Fréttir
22.10.2009
Athyglisverður fundur um hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni
Ríflega 80 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni á Hilton Reykjavík Nordica núna í morgun. Markmið fundarins var að ræða opinskátt og fordómalaust hugmyndir sem fjöldi aðila hefur lagt fram á undanförnum vikum og mánuðum er varða aðkomu sjóðanna að endurreisnarstarfinu.
21.10.2009
Sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar snúa að framtíðinni
Tómas Már Sigurðsson og Finnur Oddsson fjölluðu um mannabreytingar hjá ráðinu, stöðu þess og verkefni næstu missera í viðtali í Fréttablaðinu laugardaginn 17. október síðastliðinn.
21.10.2009
Morgunverðarfundur: Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni
Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í því starfi sem framundan er við endurreisn hagkerfisins. Fundurinn er haldinn í tilefni af nýútgefinni skoðun Viðskiptaráðs, þar sem ráðið lagði fram hugmyndir að fjölbreyttari og umfangsmeiri aðkomu sjóðanna en rætt hefur verið um á undanförnum misserum.
16.10.2009
Styðjum velferð frekar en opinber útgjöld
Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, ritaði eftirfarandi grein í Fréttablaðið í vikunni:
Þegar kakan minnkar harðnar baráttan um bitana. Þetta er lögmál sem hefur einkennt sögu mannkyns frá örófi alda. Lönd sem búa við hagsæld og batnandi lífskjör eru mun ólíklegri til að upplifa pólitískan óstöðugleika og samfélagslega sundrung heldur en þau sem búa við kröpp kjör og versnandi lífskjör. Ísland er lifandi sönnun þess.
Þegar kakan minnkar harðnar baráttan um bitana. Þetta er lögmál sem hefur einkennt sögu mannkyns frá örófi alda. Lönd sem búa við hagsæld og batnandi lífskjör eru mun ólíklegri til að upplifa pólitískan óstöðugleika og samfélagslega sundrung heldur en þau sem búa við kröpp kjör og versnandi lífskjör. Ísland er lifandi sönnun þess.
12.10.2009
Ný skoðun Viðskiptaráðs: Þátttaka lífeyrissjóða í endurreisnarstarfi
Þrátt fyrir þær miklu efnahagslegu þrengingar sem nú standa yfir veita ýmsir grundvallarþættir íslenska hagkerfisins mikilvæga viðspyrnu sem munu vafalaust gagnast til að mýkja áhrif fjármálakreppunnar. Einn af þeim er lífeyrissjóðakerfið sem er hlutfallslega meðal þeirra stærstu í heiminum.
9.10.2009
Uppvakningar viðskiptalífsins
Í mörgum hrollvekjum eru fyrirbæri sem nefnast uppvakningar í aðalhlutverki. Uppvakningar eru, samkvæmt íslenskri þjóðtrú, verur sem vaknað hafa upp eftir dauðann og ganga meðal lifenda. Yfirleitt gera þessar verur ekki annað en ógagn, stundum óskunda.
5.10.2009
Tómas Már Sigurðsson nýr formaður Viðskiptaráðs Íslands
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, varaformaður Viðskiptaráðs, hefur tekið við formennsku í ráðinu fram að næsta aðalfundi í febrúar 2010.
2.10.2009
Skynsamleg úrræði vegna skuldavanda heimilanna
Félags- og tryggingamálaráðherra kynnti á miðvikudaginn aðgerðir sem miða að því að létta greiðslubyrði og skuldavanda heimilanna. Annars vegar er um að ræða almennar aðgerðir þar sem greiðslujöfnun lána er beitt í þeim tilgangi að gera sem flestum kleift að standa undir greiðslubyrði lána sinna. Hins vegar voru kynntar til sögunnar sértækar aðgerðir sem er ætlað að mæta vanda þeirra einstaklinga og heimila sem þurfa á mestri aðstoð að halda.
2.10.2009
Samvinna en ekki sameining HR og HÍ
Undanfarið hefur átt sér stað nauðsynleg umræða um framtíðarskipulag háskólastarfs á Íslandi, bæði í fjölmiðlum og innan háskólasamfélagsins. Hér meðfylgjandi er ályktun rektors, háskólaráðs og Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík um að efla þurfi samstarf á milli skóla, því þannig er bæði hægt að ná fram hagræðingu og auknum gæðum. Af slíku samstarfi yrði meiri ávinningur en af sameiningu skóla, sem myndi hætta fjölbreytni og framþróun háskólamenntunar til framtíðar.
1.10.2009
Fjárlög 2010: skaðlegar áherslur
Fjármálaráðherra kynnti í dag Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010. Það kemur fáum á óvart að í frumvarpinu er gert ráð fyrir stórtækum aðgerðum í ríkisfjármálum sem ætlað er að brúa þann mikla fjárlagahalla sem ríkið stendur nú frammi fyrir.
1.10.2009
Atvinnusköpun, á forgangslista stjórnvalda?
Úrskurður umhverfisráðuneytisins á mánudaginn síðasta tók að mati margra steininn úr hvað varðar vinnubrögð stjórnvalda á sviði atvinnusköpunar að undanförnu. Með úrskurðinum setja stjórnvöld framkvæmdir við álver í Helguvík og við uppbyggingu gagnavers í Reykjanesbæ í skaðlega óvissu, sem er því miður í samræmi við önnur vinnubrögð í málefnum erlendrar fjárfestingar og uppbyggingu orkufreks iðnaðar fram til þessa.







