Fréttir
30.5.2008
Viðskipta- og fjárfestingakynning í Mílanó
Hátt í hundrað manns sátu íslenska viðskipta- og fjárfestingakynningu í ráðhúsi Mílanóborgar, Palazzo Marino, hinn 26. maí sl., sem skipulögð var af Ítalsk – íslenska viðskitparáðinu ÍTIS og sendiráði Íslands í Róm í samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki, þ. m. t. Mílanóborg og viðskiptaráðið í Mílanó. Borgarstjórinn í Mílanó, frú Letizia Moratti, ávarpaði fundinn, og Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
26.5.2008
Skoðun Viðskiptaráðs: Orkufrumvarp iðnaðarráðherra - þjóðhagslega óhagkvæmt
Í efnahagsumróti líkt og því sem nú stendur yfir er hætt við að umræða um mikilvæg þingmál, líkt og orkufrumvarp iðnarráðherra, falli milli skips og bryggju í öldugangi almennrar efnahagsumfjöllunar. Þrátt fyrir að tiltölulega lítil umræða hafi farið fram um frumvarpið að undanförnu virðast stjórnvöld engu að síður stefna að lögleiðingu þess nú á síðustu dögum vorþings. Viðskiptaráð telur skynsamlegt að löggjafinn samþykki ekki frumvarpið heldur ígrundi nánar hvernig framtíðarskipan orkumála skuli vera háttað hérlendis.
Frumvarp þetta treystir í sessi eignarrétt hins opinbera yfir orkuauðlindum og orkufyrirtækjum. Opinber eignarréttur orkuauðlinda á, skv. frumvarpinu, að vera fyrsta skref í átt til frekari markaðsvæðingar orkugeirans. Erfitt er að sjá hvernig svo megi vera.
Hagkvæm nýting orkuauðlinda hefur mikla efnahagslega þýðingu fyrir Ísland og hníga hagfræðileg rök að því að stjórnarskrárvarinn séreignarréttur sé bestur til þess fallinn að tryggja slíka nýtingu. Einkaframtakið hefur sannað gildi sitt hingað til þar sem kraftar þess hafa fengið að njóta sín. Líklegt er að það muni einnig eiga við um orkugeirann. Með því að tryggja séreignarréttinn en setja jafnframt almennar leikreglur er unnt að standa mun betur vörð um þjóðhagslega og samfélagslega hagsmuni en með þeim breytingum sem frumvarp þetta boðar.
24.5.2008
Fjölsóttur fundur um íslenskt efnahagslíf
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og Dansk-íslenska viðskiptaráðið efndu til fundar á Bryggjunni miðvikudaginn 22. maí þar sem fjallað var um íslenskt efnahagslíf. Fundurinn tókst afar vel; fundarsóknin var góð og fyrirlesarar skiluðu sínu verki með sóma.
Mikið hefur verið fjallað um íslensk efnahagsmál í dönskum blöðum undanfarna mánuði, mun meira en nokkur staðar annars staðar í heiminum reyndar. Fundurinn á miðvikudag var innlegg sendiráðsins og Dansk-íslensk viðskiptaráðsins í þessa umfjöllun.
Jesper Rangvid er prófessor í fjármögnun við Copenhagen Business og hélt hann erindi um efnið: Islands økonomi og den islandske krone: Et tilbageblik og et fremblik.
Erindi Jesper má nálgast hér.
Þorsteinn Þorgeirsson, aðalhagfræðingur fjármálaráðuneytisins talaði um efnið: Horfur í íslensku efnahagslífi - er hörð lending framundan?
Erindi Þorsteins má nálgast hér.
Þeir sem sóttu fundinn voru aðallega einstaklingar frá dönskum fjármálafyrirtækjum auk áhugafólks um Ísland og íslensk efnahagsmál.
Nánari upplýsingar um fundinn veitir Kristín Hjálmtýsdóttir í síma 510-7100
18.5.2008
Könnun IMD um samkeppnishæfni þjóða
Vegna umfjöllunar um úttekt viðskiptaháskólans IMD á samkeppnishæfni þjóða vill Viðskiptaráð Íslands koma eftirfarandi á framfæri:
16.5.2008
Breytt fyrirkomulag skattlagningar söluhagnaðar skref í rétta átt
Viðskiptaráð Íslands fagnar því að Alþingi hafi í gær samþykkt frumvarp til breytinga á lögum um tekjuskatt. Frumvarpið felur í sér að hagnaður fyrirtækja af tilteknum afleiðuviðskiptum og sölu hlutabréfa, óháð tímalengd eignarhalds, er nú frádráttarbær frá tekjum þeirra. Breytt fyrirkomulag er í samræmi við ábendingar ýmissa hagsmunaaðila, þ.m.t. Viðskiptaráðs, sem og í samræmi við tillögur starfshóps forsætisráðherra um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð.
