Fréttir
24.9.2008
Er pósturinn týndur?
19.9.2008
Ný skoðun Viðskiptaráðs: Komum póstinum í réttar hendur
Fyrr á þessu ári fagnaði Íslandspóstur stórafmæli en þá voru tíu ár liðin
frá því fyrirtækið tók til starfa sem sjálfstætt hlutafélag í eigu ríkisins. Á
þeim tíma sem liðinn er frá stofnun fyrirtækisins hefur félagið
endurskilgreint hlutverk sitt og starfsemi á ýmsan máta. Verulega hefur
dregið úr vægi almannaþjónustunnar og fyrirtækið hefur sótt inn á nýja
markaði. Grunnur þessarar stefnu hefur ekki verið mótaður af
stjórnendum fyrirtækisins enda gefa samþykktir þess fullt svigrúm til
útvíkkunar á starfseminni.
18.9.2008
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þann 18. september birtist eftirfarandi grein í Morgunblaðinu:
Þann 1. október næstkomandi verður þing sett á Alþingi í 136. skipti. Þar ber að venju hæst að fjárlög næsta árs verða lögð fram, að þessu sinni í skugga ögrandi aðstæðna í efnahagsmálum og athafnalífi. Verðbólga og vextir eru í hæstu hæðum og miklar efasemdir eru um gagnsemi sjálfstæðrar peningastefnu, bæði meðal almennings og fyritækja. Þótt hagvaxtartölur 2. ársfjórðungs þessa árs sýni enn ágætan vöxt er almennt búist við verulegum samdrætti í hagkerfinu á næstu misserum. Margir eru jafnvel á því að samdráttar gæti nú þegar og benda máli sínu til rökstuðnings á samdrátt í þjóðarútgjöldum, en einkaneysla dróst til að mynda saman um 3,2% á 2. ársfjórðungi m.v. sama fjórðung árið áður.
10.9.2008
Nýr starfsmaður Viðskiptaráðs
5.9.2008
Háskólinn í Reykjavík fagnar 10 ára starfsafmæli
5.9.2008
Viðskiptaráð varar við Euro Business Guide
Viðskiptaráð vill vekja athygli aðildarfélaga sinna og annarra íslenskra fyrirtækja á erlendri svikamyllu sem gengur undir nafninu EuroBusinessGuide. Viðskiptahættir þessara aðila eru afskaplega vafasamir og ganga þannig fyrir sig að fyrirtækjum er sendur tölvupóstur þar sem þau eru hvött til að skrá sig á fyrirtækjalista á vefnum, sjá hér. Undir tölvupóstinn skrifar einhver aðili og fyrir neðan nafn hans stendur eitthvað á þá leið að uppfærsla í skránna sé ókeypis og er það merkt með upphrópunarmerki og stórum feitletruðum stöfum. Það gefur viðkomandi fyrirtæki til kynna að það sé nú þegar skráð á þennan lista og þurfi einungis að fylla eyðublaðið út til að vera áfram skráð, endurgjaldslaust. Í smáa letri eyðublaðsins kemur hins vegar fram að viðkomandi fyrirtæki sé að skrá sig til þriggja ára og fyrir það þurfi að borga 990 evrur árlega. Veittur er sjö daga frestur til að hætta við en reikningurinn kemur mun síðar og þegar fólk áttar sig á svikunum er fresturinn runninn út.
4.9.2008
Morgunverðarfundur um útþenslu hins opinbera
Hátt í 70 manns mættu á morgunverðarfund Viðskiptaráðs á Grand Hótel Reykjavík nú í morgun. Tilefni fundarins er skýrsla Viðskiptaráðs sem ber heitið Útþensla hins opinbera: orsakir, afleiðingar og úrbætur , en hún var gefin út nú á vormánuðum. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra opnaði fundinn, Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs hélt stutt erindi um núverandi stöðu og leiðir úr henni, Frosti Ólafsson hagfræðingur Viðskiptaráðs kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar og Þórður Víkingur Friðgeirsson lektor við Háskólann í Reykjavík kynnti nýja leið til aukins aðhalds í ríkisframkvæmdum. Að loknum framsögum sátu framsögumenn fyrir svörum í pallborði ásamt Katrínu Jakobsdóttur alþingismanni, Pétri Blöndal alþingismanni og Jóni Bjarka Bentssyni hjá greiningardeild Glitnis.
1.9.2008
Fundur Viðskiptaráða Norðurlandanna
Dagana 21. – 23. ágúst var árlegur fundur Viðskiptaráða Norðurlandanna haldinn í Tampere, Finnlandi. Efni fundarins að þessu sinni var alþjóðavæðingin og áhrif hennar á innviði Norðurlandanna. Það var ályktun fundarins að alþjóðavæðingin þyrfti að hefjast heima fyrir með því m.a. að auðvelda aðfluttum einstaklingum að aðlagast nýju heimalandi og með því að efla tungumálakennslu í skólum. Það var einnig ályktun fundarins að frjálsræði í viðskiptum og opin hagkerfi myndu efla jafnræði og lýðræði.







