Fréttir
18.1.2009
Glęsileg śtskrift frį Hįskólanum ķ Reykjavķk
Laugardaginn 17. janúar fór fram hátíðleg brautskráning 193 nemenda frá Háskólanum í Reykjavík. Athygli vekur að ríflega helmingur útskriftarnema er þegar kominn með vinnu en stór hluti heldur áfram til frekara náms. Mikil áhugi er á námsdvöl við Háskólann í Reykjavík og hefja 370 nýir nemendur nám við skólann á vorönn.
13.1.2009
Hlutverk Višskiptarįšs kynnt į borgarafundi
13.1.2009
Fjölsóttur Skattadagur
7.1.2009
Minnum į višhorfskönnun vegna Višskiptažings
Fyrir skemmstu var viðhorfskönnun send á öll aðildarfélög ráðsins. Könnunin er liður í undirbúningi Viðskiptaþings sem haldið verður þann 4. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni Endurreisn hagkerfisins og verða niðurstöður hennar kynntar á þinginu.
7.1.2009
Nż heimasķša Višskiptarįšs
Um áramótin tók Viðskiptaráð í notkun nýja heimasíðu, en sú fyrri var komin nokkuð til ára sinna. Nýtt og þægilegra viðmót bætir til muna aðgengi að viðamiklu gagnasafni ráðsins auk þess sem finna má á heimasíðunni ítarlegri umfjöllun um starfsemi ráðsins, bæði hvað varðar þjónustu við félaga og ýmsar útgáfur.
7.1.2009
Nįmsstyrkir į Višskiptažingi
Viðskiptaráð hefur undanfarin ár veitt á Viðskiptaþingi styrki til framhaldsnáms erlendis. Í ár verða fjórir styrkir að fjárhæð kr. 350.000 hver afhentir á þinginu sem haldið verður þann 4. febrúar næstkomandi. Frestur til að sækja um námsstyrk rennur út kl. 16:00 föstudaginn 16. janúar næstkomandi.