16.5.2008
Viðskiptaráð fagnar mikilvægum skrefum stjórnvalda
Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Tvíhliða gjaldeyrisskiptasamningar sem þessi eru mikilvægt fyrsta skref í eflingu trúverðugleika Seðlabanka Íslands og íslenska hagkerfisins. Enn fremur fagnar Viðskiptaráð þeirri tilkynningu að enn frekar verði aukið við aðgang bankans að erlendu lausafé í náinni framtíð.
13.5.2008
Viðskiptadeild HR í hópi 50 bestu viðskiptaháskóla í V-Evrópu
Viðskiptaráð óskar Háskólanum í Reykjavík til hamingju með þann frábæra árangur að viðskiptadeild skólans skuli á 10 árum vera komin í hóp 50 bestu viðskiptaháskóla innan Vestur-Evrópu og um leið í hóp bestu viðskiptadeilda heims á háskólastigi.
Í nýrri alþjóðlegri úttekt óháðrar stofnunar (EDUNIVERSAL) var viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík valin í hóp 1000 bestu viðskiptadeilda/-háskóla í heiminum - af um 4000 deildum/skólum.
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík varð í 46. sæti í Vestur-Evrópu og 117. sæti í heiminum.
Viðskiptaráð er stolt af því að hafa allt frá stofnun Háskólans í Reykjavík verið einn af dyggustu bakhjörlum skólans og vonar að þessi glæsilegi árangur viðskiptadeildar verði hvatning til enn frekari dáða, íslensku atvinnulífi og samfélagi til heilla.
8.5.2008
Skoðun Viðskiptaráðs: Sterkari Seðlabanki er hagsmunamál allra
Undanfarið hefur mikið verið rætt og ritað um styrk Seðlabanka Íslands og stöðu hans sem lánveitanda til þrautarvara. Í því samhengi hefur verið bent á smæð gjaldeyrisvarasjóðs bankans og skort á lánalínum frá erlendum seðlabönkum. Þrátt fyrir að gjaldeyrisvarasjóður bankans hafi nýlega verið efldur er ljóst að stærð íslenska bankakerfisins krefst mun sterkari umgjarðar en nú er í boði.
Þetta er ekki eingöngu mál sem varðar starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja. Aukinn trúverðugleiki Seðlabanka Íslands er grundvallarþáttur til að snúa við þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku hagkerfi undanfarnar vikur og mánuði. Skörp gengisveiking, vaxandi verðbólga, ofurháir stýrivextir, skert aðgengi að lánsfjármagni og stöðnun atvinnulífsins eru vandamál sem koma niður á öllum í íslensku samfélagi. Þegar rætt er um að taka lán til efla gjaldeyrisvarasjóð eða eiginfjárstöðu Seðlabankans og styrkja þannig trúverðugleika íslensks fjármálakerfis er því ekki verið vinna að hagsmunum þröngs hóps á kostnað almennings. Þvert á móti er slík aðgerð óumflýjanlegt fyrsta skref til að koma í veg fyrir víxlverkandi vítahring verðbólgu, gengisveikingar og vaxtahækkana.
8.5.2008
Vel heppnað málþing um traust og trúverðugleika
Vel heppnað málþing um traust og trúverðugleika á Hilton Reykjavík Nordica var haldið nú í morgun. Fundinn setti Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Í erindi sínu ræddi Finnur mikilvægi trúverðugleika á umrótatímum. Benti hann á að til að afla sér trausts og trúverðugleika gildi tvær þumalputtareglur, hvort sem um er að ræða stjórnvöld, fyrirtæki, fjölmiðla eða einstaklinga. Annars vegar verði að miðla upplýsingum um aðgerðir og markmið með skýrum og gagnsæum hætti og hins vegar verði aðgerðir að fylgja orðum.
2.5.2008
Málþing: Traust á umbrotatímum
Traust og trúverðugleiki eru meginviðfangsefni morgunverðarfundar sem haldinn verður á vegum AP almannatengsla, Viðskiptaráðs og Capacent Gallup á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 8. maí. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr níundu könnun almannatengslafyrirtækisins Edelman meðal skilgreindra áhrifavalda í 18 löndum. Í könnuninni er mælt traust til fyrirtækja, stjórnvalda, fjölmiðla og félagasamtaka auk þess sem traust og trúverðugleiki boðleiða eru mæld. Við sama tækifæri verður kynnt sambærileg könnun Capacent Gallup á Íslandi en hún er nú gerð í annað sinn. Í lok fundarins verða pallborðsumræður.







