Fréttir
29.8.2008
Nýr skóli – betra atvinnulíf
Meðfylgjandi grein birtist í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 27. ágúst:
Nýr skóli – betra atvinnulíf
Síðastliðinn mánudag bættist í flóru íslenskra menntastofnana nýr og spennandi grunnskóli. Þennan fyrsta kennsludag mættu til náms á annan tug barna á aldrinum 13 til 15 ára í stofu 209 á annari hæð í Garðaskóla í Garðabæ. Í skólanum er allt nám einstaklingsmiðað, þ.e. sniðið að þörfum hvers og eins nemanda, bæði eftir aldri og námsgetu. Námsáætlanir eru þannig mótaðar fyrir hvern nemanda, enda er bakgrunnur og aldur þeirra misjafn. Í skólanum nýta allir nemendur fartölvu, bæði í skólanum og til heimavinnu. Unnið er eftir viðurkenndri alþjóðlegri námsskrá og námsstöðlum, sem eru í öllum aðalatriðum í samræmi við námsskrá grunnskóla á Íslandi.







