Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.11.2008

Fundur vegna útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands boðaði til blaðamannafundar í hádeginu í dag í tilefni af útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Leiðbeiningarnar eru samvinnuverkefni Viðskiptaráðs Íslands, Nadsaq OMX Ísland og Samtaka atvinnulífsins og eru þær byggðar á sambærilegum reglum frá Efnahags- og framfarastofnun (OECD), en þó aðlagar að íslensku umhverfi.

27.11.2008

Áfram óvissa um gjaldeyrismál

Staðan á gjaldeyrismarkaði hefur lítið breyst undanfarna daga og vikur. Gjaldeyristemprun Seðlabankans er enn við lýði og þrátt fyrir að viðskiptabankarnir þrír hafi nýlega eignast sína eigin gjaldeyrisreikninga hjá JP Morgan geta þeir enn ekki sinnt erlendri greiðslumiðlun á eigin spýtur.

27.11.2008

Stjórnarhættir opinberra fyrirtækja

Í hádeginu á morgun, föstudaginn 28. nóvember, gefa Viðskiptaráð, Kauphöll Íslands og SA út leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Meðal þeirra sem munu veita leiðbeiningunum formlega viðtöku eru Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og fulltrúar ríkisbankanna þriggja.

27.11.2008

Frumkvöðlastarf og nýsköpun

Frumkvöðla- og nýsköpunarstarfsemi kemur til með að gegna lykilhlutverki í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Af þeim sökum er mikilvægt að hlúð verði að slíku starfi og því sköpuð hagfeld skilyrði . Í þessu felst m.a. að skapa hagkvæmt rekstarumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og tryggja frumkvöðlum með góðar hugmyndir aðgengi að fjármagni til að hrinda þeim í framkvæmd.  Efla þarf sjóðakerfi til stuðnings nýsköpun (Frumtak, Nýsköpunarsjóð og Tækniþróunarsjóð) og jafnvel draga úr skilyrðum sem umsækjendur þurfa að uppfylla til hljóta styrki.

21.11.2008

Mótun og kynning skýrrar framtíðarstefnu

Nú þegar viljayfirlýsing stjórnvalda og IMF liggur fyrir er mikilvægt að stjórnvöld marki skýra sýn til framtíðar.

Samkvæmt yfirlýsingunni liggur fyrir að verulega verður dregið saman í útgjöldum hins opinbera að loknu árinu 2009. Upplýsa þarf almenning við fyrsta tækifæri um hvernig stjórnvöld hyggjast mæta þessum útgjaldaskorðum. Aukin skattheimta ætti að vera síðasta úrræði stjórnvalda, enda er ekki bætandi álögum á fjölskyldur og fyrirtæki í núverandi árferði.  Frekar ætti að leggja alla áherslu á að hagræða í rekstri ríkisins. Á því hefur verið þörf undanfarin ár, en nú sérstaklega.

19.11.2008

Aðgerðir í þágu atvinnulífsins

Framundan er tímabil efnahagslegrar endurreisnar í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins.  Verulega hefur hægst á hjólum atvinnulífs vegna gjaldeyriskreppu, veikingar krónunnar, hnökra í erlendri greiðslumiðlun, skerts aðgengis að fjármagni og almennrar óvissu sem ríkir um rekstrargrundvöll fyrirtækja. Til að draga megi sem mest úr þeim erfiðleikum sem blasa við íslenskum fyrirtækjum og heimilum hefur Viðskiptaráð tekið saman sjö atriði sem skipta sérstaklega miklu máli fyrir framtíð íslensks efnahaglífs og eru til þess fallin að halda hjólum atvinnulífsins gangandi.

19.11.2008

Viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar og IMF

Viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar og IMF hefur nú verið birt opinberlega og má segja að flest sé í takt við það sem búast mátti við. Stutta samantekt á yfirlýsingunni má nálgast hér.

18.11.2008

Fjölsóttur morgunverðarfundur um peningamál

Mikil þátttaka var á árlegum fundi Viðskiptaráðs Íslands í tilefni útgáfu peningamála á Hilton Reykjavík Nordica nú í morgun. Fast að 400 gestir sóttu fundinn, sem að þessu sinni bar yfirskriftina Fjármálakreppan – er lausn í sjónmáli? Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands fór yfir stöðu efnahagsmála í tilefni af útgáfu Peningamála. Friðrik Már Baldursson forstöðumaður Rannsóknarstofnunar um fjármál við Háskólann í Reykjavík stýrði fundinum og í pallborði sátu Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, Gylfi Zoega, deildarforseti og prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands og Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs setti fundinn.

17.11.2008

Endurreisn bankakerfis og tækifæri til framtíðar

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu, sunnudaginn 16. nóvember:


Endurreisn bankakerfis og tækifæri til framtíðar

Framundan er tímabil efnahagslegrar endurreisnar í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins.  Verulega hefur hægst á hjólum atvinnulífs vegna gjaldeyriskreppu, veikingar krónunnar, hnökra í erlendri greiðslumiðlun, skerts aðgengis að fjármagni og almennrar óvissu sem ríkir um rekstrargrundvöll fyrirtækja. Til að draga megi sem mest úr þeim erfiðleikum sem blasa við íslenskum fyrirtækjum og heimilum er nauðsynlegt að þegar verði gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að hjól atvinnulífsins stöðvist. 

17.11.2008

Gjaldfrestur á aðflutningsgjöldum og álag vegna staðgreiðslu

Samkvæmt fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu frá því á föstudaginn síðasta þá samþykkti ríkisstjórnin frumvarp fjármálaráðherra um tímabundnar breytingar á tollalögum. Frumvarpið veitir virðisaukaskattskyldum aðilum er gjaldfrest á hluta af aðflutningsgjöldum, þ.m.t. vsk., vegna innflutnings á tímabilinu september til október 2008. Greiðsla vegna þeirra féll í gjalddaga í dag, 17. nóvember, en þess í stað er aðilum heimilt að standa skil á greiðslunni með þremur jöfnum greiðslum, sú fyrsta gjaldfél í dag, sú næsta þann 15. desember 2008 og þriðja greiðslan þann 15. janúar 2009. Þeir sem kjósa að fara þessa leið greiða almenna meðalvexti af þeim hluta greiðslunnar sem frestað er í stað dráttarvaxta. Fjármálaráðherra hefur beint þeim tilmælum til tollyfirvalda að þau loki ekki fyrir tollafgreiðslu hjá þeim sem standa í skilum við aðflutningsgjöld í samræmi við ofangreint á meðan frumvarpið er til meðferðar á Alþingi.

17.11.2008

Vörugjöld og virðisaukaskattur verða endurgreidd

Fulltrúar ríkisstjórnarinnar staðfestu á blaðamannafundi nú fyrir helgi að frumvarp um endurgreiðslu vörugjalda og virðisaukaskatts af notuðum bílum við útflutning yrði lagt fyrir Alþingi á næstunni. Viðskiptaráð fagnar þessu frumvarpi enda lagðið ráðið til í skoðun, fyrir tæpu ári síðan, að endurgreiðslur af þessu tagi yrðu teknar upp. Undanfarið ár hefur Viðskiptaráð reynt að afla fulltingis hins opinbera við þessa tillögu og var hún t.a.m. sú eina af þessu tagi sem fjallað var um í skýrslu starfshóps fjármálaráðherra, þar sem lagðar voru til ýmsar breytingar á skattlagningu eldsneytis og ökutækja. Starfshópurinn sá því miður ekki ástæðu til að veita tillögunni brautargengi, en m.v. frumvarp þetta hefur hún augljóslega átt upp á pallborðið hjá ríkisstjórninni.

17.11.2008

Tilkynning frá Seðlabanka: Upplýsingar um erlendar greiðslur

Seðlabankinn hefur birt ítarlegar upplýsingar um greiðslur á milli landa þegar þær fara um Seðlabankann:

 

13.11.2008

Unnið að því að fá frest á greiðslu opinberra gjalda

Vegna erfiðrar lausafjárstöðu margra fyrirtækja hefur Viðskiptaráð, í samvinnu við fleiri aðila, beitt sér fyrir því að hið opinbera veiti frest á greiðslu opinberra gjalda, sem annars eru á gjalddaga á næstu dögum og vikum. Virðisaukaskattur vegna innflutnings er á gjalddaga 15. nóvember og vegna innanlandssölu  5. desember. Þess er farið á leit við stjórnvöld að heimilt verði að skipta og mögulega fresta greiðslum á virðisauka um tiltekinn tíma.  Þeir sem nýta sér slíka fresti myndu þó þurfa að greiða einhverja vexti. Einnig hefur verið óskað eftir sömu heimild vegna staðgreiðslu í nóvember. Nánar verður upplýst um framvindu þess máls á næstu dögum.

11.11.2008

Morgunverðarfundur með Seðlabankastjóra

Þriðjudaginn 18. nóvember stendur Viðskiptaráð fyrir árlegum morgunverðarfundi í tilefni útgáfu Peningamála. Þar mun Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræða um hagstjórnina. Þeir sem taka til máls í umræðum að lokinni framsögu eru:

11.11.2008

Mikilvægt að skila upplýsingum

Eins og Viðskiptaráð hefur áður bent á er afar brýnt að þau fyrirtæki, sem eiga eftir að skila inn ársreikningi 2007 (og í sumum tilfellum árshlutareikningi 2008), geri það hið fyrsta. Þetta er forsenda þess að erlend greiðslutryggingarfélög fáist aftur til að tryggja greiðslur íslenskra fyrirtækja. Upplýsingar sendist á reports@creditinfo.com.

11.11.2008

Leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja gefnar út á næstunni

Viðskiptaráð Íslands hefur í samstarfi við Kauphöllina og Samtök Atvinnulífsins þróað leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja að fyrirmynd OECD. Vinna þessi er nú á lokastigi. Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Birgisson, lögfræðingur Viðskiptaráðs.

11.11.2008

Gjaldeyrismál

Staðan á gjaldeyrismarkaði hefur lítið breyst undanfarna daga og er temprun gjaldeyrisútflæðis Seðlabankans enn við lýði. Viðskiptabankarnir þrír, Glitnir, Landsbanki og Kaupþing, geta afgreitt erlendar greiðslur í einhverjum mæli en miðlunin er óábyggileg og miklum takmörkunum háð. Sparisjóðabankinn býr þó sem fyrr yfir greiðslumiðlunarkerfi sem virkar.

7.11.2008

Afstaða greiðslutryggingarfélaga til íslensks atvinnulífs

Eins og fjallað hefur verið um í fréttabréfi Viðskiptaráðs að undanförnu hafa erlend greiðslutryggingarfélög dregið sig markvisst út úr greiðslufallstryggingum sem tengjast rekstri íslenskra fyrirtækja.  Þetta á sérstaklega við um greiðslufallstryggingar á íslenska innflytjendur, en að auki eru félög Íslendinga sem skráð eru erlendis undir smásjá og sum hver ekki tryggð. Hér eru um verulegt hagsmunamál að ræða og nauðsynlegt að þessari þróun verði snúið við.

7.11.2008

Engar greiðslufallstryggingar án upplýsinga

Í ljósi þeirrar miklu áherslu sem erlend greiðslutryggingarfélög leggja á að fá áreiðanlegar upplýsingar um rekstur íslenskra fyrirtækja er rétt að hnykkja á því við félaga Viðskiptaráðs að tímanlega sé staðið að skilum á rekstrarupplýsingum.  Í október síðastliðnum höfðu 12% íslenskra fyrirtækja skilað ársreikning fyrir árið 2007 til RSK, en þeim skilum átti að vera lokið hjá öllum í ágúst.  Þau fyrirtæki sem byggja rekstur sinn að miklu leyti á þjónustu greiðslutryggingarfélaga (hvort sem er óbeint, hjá innflytjendum, eða beint hjá útflytjendum) geta ekki gert ráð fyrir að fá slíka þjónustu nema ítarlegar upplýsingar liggi fyrir.

7.11.2008

Gjaldeyrismál

Staðan á gjaldeyrismarkaði er lítið breytt og er temprun gjaldeyrisútflæðis Seðlabanka enn við lýði. Viðskiptabankarnir þrír geta þar af leiðandi ekki afgreitt erlendar greiðslur nema í samræmi við tilmæli Seðlabanka. Sparisjóðabankinn býr þó enn að greiðslumiðlunarkerfi sem virkar í nær öllum myntum.

Þrátt fyrir ákveðna erfiðleika í erlendri greiðslumiðlun eru mörg dæmi um að fyrirtæki hafi fundið leiðir sem virka ágætlega. Viðskiptaráð óskar hér með eftir upplýsingum um góða reynslu aðildarfélaga sinna í þessum efnum. Markmiðið er svo að koma árangursríkum aðferðum á framfæri við aðra sem geta nýtt sér þær. Vinsamlegast hafið samband við ráðið í síma 510-7100 eða með því að senda póst á dsd@vi.is.

6.11.2008

Uppfært upplýsingaskjal

Uppfært upplýsingaskjal handa erlendum aðilum um stöðu mála á Íslandi er nú hægt að nálgast á vef Viðskiptaráðs. Skjalið er hér.

5.11.2008

Glærusett um fjármálakrísuna á Íslandi

Viðskiptaráð hefur útbúið glærusett um fjármálakrísuna á Íslandi handa erlendum aðilum. Glærurnar eru á ensku og þær má nálgast hér.

5.11.2008

Glærusett um styrkleika íslenska hagkerfisins

Viðskiptaráð hefur útbúið glærusett um styrklieka íslenska hagkerfisins handa erlendum aðilum. Glærurnar eru á ensku og þær má nálgast hér.

4.11.2008

Erlend greiðslumiðlun gengur betur

Ennþá eru hnökrar á erlendri greiðslumiðlun en þó eru einhver merki þess að ástandið sé að skána. Bankarnir geta afgreitt erlendar greiðslur að einhverju leyti um hjáleið í gegnum Seðlabankann og Sparisjóðabankinn býr sem fyrr að greiðslumiðlunarkerfi sem virkar. Þá sendi Seðlabankinn frá sér tilkynningu í gær þar sem sagt er að greiðslumiðlun til og frá Bretlandi gangi nú betur en áður. Þetta eru ánægjulegar fréttir, enda hafa hnökrar á greiðslum í pundum verið umtalsverðir upp á síðskastið.

Líklegt er að ástandið á gjaldeyrismarkaði haldi áfram að skána á næstu dögum og vikum þótt ólíklegt sé að gjaldeyrishöft Seðlabankans verði að fullu afnumin í náinni framtíð. Ekki verður unnt að afnema gjaldeyrishöft fyrr en endanlegt samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn liggur fyrir sem og upplýsingar um lánveitingar til Íslands.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta