Fréttir
28.3.2008
Viðskiptaráð fagnar ákvörðun forsætisráðherra
11.3.2008
Fjölsóttur fundur um íslenskt fjármálalíf í Kaupmannahöfn
Viðskiptaráð Íslands stóð fyrir fjölmennum fundi um stöðu íslensks efnahagskerfis og fjármálafyrirtækja í samstarfi við Sendiráð Íslands í Danmörku og Dansk-íslenska viðskiptaráðsins. Um 150 aðilar úr dönsku viðskiptalífi mættu á fundinn þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra Íslands, Dr. Richard Portes, prófessor við London Business School, Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings og Sigurjón Sighvatsson, fjárfestir, héldu erindi. Í kjölfarið voru haldnar pallborðsumræður þar sem gestum gafst færi á að spyrja framsögumenn um stöðu efnahagsmála á Íslandi.
10.3.2008
Laust starf til umsóknar
Starf hagfræðings Viðskiptaráðs hefur verið auglýst laust til umsóknar.
6.3.2008
Skoðun Viðskiptaráðs: Uppgjör í erlendum gjaldmiðlum
Aukin alþjóðavæðing íslensks hagkerfis hefur leitt til þess að stór hluti tekna og fjármögnunar margra fyrirtækja er í erlendum gjaldmiðlun. Af þessum sökum skapa gengissveiflur íslensku krónunnar mikinn kostnað og óvissu í rekstri viðkomandi fyrirtækja. Til að draga úr kostnaði hafa ýmis fyrirtæki leitað heimildar ársreikningaskrár til að færa uppgjör í erlendan gjaldmiðil. Mörg þeirra hafa þegar fengið þessa heimild en af einhverjum ástæðum lúta fjármálafyrirtæki ekki sömu lögmálum í þessu málefni.
Að mati Viðskiptaráðs eru uppgjör í erlendum gjaldmiðlum eðlilegur fylgifiskur alþjóðavæðingar, en Ísland er nú þátttakandi á markaði sem er margfalt stærri en hagkerfið í heild. Til að styrkja frekar stöðu íslenskra fyrirtækja og gera þau að fýsilegri valkosti fyrir erlenda fjárfesta er mikilvægt að fyrirtækjum verði gert kleift að færa uppgjör sitt í erlendum gjaldmiðli - án afskipta hins opinbera. Það væri óábyrgt að spyrna við fæti hvað uppgjör í erlendum gjaldmiðlum varðar og stuðla þannig að verra rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegum samanburði.







