Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23.12.2008

Jólakveðja frá Viðskiptaráði

Viðskiptaráð Íslands óskar aðildarfélögum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Í stað þess að senda út prentuð jólakort mun Viðskiptaráð afhenda Mæðrastyrksnefnd peningagjöf sem samsvarar kostnaði við prentun korta.

22.12.2008

Frestun frumvarps um RÚV

Menntamálanefnd Alþingis ákvað nú fyrir helgi að fresta afgreiðslu frumvarps um RÚV, sem fól m.a. í sér takmarkanir á heimild stofnunarinnar til sölu auglýsinga. Nefndin taldi nauðsynlegt að tillögur um takmörkun RÚV á auglýsingamarkaði yrðu útfærðar nánar af þeim starfshópi sem starfað hefur á vegum menntamálaráðuneytisins. Að auki lagði nefndin til að hópurinn myndi samhliða þeirri vinnu leggja fram tillögur að reglum um eignarhald á fjölmiðlum.

22.12.2008

Fyrirtækjum heimilt að gera upp í erlendri mynt

Ný lög sem framlengja frest fyrirtækja til að sækja um heimild til uppgjörs í erlendri mynt fyrir árið 2008 voru samþykkt fyrir helgi. Lögin gera fyrirtækjum jafnframt kleift að sækja um heimild til uppgjörs í erlendri mynt fyrir næsta ár, en almennt rann sá umsóknarfrestur út fyrir tæpum tveimur mánuðum. Fyrirtæki þurfa eftir sem áður að uppfylla skilyrði 8. gr. ársreikningslaga og reglugerðar nr. 101/2007 til að hljóta þá heimild.

22.12.2008

Atvinnulausum verði gert kleift að stunda háskólanám

Með hliðsjón af aðstæðum á vinnumarkaði þarf ekki að undrast að ásókn í háskólanám skuli hafa aukist til muna nú um áramót. Þrátt fyrir að rekstur hins opinbera standi höllum fæti og mikilvægt sé að sýna aðhald á öllum sviðum telur Viðskiptaráð ekki skynsamlegt að takmarka þann fjölda sem boðið verði að stunda háskólanám á næsta ári.

22.12.2008

Lífeyrissjóðir fái aukið svigrúm til rástöfunar fasteigna

Í 9. lið nýlegrar aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í þágu fyrirtækja er lýst yfir vilja til að greiða fyrir langtímaeign lífeyrissjóða á fasteignum sem þeir hafa lánað fyrir. Þessi breyting er vissulega þörf, enda mega lífeyrissjóðir einungis halda slíkum eignum  í 18 mánuði nema í undantekningartilfellum. Fjármálaeftirlitið hefur túlkað skilyrði þess að sjóðirnir dragi sölu eigna mjög þröngt og því hafa undantekningartilfellin líklega verið færri en hagkvæmt væri. Það hefur leitt til þess að sjóðirnir hafi m.a. þurft að selja eignir á óheppilegum tíma, sem er engum til hagsbóta.

19.12.2008

Komum upp úr skotgröfunum

Eftirfarandi grein eftir Frosta Ólafsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands, birtist í Viðskiptablaðinu í gær:

Það er ljóst að mikil og erfið vandamál blasa við okkur á næstu mánuðum. Hrun fjármálakerfisins hefur þegar haft gríðarmikil áhrif á skuldastöðu fyrirtækja og heimila í landinu og almennt aðgengi að fjármagni. Fjármagnskostnaður er í hæstu hæðum og eftirspurn dregst hratt saman. Verðlag hefur farið hækkandi og kaupmáttur launa rýrnað samhliða.

19.12.2008

Lækka þarf stýrivexti

Fyrr í vikunni var sögulegur vaxtaákvörðunarfundur í Seðlabanka Bandaríkjanna þegar stýrivextir vestanhafs voru lækkaðir niður í 0,25% sem er sögulegt lágmark. Er þetta gert til að örva hagkerfið og sporna þar með gegn fjármálakreppunni. Ljóst er að Ísland er eitt fárra landa í heiminum - ef ekki það eina - þar sem stýrivextir hafa ekki verið lækkaðir. Þvert á móti voru vextir Seðlabanka Íslands hækkaðir í 18% fyrir fáeinum vikum í þeim tilgangi að fyrirbyggja fjármagnsflótta.

19.12.2008

Erlendar ávísanir

Íslensk fyrirtæki hafa undandarið átt í vandræðum með að innleysa erlendar ávísanir í íslensku bönkunum, nánar tiltekið Kaupþingi, Landsbanka og Glitni. Ástæðan er sú að til þess að geta leyst inn erlendar ávísanir þurfa innlendir bankar að vera með traust sambönd við erlenda banka, en þessi sambönd duttu öll niður í byrjun október. Aftur á móti hafa sparisjóðirnir getað innleyst erlendar ávísanir fyrir sína viðskiptavini og þeir hafa einnig tekið við ávísunum frá öðrum til innheimtu, en það getur tekið allt upp í nokkrar vikur að fá slíkt greitt.

19.12.2008

Seðlabankinn skerpir á reglum um gjaldeyrismál

Fyrir stuttu var tilkynnt um breytingar á nýsettum gjaldeyrisreglum. Meginbreytingarnar eru þær að ríki og sveitarfélögum hefur verið veitt undanþága frá reglunum sem og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis og sveitarfélaga, sem starfa samkvæmt sérlögum. Fyrirtæki sem eru aðilar að fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og fyrirtæki sem fengið hafa leyfi iðnaðarráðherra til olíuleitar eru einnig undanþegin reglunum. Þá er skilanefndum sem skipaðar eru á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki veitt undanþága.

19.12.2008

Nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið – ekki gengið nógu langt

Menntamálanefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar frumvarp menntamálaráðherra sem miðar m.a. að því að gera starfsemi RÚV gagnsærri og bæta samkeppnisumhverfi fjölmiðla hér á landi.

15.12.2008

Ályktun stjórnar Viðskiptaráðs Íslands um aðild Íslands að Evrópusambandinu

Vegna núverandi efnhagsaðstæðna og mikilvægi þess að sem fyrst verði komið á meiri vissu um framtíðarskipan peningamála hefur stjórn Viðskiptaráðs Íslands ályktað um afstöðu ráðsins til mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.  Ályktunin var samþykkt á fundi stjórnar Viðskiptaráðs í liðinni viku:

12.12.2008

Ný lög skapa aukinn verðbólguþrýsting

Alþingi afgreiddi í gær lög um hækkun gjalda á áfengi, tóbaki, olíu og bifreiðum. Í fjárlögum næsta árs var gert fyrir að þessi gjöld myndu alls hækka um 11,5% á næsta ári, en í þessum nýju lögum, sem taka gildi strax, nemur hækkunin 12,5%. Ljóst að lög þessi eru til þess fallin að kynda undir verðbólgu, en hið opinbera ætti einmitt að gera allt sem í sínu valdi stendur til að draga úr verðbólguþrýstingi við núverandi ástand.

11.12.2008

Tekjuskattur hækkaður og hækkun útsvars heimiluð

Um leið og ríkisstjórnin kynnti hagræðingaraðgerðir við 2. umræðu fjárlaga í dag var lagt til að tekjuskattur á einstaklinga yrði hækkaður um 1%, úr 22,75% í 23,75%. Að auki hyggst ríkisstjórnin veita heimild til hækkunar útsvars sveitafélaga og er það rökstutt á þann veg að slíkt leiði til tekjuhækkunar fyrir sveitarfélög sem mun koma til móts við aukaframlög úr jöfnunarsjóði, sem að óbreyttu munu falla niður.

11.12.2008

Útgjöld hins opinbera hækka minna en áður var gert ráð fyrir

Ríkisstjórnin kynnti í dag sparnaðaraðgerðir við 2. umræðu fjárlaga, en samkvæmt tillögunum er gert ráð fyrir að sparnaður í rekstrarútgjöldum og tekjutilfærslum nemi um 24 milljörðum eða 5,7% af heildarútgjöldum ríkissjóðs til þessara málaflokka. Vissulega ber að fagna viðleitni ríkisstjórnarinnar til að hagræða í rekstri sínum, en engu að síður er framsetning þessara sparnaðaraðgerða villandi. Í raun er ekki um eiginlegan sparnað að ræða, heldur einungis áform um að auka ríkisútjgjöld minna en upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlögum næsta árs.

10.12.2008

Frumvarp um að félög geti gert upp í erlendri mynt

Lagt hefur verið fram frumvarp um að fyrirtæki geti sótt um heimild til ársreikningaskrár til að færa uppgjör í erlendri mynt. Heimildin tekur gildi á þessu ári fyrir 15. desember. Er þetta gert vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru í íslensku efnahagslífi.

9.12.2008

Upplýsingaskjal handa greiðslutryggingafélögum

Eins og áður hefur komið fram eru mörg erlend greiðslutryggingafélög hætt að veita íslenskum fyrirtækjum þjónustu. Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að úrlausn þessa vandamáls í samstarfi við fleiri aðila og gengur sú vinna vel.

Viðskiptaráð hefur nú útbúið upplýsingaskjal handa þessum fyrirtækjum þar sem m.a. er fjallað um stöðu efnahagsmála, endurskipulagningu bankakerfisins og hvernig hægt er að nálgast upplýsingar um fjárhag íslenskra fyrirtækja. Skjal þetta má nálgast hér, en aðildarfélagar Viðskiptaráðs geta e.t.v. nýtt sér það í samskiptum sínum við erlenda aðila.

4.12.2008

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið hefur fjármálaráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga á morgun, 5. desember. Sú niðurfelling gildir í eina viku eða til 12. desember 2008.

2.12.2008

Aðgerðir í þágu fyrirtækja

Ríkisstjórnin kynnti í dag aðgerðaáætlun í þágu íslenskra fyrirtækja. Aðgerðum ríkisstjórnarinnar ber að fagna enda staða atvinnulífsins mjög alvarleg um þessar mundir. Algert forgangsmál er að tryggja viðunandi rekstrarumhverfi fyrirtækja enda er öflugt atvinnulíf grunnforsenda hagsældar.

2.12.2008

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs í Kastljósi

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins í gær, mánudaginn 1. desember. Til umræðu voru ný gjaldeyrislög sem samþykkt voru fyrir helgi. Finnur gagnrýndi lögin og lýsti yfir efasemdum um nytsemi þeirra. Benti hann m.a. á að lögin kæmu í veg fyrir að eðlileg uppbygging íslensks viðskiptalífs gæti átt sér stað. Lögin hefti ekki einungis útflæði fjármagns, heldur einnig innflæði, og skaði trúverðugleika Íslands til framtíðar.

2.12.2008

Ný skoðun Viðskiptaráðs: Forðast ber skattahækkanir

Undanfarin ár hefur hið opinbera skilað afgangi í rekstri sínum enda hafa skatttekjur vaxið með miklum hraða. Í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins er ljóst að allir tekjustofnar hins opinbera munu dragast verulega saman og verg skuldastaða versna til muna. Samkvæmt bráðabirgðamati stjórnvalda er áætlað að vergur kostnaður vegna innstæðutrygginga og endurfjármögnunar fjármálakerfisins nemi um 80% af landsframleiðslu. Að viðbættum kostnaði af auknum halla hins opinbera árið 2009 er gert ráð fyrir að vergar skuldir hins opinbera aukist úr 29% af landsframleiðslu í lok árs 2007 í 109% af landsframleiðslu í árslok 2009.

1.12.2008

Uppfært upplýsingaskjal handa erlendum aðilum

Upplýsingaskjal handa erlendum aðilum, "The Icelandic Economic Situation: Status Report", hefur nú verið uppfært. Skjalið má nálgast hér.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta