Beint į leišarkerfi vefsins

Fréttir

30.12.2010

Nżtt skattaįr aš hefjast - helstu breytingar

Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi rétt fyrir þinglok munu talsverðar breytingar verða á skattkerfi atvinnulífsins nú um áramót. Áframhald frá síðasta ári á hækkun flestra skatta er viðkoma atvinnurekstri og fjárfestingu er bagalegt og mun koma til með að hafa veruleg áhrif á fjölda fyrirtækja, en Viðskiptaráð hefur gagnrýnt harðlega þessa stefnumörkun. Meðal skattabreytinga eru þó nokkur jákvæð atriði sem munu gagnast fjölmörgum fyrirtækjum.

30.12.2010

Endurskošum efnahagsstefnuna

Žegar litið er yfir atvinnulífið í heild sinni og árið gert upp kemur fyrst upp í hugann hversu skammt hefur í raun miðað fram veg frá hruni. Slíkt mat er ekki byggt á tilfinningunni einni því tölur Hagstofunnar sýna að fjárfesting hefur dregist saman, hagvöxtur er neikvæður og allt of margar viljugar hendur fá ekki störf við hæfi.

28.12.2010

Gott samstarf atvinnulķfs og yfirvalda ķ įrsreikningamįlum

Viðskiptaráð hefur í starfsemi sinni á síðustu misserum hvatt fyrirtæki til að standa skil á ársreikningum sínum og bent á mikilvægi þess fyrir atvinnulífið í heild. Þá hefur ráðið undanfarið unnið í samstarfi við ýmsa aðila að því að skerpa hvata fyrirtækja til að skila inn ársreikningum á tilsettum tíma. Þó eitthvað hafi áunnist í þeim efnum...

20.12.2010

Hugsum heildstętt og undanskiljum ekki skattkerfiš

Frá bankahruni hefur rekstarumhverfi fyrirtækja versnað umtalsvert. Má rekja þær breytingar bæði til þátta er varða efnahagsumhverfið almennt t.a.m. minni eftirspurn, gjaldeyrishafta, hárra vaxta og skuldavanda heimila og fyrirtækja sem og aðgerða stjórnvalda í skattamálum. Stjórnvöld hafa sagt undanfarin misseri að vilji sé til staðar til að bæta rekstarumhverfi fyrirtækja til að stuðla að almennri atvinnuuppbyggingu.

20.12.2010

Fyrirtękin į beinu brautina

Į föstudag fór fram opinn fundur á Grand Hótel þar sem samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja var kynnt stjórnendum. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti samkomulagið en í máli hans kom m.a. fram að það myndi stuðla að hraðari úrlausn skuldamála fyrirtækja.

15.12.2010

Samkomulag undirritaš ķ dag: Śrvinnsla skuldamįla lķtilla og mešalstórra fyrirtękja

Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja hefur nú verið undirritað, en með því er ætlunin að flýta fjárhagslegri endurskipulagning um 6.000 fyrirtækja í bankakerfinu. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands.

8.12.2010

Sammįla um naušsynlegar ašgeršir

Ķ vikunni birti Evrópusambandið skýrslu um efnahagsspá Evrópu undir heitinu „European Economic Forecast“. Í skýrslunni er fjallað um Ísland og er þar m.a. komið inn á fjárhagsvanda fyrirtækja hér á landi. Undirstrikað er mikilvægi þess að fyrirtæki fái aukið aðgengi að fjármagni til að koma nýjum verkefnum af stað, en þar segir að...

7.12.2010

Skapandi greinar į sterkum grunni

Ķ síðustu viku voru kynnt drög að skýrslu rannsóknar sem verið er að vinna um efnahagsleg áhrif skapandi greina hér á landi. Rannsóknin er fjármögnuð af fimm ráðuneytum ásamt Íslandsstofu og er hún unnin að frumkvæði samráðsvettvangs skapandi greina. Ljóst er að störf innan skapandi greina skipta miklu máli og innan þeirra á sér stað mikil nýsköpun á hverjum degi...

3.12.2010

Um forgangsröšun og heildarhagsmuni

Endurskipulagning íslensks hagkerfis er á krossgötum. Taka þarf margar erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir í fjárlögum til að rétta af fjárhag ríkissjóðs. Engum dylst að staðan er erfið og af þeim sökum er afar brýnt að forgangsröðun verkefna sé skýr og miði að hagsmunum heildar og verðmætasköpun til framtíðar.

30.11.2010

Nįmsstyrkir VĶ til framhaldsnįms erlendis

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV). Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis. Undanfarin ár hafa verið veittir fjórir styrkir árlega og hefur afhending þeirra farið fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 16. febrúar 2011 næstkomandi.

26.11.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Fjįrlagafrumvarpiš 2011 - Nišurskuršur aš nafninu til

Fjárlög næsta árs litu dagsins ljós við upphaf þings í byrjun október. Frumvarpið endurspeglaði erfiða stöðu ríkissjóðs og var það boðað af hálfu ríkisstjórnarinnar. Áherslu átti nú að leggja á niðurskurð opinberra útgjalda, enda enn umtalsverður halli á ríkisrekstrinum og það þrátt fyrir tilkomu nýrra skatta og verulegra skattahækkana.

