Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25.4.2007

Ný skoðun Viðskiptaráðs

Nú þegar líður að kosningum spretta loforð stjórnmálaflokka landsins upp eins og krókusar að vori. Mörg af þeim eru góð, önnur verri og ýmis slæm. Aðstæður eru um margt óvenjulegar í hagkerfinu um þessar mundir og því eðlilegt að taka tillit til þeirra þegar loforðin eru lögð fram. Í því samhengi er vert að benda á skoðun Viðskiptaráðs frá því í haust þar sem bent var á mikilvægi þess að halda kosningaþenslu í lágmarki.

Með loforðum sínum og orðræðu fyrir kosningar gefa stjórnmálaflokkar til kynna áherslur sínar og stefnu. Viðskiptaráð hefur ávallt leitast við að vera stefnumótandi afl með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni íslensks hagkerfis og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Það er því ekki úr vegi að benda á æskileg kosningaloforð, hafi stjórnmálaflokkar landsins hug á að fylgja sömu markmiðum.

24.4.2007

Fjölsótt ráðstefna um einkaframkvæmd

Yfir 100 gestir sóttu ráðstefnu um einkaframkvæmd sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í gær. Ráðstefnan var samstarfsverkefni ýmissa aðila, en auk Viðskiptaráðs og Háskólans í Reykjavík komu að verkefninu Samtök atvinnulífsins, KPMG, Glitnir, Þyrping, Nýsir, ÍAV, Seltjarnarnesbær, Baugur, Sjóvá og Milestone.

23.4.2007

Heppilegt fyrir opinbera aðila að selja fasteignir sínar

Heppilegt væri fyrir ríki og sveitarfélög að selja fasteignir sínar fasteignafélögum og leigja þær svo af þeim. Þetta er niðurstaða skýrslu sem Viðskiptaráð Íslands hefur gefið út og verður kynnt á ráðstefnu um einkaframkvæmd sem haldin verður í Háskólann í Reykjavík í dag klukkan 15:30.

19.4.2007

Vel sóttur fundur um samstarfsverkefni við UNDP

Vel var mætt á fund sem haldinn var í tilefni af undirritun samstarfsverkefnis utanríkisráðuneytisins og Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands.

3.4.2007

Forsætisráðherra Svíþjóðar heimsækir VÍ

Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, kom í stutta opinbera heimsókn til landsins í gær. Hann kom til landsins um morguninn og hélt til hádegisfundar með Geir H. Haarde forsætisráðherra. Eftir fund sinn með forsætisráðherranum heimsótti Reinfeldt skrifstofur Viðskiptaráðs Íslands þar sem hann ræddi framrás íslenskra fyrirtækja við stjórnendur úr atvinnulífinu.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta