Fréttir
27.7.2007
Vel heppnuð ráðstefna um skattamál
Í gær var haldin fjölmenn ráðstefna um möguleika til skattalækkana á Þjóðminjasafni Íslands. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands stóð fyrir ráðsstefnunni í samstarfi við fleiri aðila, m.a. Viðskiptaráð Íslands.
18.7.2007
Viðskiptaráð tekur þátt í verkefni um skattamál
Viðskiptaráð er meðal samstarfsaðila í verkefni um þau tækifæri sem felast í frekari skattalækkana. Verkefnið er leitt af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, en á meðal annarra samstarfsaðila eru Háskólinn í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamband íslenskra útvegsmanna, SI og VR.
Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni www.skattamal.is.
4.7.2007
Ný skoðun Viðskiptaráðs - Sveitarfélög og samkeppnisraskanir
Reykjavíkurborg hóf nýlega að auglýsa endurvinnslutunnur undir
pappírsúrgang fyrir einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög. Hingað til hefur
borgarbúum boðist að aka með pappírsúrgang sinn í nálægar grenndarog
endurvinnslustöðvar. Um er að ræða aukna þjónustu við borgarbúa
samkvæmt auglýsingunni og er þetta hluti af áætlun Reykjavíkurborgar
um að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Aukin umhverfisvitund
forsvarsmanna borgarinnar er fagnaðarefni og til fyrirmyndar fyrir
önnur sveitarfélög.
4.7.2007
Upplagseftirlit Viðskiptaráðs lagt niður
Viðskiptaráð Íslands hefur frá og með 1. júlí sagt upp verksamningi sínum við þátttakendur Upplagseftirlits Viðskiptaráðs. Upplagseftirlitið hefur verið starfrækt frá miðbiki áttunda áratugar síðustu aldar og var eftirlitið á sínum tíma nauðsynleg upplýsingaveita fyrir auglýsendur og útgefendur. Öflug íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum árum tekið við þessu hlutverki eftirlitsins og sinnt þörfum útgefenda og auglýsenda með umtalsvert betri hætti sem er fagnaðarefni að mati ráðsins.
Viðskiptaráð vill þakka þátttakendum Upplagseftirlitsins fyrir ánægjulegt samstarf undanfarin ár og óskar þeim velfarnarðar í framtíðinni.
3.7.2007
Nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Dr. Finnur Oddsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Finnur tekur við starfinu af Höllu Tómasdóttur sem lætur af störfum í haust til að stofna eigið fyrirtæki. Finnur er doktorsmenntaður í frammistöðustjórnun í Bandaríkjunum en þar starfaði hann einnig sem ráðgjafi hjá Aubrey Daniels International í þrjú ár. Hann hefur starfað hjá Háskólanum í Reykjavík undanfarin sex ár sem lektor við viðskiptadeild, framkvæmdastjóri Stjórnendaskóla HR og sem forstöðumaður MBA náms. Finnur mun áfram gegna stöðu lektors við Háskólann í Reykjavík meðfram nýju starfi.
3.7.2007
Samningi um Samræmda vefmælingu sagt upp
Viðskiptaráð Íslands hefur frá og með 1. júlí sagt upp samstarfssamningi sínum við Modernus ehf. um Samræmda vefmælingu. Samræmd vefmæling verður því framvegis eingöngu á vegum Modernus ehf. Er uppsögn þessi liður í endurskipulagningu ákveðinna þátta í starfsemi ráðsins.
Viðskiptaráð vill þakka Modernus ehf. og þátttakendum Samræmdar vefmælingar fyrir ánægjulegt samstarf undanfarin ár og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.







