Fréttir
17.6.2008
Ný skýrsla Viðskiptaráðs – Útþensla hins opinbera: orsakir, afleiðingar og úrbætur
Í dag kom út skýrsla Viðskiptaráðs Útþenslan hins opinbera: orsakir, afleiðingar og úrbætur þar sem fjallað er um fjármál hins opinbera og úrræði nú í lok langs hagvaxtarskeiðs í íslensku hagkerfi.
6.6.2008
Fyrsti fundur ráðgjafahóps um rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Í dag fór fram fyrsti fundur ráðgjafahóps Viðskiptaráðs Íslands vegna rekstrarumhverfis lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Flest íslensk fyrirtæki falla í þenna flokk og eru mikilvægir drifkraftur, til að mynda hvað varðar atvinnu- og nýsköpun. Því er samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs að stórum hluta háð því að sem best verði hlúð að slíkum rekstri.
Markmiðið með vinnu hópsins er að draga fram og ræða helstu ögranir sem stjórnendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja standa frammi fyrir í sínum rekstri. Í þeim efnum mun Viðskiptaráð leggja áherslu á málaflokka sem lúta að fjármögnun, mönnun og vinnumarkaður, umhverfi reglugerða, samskiptum við hið opinbera, hagrænu umhverfi og innviðum til stuðnings atvinnulífi. Í ráðgjafahópnum er breiður hópur félaga Viðskiptaráðs og mun vinna hans verða ráðinu til leiðsagnar um áherslur í málefnastarfi, auk þess sem hún mun nýtast þátttakendum við að kljást við dagleg viðfangsefni í eigin rekstri.
4.6.2008
Ætti að stofna fasteignasölu ríkisins?
Eftirfarandi grein birtist í Viðskiptablaðinu þann 4. júní:
Ætti að stofna fasteignasölu ríkisins?
Í kjölfar nýlegrar yfirlýsingar stjórnvalda um fyrirhugaðar breytingar og uppskiptingu á starfsemi Íbúðalánasjóðs hafa vaknað upp miklar umræður um stöðu og hlutverk sjóðsins á íslenskum fasteignalánamarkaði. Eins og oft vill gerast með málefni sem verða að pólitísku bitbeini hefur umræðan verið villandi og lituð af skammtímahagsmunum.
4.6.2008
Ísland þarf nýja sögu
Undanfarna mánuði hefur Ísland verið töluvert í kastljósi erlendra fjölmiðla. Umfjöllunin hefur raunar verið langt umfram það sem ætla mætti miðað við títtnefnda höfðatölu og smæð landsins. Í flestum tilfellum kemur þetta ekki til af góðu. Efasemdir hafa verið uppi um styrk hagkerfisins og fjármálageirans, einkum vegna einkenna ofþenslu og hlutfallslegrar stærðar hins síðarnefnda í íslensku hagkerfi. Stærð fjármálageirans og smæð hagkerfisins veldur því að áhrif alþjóðlegs fjármálaóróa eru jafnvel meiri hérlendis en víða annarstaðar. Fyrir þá sem fylgjast með erlendri umfjöllun um Ísland teljast fyrirsagnir á borð við að „Ísland sé að bráðna“ eða „Að sprungur myndast í ísnum“ varla til tíðinda. Þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr slíkum fréttaflutningi síðustu vikur er ljóst að orðspor og ímynd Íslands hefur beðið hnekki.
3.6.2008
Morgunverðarfundur: Ókyrrð í efnahagsmálum - markaðsbrestir eða pólitískir brestir
RSE, Viðskiptablaðið og Viðskiptaráð Íslands standa fyrir morgunverðarfundi um efnahagsmál föstudaginn 6. júní nk. í Háskólanum í Reykjavík 3. hæð, kl. 8.15. Dr. Eamonn Butler, forstöðumaður Adam Smith Institute í London og höfundur bókarinnar The Best Book on The Market flytur erindi um efnhagsmál, stjórnmál og hið frjálsa hagkerfi.
Dr. Eamonn Butler er hér á landi í boði RSE, en hann hefur nýlega gefið út bókina The Best Book on the Market og undirtitlinum, how to stop worrying and love the free economy. Á heimasíðu Adam Smith stofnunarinnar er haft eftir Butler að hann hafi áttað sig á því þegar hann lærði í hagfræði í háskóla að prófessorarnir hefðu ekki haft á réttu að standa. Með því að líta á fólk eins og vélmenni og reyna að gera hagfræði að vísindum, hafi þeir svipt markaðinn hinum mannlega þætti sem sé einmitt ástæða þess að hann virkar. Því miður hafi mörg slæm stefnumál byggt á þessum slæmu hugmyndum og geri enn. Fram kemur í kynningu á bókinni sé fjallað um mörg grundvallaratriði markaðarins, vöxt þeirra og viðgang. Fjallað sé um kosti sérhæfingar, um samkeppni og um siðferði markaðarins.
Butler ræðir á fundinum um hugmyndir sínar í samhengi við atburði í alþjóðlegu efnahagslífi undanfarin misseri og ástandið í dag.
Fundarstjóri er Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Fundargjald með morgunverði kr. 1.500. Fundurinn er öllum opin og fer skráning fram á www.vi.is eða í síma 5107100.







