Fréttir
24.12.2009
Glešileg jól
Viðskiptaráð Íslands óskar Íslendingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Í stað þess að senda út prentuð jólakort gefur Viðskiptaráð samsvarandi upphæð til góðgerðarmála. Að þessu sinni var styrkurinn látinn renna til Fjölskylduhjálpar Íslands.
23.12.2009
Gjörbreytt skattkerfi oršiš aš veruleika
Skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar hafa nú öll verið afgreidd af Alþingi, ásamt fjárlagafrumvarpi næsta árs, eftir stutta yfirlegu alþingismanna. Það var viðbúið að frumvörpin fælu í sér stórtækar aðgerðir á sviði ríkisfjármála, enda ljóst að brúa þarf umtalsverðan halla á rekstri ríkissjóðs á skömmum tíma.
23.12.2009
Nįmsstyrkir Višskiptarįšs
Viðskiptaráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um fjóra styrki til framhaldsnáms erlendis. Tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.
18.12.2009
Ummęli formanns LSR ekki į rökum reist
Vegna ummæla formanns Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins um hugmyndir Viðskiptaráðs um jöfnun lífeyrisréttinda opinberra og almennra starfsmanna telur ráðið rétt að koma eftirfarandi á framfæri.
16.12.2009
Nż skżrsla: Fjįrmįl hins opinbera - ašrar leišir fęrar
Ķ dag gaf Viðskiptaráð út skýrslu undir yfirskriftinni Fjármál hins opinbera - aðrar leiðir færar. Skýrslunni er ætlað að bregða birtu á þróun ríkisfjármála undanfarin ár, galla á fyrirhuguðum skattabreytingum og mögulegar leiðir að því marki að koma á jöfnuði ríkisfjármála og tryggja áfram velferð í íslensku samfélagi.
15.12.2009
Athugasemdir Višskiptarįšs viš fyrirhugašar skattabreytingar
Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. Bæði fjárlagafrumvarp næsta árs og nýleg frumvörp á sviði skattlagningar bera með sér ríka niðurskurðarfælni af hálfu stjórnvalda – á tímum þegar lítið svigrúm er til slíkra viðhorfa.
11.12.2009
Tķmi hugmyndafręši eša hagsżni?
Į næstu dögum verða teknar til umfjöllunar á Alþingi tillögur stjórnvalda um aðgerðir til að brúa fjárlagahallann sem blasir við ríkissjóði. Verkið er ekki öfundsvert. Frekari skuldasöfnun er ekki í boði og því ætti enginn að velkjast í vafa um mikilvægi þess að vel takist til við hagræðingu í rekstri hins opinbera. Valmöguleikarnir í þessum efnum eru tiltölulega einfaldir; auknar tekjur, minni útgjöld eða hvort tveggja.
10.12.2009
Fundur um įhrif skattabreytinga į atvinnulķfiš
Ķ gær hélt endurskoðunarfyrirtækið Deloitte opinn upplýsingafund í tilefni af nýju skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar kynntu lögfræðingar og endurskoðendur hjá fyrirtækinu helstu breytingar sem frumvarpið mun hafa á íslenska skattkerfið. Í máli þeirra kom m.a. fram að samkvæmt frumvarpinu verður arðsúthlutun skattlögð sem laun.
10.12.2009
Sešlabanki Ķslands lękkar vexti
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti lækkun vaxta nú á fimmtudag. Í ljósi sérstakra aðstæðna í peningakerfi landsins einskorðast aðhaldsstigið ekki við stýrivextina líkt og almennt er, heldur er ástæða til að horfa til fleiri þátta.
8.12.2009
Įhugavert mįlžing FĶS og VR um skattamįl
Nú í morgun héldu Félag íslenskra stórkaupmanna og VR áhugavert málþing þar sem fjallað var um skattamál og breytta neysluhegðun í kjölfar efnahagssamdráttar. Á fundinum var m.a. kynnt ný könnun á viðhorfi almennings til skattkerfisbreytinga og áhrif þeirra á neyslu.
4.12.2009
Skašlegar skattaįherslur og einkennileg višbrögš yfirvalda
Nú eru rétt tæpir tveir mánuðir frá því fjárlagafrumvarp næsta árs var lagt fram á Alþingi. Fáum kom á óvart að þar er gert ráð fyrir stórtækum aðgerðum í ríkisfjármálum til að brúa fjárlagahalla ríkisins. Viðskiptaráð hefur gagnrýnt þá skattastefnu sem frumvarpið boðar, enda er ljóst að megnið af aðlögunaraðgerðum munu að eiga sér stað í gegnum skattahækkanir.
3.12.2009
Skattafrumvörp fyrir Alžingi įlit félaga
Fyrir Alþingi nokkur frumvörp er varða breytingar á skattumhverfinu. Félagar eru hvattir til að koma athugasemdum sínum við þessi frumvörp áleiðis til ráðsins sem fyrst, svo ráðið geti fundið þeim farveg í umsögnum sínum á næstu dögum og vikum.
3.12.2009
Styrkir į Višskiptažingi 2010
Į árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs hafa undanfarin ár verið veittir fjórir styrkir til framhaldsnáms erlendis, en tveir styrkjanna eru veittir úr Námssjóði Viðskiptaráðs um upplýsingatækni og hinir tveir úr Námssjóði Viðskiptaráðs.
3.12.2009
Dómskerfiš: Annar möguleiki ķ stöšunni
Burðir dómstóla til að sinna eftirköstum efnahagshrunsins hafa verið í kastljósinu að undanförnu. Aukinn málafjöldi á nær öllum sviðum hefur valdið töluverðu álagi á dómskerfið og allar líkur á að framhald verði á þeirri þróun, líkt og kom fram í nýlegri ályktun Lögmannafélags Íslands.