálaleiðtogarnir 5 mínútur hver til að svara spurningunum 5. Fundarstjóri var Kristján Kristjánsson, forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group.
21.3.2007
Samstarfssamningur við MIT háskólann í Boston
Háskólinn í Reykjavík hefur umsjón með nýjum samstarfssamningi íslensks atvinnulífs við MIT háskólann í Boston í umboði Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs.
18.3.2007
Ráðstefnu um einkaframkvæmd frestað
Fyrirhugaðri ráðstefna um einkaframkvæmd sem halda átti 22. mars hefur verið frestað.
9.3.2007
Umfjöllun um Ísland í the Wall Street Journal
Fjallað er um þann árangur sem náðst hefur í íslensku hagkerfi með skattabreytingum síðustu ára á vefsíðu tímaritsins the Wall Street Journal.
8.3.2007
Mannabreytingar hjá Viðskiptaráði
Haraldur Ingi Birgisson hefur verið ráðinn sem lögfræðiráðgjafi hjá Viðskiptaráði Íslands. Haraldur mun ljúka meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík í vor. Hann hefur áður starfað hjá Landsbankanum og Sparisjóði Kópavogs.
Davíð Þorláksson, sem verið hefur lögfræðingur Viðskiptaráðs frá 2005, hefur horfið til annarra starfa hjá nýjum fjárfestingabanka, Askar Capital hf., sem er að stærstum hluta í eigu Milestone. Áður en hann gekk til liðs við Viðskiptaráð starfaði hann m.a. hjá Íbúðalánasjóði.
5.3.2007
Nýr starfsmaður á skrifstofu
Hulda Sigurjónsdóttir er nýr starfsmaður á skrifstofu Viðskiptaráðs Íslands. Hún mun sinna margvíslegum verkefnum, s.s. útgáfu ATA Carnet skírteina, upprunavottorðum, síma og móttöku.
Hulda hefur fjölbreytta menntun og reynslu að baki. Hún hefur stúdentspróf frá FB, sveinspróf í kjólasaum og diploma í förðunarfræði. Hún bjó í Madrid og Kuala Lumpur síðustu tvö árin, en hefur nú kastað akkeri á Íslandi.
1.3.2007
Simon Anholt
Vegna umfjöllunar um Simon Anholt í grein Viðskiptablaðsins þann 23. febrúar sl. telur Viðskiptaráð mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri. Í umræddri grein kemur fram að erfiðlega hafi reynst að fá upplýsingar um menntun og reynslu Anholt. Síkar fullyrðingar eru algjörlega úr lausu lofti gripnar enda er Viðskiptaráð boðið og búið til að veita umræddar upplýsingar.