19.11.2010

Framkvęmdaglašir Ķslendingar - 850 verkefni leyst ķ vikunni

Nú fer fram Alþjóðleg athafnavika á Íslandi sem ætlað er að hvetja fólk um allan heim til þátttöku í nýsköpunarverkefnum. Innovit er framkvæmdaraðili athafnavikunnar, en Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs er einn af talsmönnum hennar. Eins og segir á vef athafnaviku þá hefur Finnur...

15.11.2010

Įtak RSK: Bęta žarf skil įrsreikninga

Rætt var við Tómas Má Sigurðsson, formann Viðskiptaráðs, í Fréttablaðinu á fimmtudaginn síðasta en tilefnið var átak sem fyrirtækjaskrá RSK hefur hafið til að bæta ársreikningaskil. Á næstu vikum mun fyrirtækjaskrá senda þeim 15.000 fyrirtækjum sem ekki hafa skilað inn ársreikningi fyrir árið 2009 bréf þar sem sektir eru boðaðar.

11.11.2010

Gjaldeyrishöft hvetja til erlendrar uppbyggingar

Eins og þekkt er þá voru sett á gjaldeyrishöft í kjölfar bankahrunsins til að hindra mikla veikingu krónunnar og stuðla að auknum gengisstöðugleika. Gjaldeyrishöftin hafa þó margvísleg önnur óæskileg áhrif, sem lítið hefur verið rætt um. Vankantar þeirra voru til umræðu á Peningamálafundi ráðsins í síðustu viku.

5.11.2010

Peningamįlafundur VĶ: Umręša um framtķšina óskast

Umtalsverð umræða var á árlegum Peningamálafundi Viðskiptaráðs nú í morgun um hvað tæki við að loknum gjaldeyrishöftum sem og framtíðarskipulag peningamála. Kölluðu þátttakendur í pallborði eftir frekari umræðu um framtíðina og ræddu m.a. þar um upptöku evrunnar, hugsanlegar breytingar á peningamálastefnunni, skilyrði þess að viðhalda krónunni og fleira. Rúmlega 200 manns sóttu fundinn sem fram fór á Hilton Nordica.

5.11.2010

Peningamįlafundur VĶ: Skašsemi haftanna mikil

Ķ morgun stóð Viðskiptaráð fyrir fjölsóttum morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica í tilefni af útgáfu Peningamála Seðlabankans og bar fundurinn yfirskriftina Peningastefna í hafti: Flýtur krónan aftur? Á fundinum fór Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, yfir stöðu efnahagsmála í tilefni af útgáfu Peningamála og svaraði spurningum fundargesta að erindi loknu. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs setti fundinn.

4.11.2010

190 skrįšir į Peningamįlafund Višskiptarįšs

Ķ fyrramálið fer fram á Hilton Nordica hinn árlegi Peningamálafundur Viðskiptaráðs. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Peningastefna í hafti: Flýtur krónan aftur? og verður Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, aðalræðumaður fundarins. Mun Seðlabankastjóri ræða stöðu efnahagsmála en gera má jafnframt ráð fyrir að miklar umræður skapist á fundinum um nýlega yfirlýsingu bankans um gjaldeyrishöftin.

4.11.2010

Veikari efnahagsbati įhyggjuefni – rętt nįnar į Peningamįlafundi į föstudaginn

Seðlabanki Íslands lækkaði vexti um 0,75% í gærmorgun sem var í samræmi við spár markaðsaðila. Samhliða vaxtaákvörðuninni voru Peningamál, rit Seðlabankans, gefin út sem innihélt m.a. uppfærða þjóðhagsspá. Rætt verður ítarlega um þjóðhagsspánna á Peningamálafundi Viðskiptaráðs á föstudaginn þ.m.t. um uppfærða hagvaxtaspá Seðlabankans fyrir næsta ár sem hljóðar uppá 2,1% á meðan fjárlögin gera ráð fyrir 3,2% hagvexti.

3.11.2010

Skattkerfiš: Ķsland kemur sķst til greina fyrir nż fyrirtęki

Ķ Markaði Fréttablaðsins í dag er að finna ítarlega umfjöllun um þá vankanta skattkerfisins sem innleiddir voru með skattabreytingum stjórnvalda á síðasta ári. Í umfjölluninni er rætt við þrjá skattasérfræðinga og Finn Oddsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs.

2.11.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Hagkvęmni ofar hagsmunum flokka - Samstaša um tęknilegar skattabreytingar

Žau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið margar erfiðar og óvinsælar ákvarðanir til að tryggja sjálfbærni ríkissjóðs. Ákvarðanir um leiðir til að brúa fjárlagagatið, niðurskurður eða tekjuöflun með skattahækkunum, koma ætíð til með...

1.11.2010

Styttist ķ afnįm gjaldeyrishafta? - Peningamįlafundur Višskiptarįšs 5. nóvember

Næstkomandi föstudag mun Viðskiptaráð Íslands halda árlegan morgunverðarfund í tilefni af útgáfu peningamála Seðlabanka Íslands. Fundurinn er haldinn á Hilton Reykjavik Nordica, en aðalræðumaður fundarins er Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Á fundinum verða rædd m.a. framtíð gjaldeyrishafta og peningastefnunnar.

29.10.2010

Efling fjįrlagageršar og sjįlfstęšrar greiningar ķ Evrópu

Undanfarin misseri hefur nokkur umræða verið innan Evrópusambandsins um hvernig efla megi eftirlit og umgjörð með efnahagsþróun og útgjöldum hins opinbera. Nýlega gaf starfshópur á vegum sambandsins út greinargerð um hvernig bæta megi opinbera stjórnarhætti, styrkja fjárlagagerðina og efla eftirlit með hagþróun hvers lands fyrir sig.

27.10.2010

Sameiginlegt skuggažing heimila og fyrirtękja getur bętt vinnu stjórnvalda og Alžingis

Alþingi var sett á ný í upphafi mánaðarins en með því lauk lengsta löggjafarþingi Íslandssögunnar. Í stað heildarsamstarfs um lausnir á erfiðri stöðu heimila og atvinnulífs hefur pólitískur skotgrafarhernaður því miður í of mörgum tilvikum orðið ofan á. Þá skortir ríkisstjórninni forystu og getu til að koma brýnum verkefnum í framkvæmd hjálparlaust.

26.10.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Alžingi Ķslendinga - Įrangur af störfum žess metinn

Alþingi var sett á ný í upphafi mánaðarins en með því lauk lengsta löggjafarþingi Íslandssögunnar. Líkt og von er þá mörkuðust störf þingsins með einum eða öðrum hætti af hruni hagkerfisins og afleiðingum þess. Mátti það sjá bæði á fjölda og tegundum mála.

25.10.2010

Žekkingarveršmęti?

Verðmætasköpun á grunni þekkingar. Markmiðið hljómar vel og hefur, með einum eða öðrum hætti, verið orðað ítrekað undanfarin misseri. Um það ríkir samfélagsleg sátt, enda felur það í sér möguleikann á lífskjarabótum umfram það sem auðlindir okkar, sjávarfang og orka, geta staðið undir.

20.10.2010

Styrkjum fjįrlagageršina: Heildarmat į fjįržörf

Nú liggur fyrir fjárlagafrumvarp ársins 2011. Flestir ættu að geta sammælst um mikilvægi úrbóta á ferli og framkvæmd fjárlaga, en talsverðir annmarkar hafa verið á því í ár líkt og undanfarin ár. Málefnaleg skoðanaskipti um brýn þjóðfélagsmál sem þetta þurfa að eiga sér stað til að dýpka umræðuna og auka líkur á...

19.10.2010

Styrkjum fjįrlagageršina: Drög aš śtgjaldarömmum birt

Nýverið gaf Viðskiptaráð út skoðun þar sem kynntar eru tillögur að breytingum sem ganga út á að ýta undir farsæla framkvæmd fjármálastefnu hins opinbera. Ábati af þeim væri margvíslegur og hefði jákvæð áhrif á hagsmuni allra hópa samfélagsins, en þannig væri t.d. skattfé borgaranna frekar úthlutað þangað sem þörf væri á og nýttist þar af leiðandi betur.

15.10.2010

Ein žjóš leysir vandann

Žað er margur vandinn sem nú blasir við Íslendingum. Hann má flokka í þrennt; hagrænan, stjórnmálalegan og hugarfarslegan. Hagrænn vandi endurspeglast í því að skuldir heimila, fyrirtækja og hins opinbera eru of miklar, hagvöxtur er neikvæður, kaupmáttur hefur rýrnað, eftirspurn dregist saman og fjöldi fólks hefur misst lífsviðurværi sitt.

14.10.2010

Styrkjum fjįrlagageršina: Śtgjaldarammi mišist viš nafnvöxt

Fyrr í þessum mánuði kynnti ríkisstjórnin fjárlagafrumvarp næsta árs og hafa spunnist talsverðar umræður um hvaða leiðir skuli fara í þeim niðurskurði sem nú er óumflýjanlegur. Í nýlegri skoðun sem Viðskiptaráð gaf út mátti finna umfjöllun um nokkur atriði sem brýnt er að taka á til að styrkja fjárlagaferlið svo koma megi í veg fyrir að sú erfiða staða sem ríkissjóður er nú í endurtaki sig.

13.10.2010

Styrkjum fjįrlagageršina: Bindandi śtgjaldažak

Ķ upphafi mánaðarins kynnti ríkisstjórnin fjárlagafrumvarp ársins 2011 og hafa í kjölfarið spunnist umtalsverðar umræður um þær leiðir sem lagt er til að farnar séu. Hugmyndir um hvort ráðast eigi í niðurskurð eða skattahækkanir munu ætíð vera grundvöllur skoðanaskipta í þjóðfélaginu og skal engan undra að svo sé enda...

11.10.2010

Nišurskuršur opinberra śtgjalda óumflżjanlegur

Nú í vikunni mælti fjármálaráðherra fyrir fjárlagfrumvarpi næsta árs, en skv. ráðherra er megináhersla lögð á niðurskurð opinberra útgjalda til að mæta fjárlagahallanum í bland við skattahækkanir. Viðskiptaráð hefur lengi mælt fyrir slíkri áherslu umfram viðamiklar breytingar á skattkerfinu. Stafar sú áhersla fyrst og fremst af...

7.10.2010

Fjįrfestažing: Gróska ķ sprotastarfi hérlendis

Į morgun, föstudag, fer fram tólfta Seed Forum fjárfestaþingið en það var fyrst haldið árið 2005. Á þinginu er sprotafyrirtækjum gefinn kostur á að kynna viðskiptahugmyndir sínar ásamt viðskiptaáætlunum. Þar munu fulltrúar fimm íslenskra og tveggja norskra sprotafyrirtækja kynna sínar hugmyndir og er því hér um að ræða kjörið tækifæri...

5.10.2010

Śrlausn į skuldavanda heimila og fyrirtękja ķ forgang

Sú löggjöf sem nýlega var boðuð af efnahags- og viðskiptaráðherra kemur til með að draga úr óvissu um meðferð gengistryggðra bíla- og húsnæðislána heimila. Því ber að fagna þó deildar meiningar séu um hvort nægilega langt hafi verið gengið. Boðaðar aðgerðir eru þó skref í þá átt sem þarf að fara.

4.10.2010

Įgęt skil įrsreikninga - en gera veršur betur

Viðskiptaráð hefur síðustu ár hvatt fyrirtæki til að skila inn ársreikningum innan lögbundinna tímamarka, en talsverð vanhöld hafa verið á því í gegnum tíðina. Ástæður fyrir þessari áherslu ráðsins eru margvíslegar en þar skiptir vafalaust mestu að slök skil á grundvallar rekstrarupplýsingum hafa dregið úr tiltrú á íslenskt atvinnulíf.

4.10.2010

Žróun sem veršur aš snśa viš

Frá bankahruni 2008 hafa erfiðir tímar farið í hönd í íslensku efnahagslífi. Viðskiptaráð hefur, eins og margir aðrir, bent á hættu á varanlegum fólks- og fjármagnsflótta í kjölfar kreppunnar. Hvoru tveggja hefði óhjákvæmilega verulega neikvæðar afleiðingar fyrir þjóðarbúið og myndi veikja samkeppnishæfni hagkerfisins til lengri tíma.

1.10.2010

Skemmtileg kvöldstund full af nżjum hugmyndum

Ķ gærkvöldi var haldinn í annað sinn kvöldverðarfundur Viðskiptaráðs og Innovit undir yfirskriftinni Ný-sköpun-Ný-tengsl. Markmið fundarins var að búa til vettvang skoðanaskipta og tengslamyndunar fyrir hugmyndaríkt fólk sem nýlega hefur hafið rekstur og fólk með reynslu og þekkingu á rekstri og framkvæmd hugmynda.

1.10.2010

Afdrįttarskattar draga śr vaxtarmöguleikum

Ķ lok júní 2009 voru samþykkt lög sem innleiddu nýtt ákvæði þess efnis að erlendir aðilar skyldu sæta sérstakri skattlagningu á vöxtum sem þeir fá greidda frá íslenskum aðilum. Skatturinn er afdráttarskattur í þeim skilningi að þegar hinn íslenski aðili innir af hendi vaxtagreiðslu til viðkomandi lánardrottins ber honum...

1.10.2010

Lyftum umręšunni į hęrra plan

Į skattafundi sem Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins stóðu fyrir fimmtudaginn 23. september síðastliðinn hélt fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, ræðu þar sem hann átaldi atvinnulífið fyrir áherslu sína á niðurskurð opinberra útgjalda. Benti ráðherra m.a. á að Breska viðskiptaráðið hafi lýst yfir...

1.10.2010

Aukiš samrįš rķkis og sveitarfélaga ķ efnahagsmįlum naušsynlegt

Į landsþingi Sambands sveitarfélaga eru nú til umræðu tillögur um nánari samvinnu ríkis og sveitarfélaga í efnahagsmálum. Tillögurnar hafa verið unnar af samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga og lúta þær einkum að gerð hagstjórnarsamnings, upptöku fjármálareglna og aukinni upplýsingagjöf.

30.9.2010

Opinber atvinnurekstur og tįlsżnin um hagvöxt

Ķ kjölfar bankahruns hefur mikið verið fjallað um endurreisn heimila, atvinnulífs og hagkerfis, en sitt sýnist hverjum um gang mála. Gjarnan veltur sú afstaða á því hvar menn eru í pólitík og hvort þeir koma úr atvinnulífinu eða ekki. Flestir geta þó verið sammála um að hraðari uppbyggingar er þörf.

29.9.2010

Fjįrmagnstekjuskattur - Himinhį raunskattlagning

Į síðustu tveimur árum hefur fjármagnstekjuskattur verið hækkaður um 80%, úr 10% í 18%, m.a. á þeirri forsendu að verið sé að samræma skattgreiðslur af fjármagni og launum. Sú afstaða byggir sumpart á misskilningi þar sem fjármagnstekjuskattur er brúttóskattur og með aukinni verðbólgu er skattlagning á raunvexti verulega hærri.

24.9.2010

Sękjum ķ styrkleika Noršurlandanna

Į opnum fundi Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins í gærmorgun um skattamál ræddi fjármálaráðherra um það sem hann sagði ranghugmyndir um umfang ríkisins og samneyslunnar og áhrif þess á efnahagslífið. Minni ríkisumsvif og þar með hagkvæmara skattaumhverfi væri þannig ekki besta meðalið til að hvetja...

24.9.2010

Vanhugsašar skattkerfisbreytingar

Breytingar á skattkerfinu síðustu misseri hafa einkennst af fjótfærni af hálfu stjórnvalda. Komið hefur í ljós að margar þeirra hafa verið afar misráðnar og nauðsynlegt er að þær gangi til baka til þess að koma megi atvinnulífinu hér á landi af stað. Á opnum fundi Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um skattamál í gærmorgun sagði fjármálaráðherra...

23.9.2010

Opinn fundur um skattamįl: Samrįš lykilatriši viš breytingar į skattkerfinu

„Það er alvörumál þegar lagt er í breytingar á skattkerfi hvers lands og mikilvægt að staðið sé að slíkum breytingum með sem bestum hætti. Það var ekki gert á síðastliðnu ári.“ sagði Finnur Oddsson framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, á opnum fundi ráðsins og Samtaka atvinnulífsins um skattamál sem nú fer fram.

23.9.2010

Opinn fundur um skattamįl: Skattkerfiš fęrt įratugi aftur ķ tķmann

Atvinnulífið gerði sér fulla grein fyrir þörf ríkisins á skattahækkunum á árunum 2009 og 2010, en forystusveit þess skorti hins vegar hugmyndaflug til að ímynda sér að ríkisstjórnin myndi færa skattkerfið áratugi aftur í tímann. Þetta kom fram í máli Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins á opnum fundi Viðskiptaráðs og SA um skattamál sem nú fer fram.

23.9.2010

Nż skżrsla VĶ og SA um skattkerfiš

Skýrsla Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um skattkerfið hefur verið gefin út, en í henni er að finna 21 tillögu að margvíslegum umbótum sem hafa það að markmiði að efla fjárfestingu, auka atvinnu og bæta lífskjör. VÍ og SA vona að skýrslan verði grundvöllur málefnalegra skoðanaskipta um þetta brýna mál á næstu vikum og mánuðum.

22.9.2010

Skattabreytingar - Vegferš ķ ranga įtt

Ķ byrjun júlí birti AGS skýrslu um skattkerfið hér á landi. Þar mátti finna fjölmargar ábendingar um breytingar á kerfinu, en megin niðurstaða athugunar sjóðsins var að skattkerfið sem byggt hafi verið upp hérlendis undanfarna áratugi innihéldi flesta þá þætti sem einkenni skattkerfi í fremstu röð. Í skýrslunni má finna...

21.9.2010

Skattkerfi atvinnulķfsins - Umręša óskast

Fjármálaráðherra skipaði starfshóp síðastliðið vor til að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar á skattkerfinu. Hópnum var upphaflega gefinn frestur til 15. júlí til að skila áfangaskýrslu en var sá frestur framlengdur til 31. ágúst. Nú þegar þrjár vikur eru liðnar frá því framlengdum skilafresti lauk og rúmir...

20.9.2010

Opinn fundur um skattamįl: Skattahękkanir hafa neikvęš įhrif į višskiptalķfiš

Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hilton Nordica. Húsið opnar með morgunverði klukkan 8:00, en fundurinn hefst klukkan 8.30 og stendur til 10 - aðgangur er ókeypis.

15.9.2010

Skattahękkanir hafa neikvęš įhrif į višskiptalķfiš

Sú óvissa sem áætlaðar skattahækkanir í Bandaríkjunum skapa er farin að hafa neikvæð áhrif á viðskiptalífið þar í landi. Hækkanir sem þessar gætu komið niður á alþjóðlegum fyrirtækjum sem starfa innan landsins, en um þetta er fjallað í bandaríska blaðinu Wall Streeet Journal. Umræða sem þessi minnir um margt á ástandið hér á landi.

10.9.2010

Samkeppnishęfni Ķslands - Afturför milli įra

Samkeppnishæfni Íslands dalar milli ára en landið er nú í 31. sæti á lista Alþjóða efnahagsráðsins (e. World Economic Forum) yfir samkeppnishæfni landa. Fyrir ári síðan var Ísland í 26. sæti og því ljóst að mikil afturför hefur átt sér stað upp á síðkastið. Stærstu vandamálin hér á landi sem rætt er um í skýrslunni eru aðgengi að fjármagni, gjaldeyrishöft...

9.9.2010

Opinn fundur um skattamįl fyrirtękja 23. september

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel Nordica. Þar munu samtökin leggja fram og kynna tillögur að umbótum á skattkerfinu sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna.

8.9.2010

Nįmskeiš - Incoterms 2010

Landsnefnd Alþjóða viðskiptaráðsins (ICC) stendur fyrir námskeiði á Íslandi um alþjóðlegu vöruflutningsskilmálana Incoterms 2010 miðvikudaginn 29. september. Ný og endurskoðuð útgáfa verður kynnt á fundi ICC í París þann 27. september. Margir hafa beðið eftir þessari endurskoðun með óþreyju...

8.9.2010

Samstarf um uppbyggingu atvinnuvega

Mikilvægt er að nýta þekkingu innan samtaka atvinnuvega og þau víðtæku tengsl sem þar eru við atvinnulífið í uppbyggingu hérlendis. Slík samtök eru í því hlutverki að koma nýrri þekkingu áfram og þjóna hlutverki einskonar miðjumanns milli atvinnulífs og stjórnvalda. Þau geta í samstarfi við fræðimenn og fyrirtæki í landinu skapað nýja þekkingu...

6.9.2010

Framhald į yfirstandandi kreppu

Nú hafa verið birtar tölur um þróun hagkerfisins á öðrum ársfjórðungi. Þar kemur fram að samdráttur hafi verið 3,1% milli ársfjórðunga. Það sem vekur einna helst athygli er hve mikil breytingin er frá áður birtum hagvaxtartölum. Aðilar ríkisstjórnarinnar og AGS höfðu áður bent á að kreppunni hérlendis væri tæknilega lokið.

3.9.2010

Mikilvęgt aš takmarka verulega umsvif RŚV į auglżsingamarkaši

Meirihluti menntamálanefndar hefur nú skilað áliti sínu vegna fjölmiðlafrumvarps menntamálaráðherra, sem liggur nú fyrir hjá Alþingi. Það sem er athygliverðast er að meirihlutinn telur að takmarka þurfi umsvif RÚV á auglýsingamarkaði til að unnt sé að tryggja fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum.

31.8.2010

Samstarf stjórnvalda og višskiptalķfs mikilvęgt

Stjórnvöld þurfa að vinna í samstarfi við atvinnulífið og sérfræðinga þegar kemur að því að marka framtíðarstefnu í atvinnuuppbyggingu. Þetta kom fram í máli Dr. Seiichiro Yonekura, forstöðumanns rannsóknarmiðstöðvar í nýsköpunarfræðum við Hitotsubashi Háskóla í Tókýó, á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs á Grand Hótel í morgun.

30.8.2010

Nżsköpun og atvinnuuppbygging - Hvaš mį lęra frį Asķu?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi sem fram fer fram á morgun, þriðjudag. Á fundinum verður m.a. rætt um mikilvægi þess að mótuð verði stefna í uppbyggingu atvinnuvega hér á landi.

20.8.2010

Uppfęrš skżrsla į ensku um stöšu mįla

Ķ dag kom út uppfærð útgáfa af skýrslu Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation - Status report. Skýrslan, sem er á ensku, kom fyrst út í október 2008 og hefur verið uppfærð reglulega síðan.

19.8.2010

Morgunveršarfundur: Framtķšaruppbygging atvinnuvega į Ķslandi

Žriðjudaginn 31. ágúst munu Viðskiptaráð Íslands, Sendiráð Japans á Íslandi, Háskólinn í Reykjavík og japönsk fræði við Háskóla Íslands standa fyrir morgunverðarfundi. Yfirskrift fundarins er „Hagvaxtarstefna Asíulanda - Lærdómar fyrir Ísland“ en aðalræðumaður verður Dr. Seiichiro Yonekura.

19.8.2010

Hagvöxtur eša stöšnun - Hvaš getum viš gert?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands, Sendiráðs Japans á Íslandi, Háskólans í Reykjavík og japanskra fræða við Háskóla Íslands. Fundurinn fer fram þriðjudaginn nk.

18.8.2010

Veiking skattstofna en jįkvęš vaxtalękkun

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði vexti bankans um 1 prósentustig í morgun. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 5,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 6,75%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 7,0% og daglánavextir í 8,5%.

18.8.2010

Samstarf um framtķšarstörf fyrir ungt fólk

Ör vöxtur hefur einkennt íslenskan tækniiðnað undanfarið, sérstaklega hugverkaiðnaðinn, en áætluð þörf fyrir tæknimenntaða einstaklinga út í atvinnulífið er um 2-3.000 manns næstu þrjú árin. Ķslenskt atvinnulíf árið 2015 tekur því af skarið og óskar eftir verk- og tæknifræðingum til starfa.

17.8.2010

Morgunveršarfundur: Uppbygging atvinnuvega

Žriðjudaginn 31. ágúst fer fram morgunverðarfundur þar sem m.a. verður rætt um mikilvægi þess að mótuð verði stefna í uppbyggingu atvinnuvega hér á landi. Jafnframt er tilgangur fundarins að hvetja til þess að slík stefna verði þróuð. Málið er sérstaklega áhugavert í ljósi...

16.8.2010

Hagvaxtarstefna Asķulanda - Lęrdómar fyrir Ķsland

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands, Japanska sendiráðsins á Íslandi, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.

13.8.2010

Tillögur sjįvarśtvegs- og landbśnašarrįšherra vinna gegn mjólkurišnaši

Traust á framleiðendum í mjólkuriðnaði er verulega takmarkað í nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Þvert á það sem fram kemur í áðurnefndu frumvarpi ætti stýring á mjólkurframleiðslu að ráðast af markaðslögmálum og einfaldri reglu um framboð og eftirspurn.

13.8.2010

Opinber inngrip ķ frjįlsa samninga į fjölmišlamarkaši

Ķ vikunni hefur verið fjallað um samning fjölmiðlafyrirtækisins 365 miðla um sýningarétt á næstu tveimur heimsmeistaramótum í handbolta. Nú berast hins vegar fregnir þess efnis að vinna sé hafin í mennta- og menningarmálaráðuneytinu við að þvinga hluta af þessu dagskrárefni, og jafnvel fjöldann allan af sambærilegu efni, í opna dagskrá með vísan í 23. grein útvarpslaga.

12.8.2010

Nżtt mjólkurfrumvarp hindrar nżsköpun

Žeir tveir aðilar sem eru hvað stærstir í framleiðslu á eigin mjólkurafurðum eru þegar búnir að sprengja það 10.000 lítra mark sem lagt er til í frumvarpi til laga um breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Býlin sem um ræðir eru bæði tiltölulega nýbyrjuð í sinni starfsemi og strax hafa þau sprengt það svigrúm sem breytingum á lögunum er ætlað að veita.

12.8.2010

Nżr ašstošarframkvęmdastjóri Višskiptarįšs

Haraldur I. Birgisson hefur tekið við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, en áður gegndi hann starfi yfirlögfræðings ráðsins. Fráfarandi aðstoðarframkvæmdastjóri, Frosti Ólafsson, hverfur nú til frekara náms erlendis en hann hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá árinu 2006, fyrst sem hagfræðingur ráðsins.

10.8.2010

Golfmót Višskiptarįšs og millilandarįša 2010

Hið árlega og sívinsæla alþjóðlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi þann 2. september 2010. Við hvetjum alla félaga til að taka þátt og nota með því tækifærið til að efla alþjóðlegt tengslanet sitt. Að leik loknum verður boðið uppá steikarhlaðborð í golfskálanum.

4.8.2010

Takmarkanir į erlendri fjįrfestingu

Ķsland er nú í 2. sæti á lista yfir þau aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) sem hafa hvað mestar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Mestu hömlurnar eru í Kína, en næst á eftir Íslandi koma Rússland og Sádi-Arabía. Síðast þegar sambærileg skýrsla var tekin saman af OECD árið 2006 var Ísland í sama sæti og nú.

30.7.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Er Ķsland opiš fyrir fjįrfestingu?

Fjárfesting er ein af grunnstoðum hagvaxtar og forsenda þess að endurreisn hagkerfisins geti orðið að veruleika fyrr en síðar. Pólitísk afskipti af einstaka fjárfestingum eru því ekki til þess fallin að stuðla að sameiginlegu markmiði okkar allra, að efla hagvöxt og með því lífskjör hérlendis á komandi árum. Fjárfesting innlendra aðila hefur dregist mikið saman frá bankahruni auk þess sem erlend fjárfesting hefur verið í lágmarki.

16.7.2010

Skattalegar brotalamir: efla žarf śtgįfu į bindandi forśrskuršum

Ķ núverandi efnahagsástandi sem einkennist, m.a. af fjárhagslegri endurskipulagningu fjölda fyrirtækja og tíðum breytingum á skattkerfinu, er uppi töluverð óvissa um skattalega meðferð ýmissa tekna. Ein afleiðing þessa er að mörg fyrirtæki eiga erfitt með að gera langtímaáætlanir.

14.7.2010

Skattalegar brotalamir: afnema žarf reglur um jöfnun yfirfęranlegs taps

Žað er almennt álit innan atvinnulífsins að á Íslandi hafi skattlagning rekstrar verið hagkvæm með tiltölulega lágum og breiðum skattstofni, með fáum frádráttarliðum. Með breytingum á skattkerfinu sem draga úr samkeppnishæfi m.v. það sem tíðkast erlendis er í raun verið að stíga skref í þá átt að hrekja fyrirtæki úr landi.

13.7.2010

Skattaskżrsla AGS: Hvatt til einföldunar į skattkerfinu

Nýverið gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn út skýrslu um íslenska skattkerfið. Skýrslan var unnin að beiðni stjórnvalda en þar eru kynntar tillögur sjóðsins um hvernig auka megi skatttekjur ríkissjóðs án verulegs skaða og neikvæðra áhrifa fyrir íslenskt efnahagslíf.

13.7.2010

Skattalegar brotalamir: breyta žarf reglum um mešferš söluhagnašar

Ķ s.l. viku gaf Viðskiptaráð út skoðun þar sem farið er yfir þá vankanta sem nýlega hafa verið innleiddir í annars hagfellt íslenskt skattkerfi. Til að byggja upp trausta atvinnustarfsemi liggur fyrir að umhverfi til rekstrar þarf að vera hagfellt og ekki síður stöðugt. Mikilvægt er því að draga úr því ósamræmi sem hefur skapast í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum Íslands.

12.7.2010

Skattalegar brotalamir: afnema žarf afdrįttarskatta į vaxtagreišslur

Veruleg óvissa ríkir nú í skattamálum fyrirtækja þar sem upplýsingar um væntanlegar tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs fyrir næsta ár eru takmarkaðar. Skattabreytingar síðustu missera hafa einkennst af hringlandahætti og hafa þær jafnframt ýtt undir ósamræmi í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum okkar.

9.7.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Skattalegar brotalamir - Hindra atvinnuuppbyggingu

Ķ kjölfar bankahrunsins hafa rekstrarskilyrði fyrirtækja versnað til muna. Til að byggja upp trausta atvinnustarfsemi liggur fyrir að umhverfi til rekstrar þarf að vera hagfellt og ekki síður stöðugt. Það er almenn skoðun innan atvinnulífsins að á Íslandi hafi skattlagning rekstrar verið hagkvæm með tiltölulega lágum og breiðum skattstofni með fáum frádráttarliðum.

8.7.2010

Greišsludreifing opinberra gjalda ekki lengur ķ boši

Ķ vetur var lögfest á Alþingi heimild til handa fyrirtækjum að dreifa gjalddögum aðflutningsgjalda, tolla og virðisaukaskatts. Lögin voru sett á til að bregðast við gjörbreyttum aðstæðum íslensks atvinnulífs og mæltust þau afar vel fyrir hjá íslenskum fyrirtækjum. Sú heimild gilti þó einungis fyrir fyrstu tvö uppgjörstímabil þessara gjalda (janúar-febrúar og mars-apríl) á árinu 2010 og rann heimildin út í lok apríl s.l.

25.6.2010

Fyrirtękjaflótti framundan?

Nýlega bárust þær fréttir að samheitalyfjafyrirtækið Actavis leiti nú að hentugri staðsetningu fyrir höfuðstöðvar sínar. Erfitt er að skilja þessa yfirlýsingu með öðrum hætti en að líklegt megi teljast að höfuðstöðvar fyrirtækisins flytji af landi brott. Sú staðreynd að fyrirtæki þurfi að hefja þá leit gefur vísbendingar um að of margar brotalamir séu í rekstarumhverfi fyrirtækja hérlendis auk þess að vekja upp spurningar um hvort fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið.

24.6.2010

Skattstofnar aš gefa eftir?

Nú þegar greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta þriðjung ársins liggur fyrir er ekki úr vegi að staldra við og meta þróun mála eftir upptöku hins nýja skattkerfis. Það sem einkennir uppgjörið einna helst við fyrstu yfirferð er að flestir skattstofnar eru að dragast saman. Má þar t.a.m. nefna tekjuskatt lögaðila, fjármagnstekjuskatt, eignaskatt, virðisaukaskatt af atvinnustarfsemi og vörugjöld af bensíni, olíu, áfengi og tóbaki.

16.6.2010

Greišsluuppgjör rķkissjóšs

Nú liggur fyrir greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins. Af uppgjörinu að ráða þá eru flestir skattstofnar leynt og ljóst að dragast saman. Má þar nefna t.a.m. tekjuskatt lögaðila, fjármagnstekjuskatt, eignaskatt og virðisaukaskatt af atvinnustarfsemi. Nokkrir þessara stofna t.a.m. tryggingargjald og virðisaukaskattur af vörum eru þó að skila ríkissjóði meiri tekjum en í fyrra svo einhverju muni.

14.6.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Rķkisfjįrmįl - Samstaša um bętt vinnubrögš

Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist hverjum um eiginlega framkvæmd stefnunnar og þá einkum hvoru megin áherslan skuli frekar liggja. Viðskiptaráð hefur fyrir sitt leyti gagnrýnt að aðlögunin hafi farið um of fram með tekjuöflun og bent á aðrar leiðir að sama marki.

11.6.2010

Óljóst hlutverk samrįšsnefndar

Ķ apríl s.l. tilnefndi fjármálaráðherra starfshóp sem ætlað var að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar og umbætur á skattkerfinu. Samhliða starfshópnum var sett á laggirnar samráðsnefnd sem hugsuð var sem vettvangur upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta fyrir starfshópinn. Þar áttu sæti ýmsir aðilar vinnumarkaðarins, en hópnum var ætlað að skila áfangaskýrslu til fjármálaráðherra fyrir 15. júlí n.k.

10.6.2010

Stušningur viš nżsköpun

Stuðningur við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf er eitt af þeim málum sem Viðskiptaráð telur skipta verulegu máli við enduruppbyggingu atvinnulífs í landinu. Það á ekki einungis við um sprotafyrirtæki og frumkvöðla innan þeirra heldur einnig rannsóknar- og þróunarstarfsemi sem á sér stað innan rótgróinna fyrirtækja.

9.6.2010

Umbętur fyrir ķslenskt višskiptalķf

Um 90 manns úr breiðum hópi félaga Viðskiptaráðs sóttu vel heppnað Umbótaþing ráðsins sem fram fór á mánudag. Á þinginu komu fram fjöldi ábendinga um vandamál sem þarf að leysa og hugmyndir að úrbótum, sem þátttakendur færðu í sameiningu í fjölbreyttar tillögur að verkefnum fyrir viðskiptalífið.

4.6.2010

Fękkun rįšuneyta: vilji 75% landsmanna

Talsverð umræða hefur verið um fækkun ráðuneyta að undanförnu. Líkt og iðulega virðist sem tvær fylkingar hafi myndast um málið, önnur með og hin á móti, en lítið hefur borið á heildstæðum rökum þessara fylkinga. Önnur þeirra virðist þó eiga talsverðan samhljóm með landsmönnum, en skv. nýlegum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup er það vilji þriggja fjórðu hluta landsmanna að ráðuneytum verði fækkað.

3.6.2010

Athafnir verša aš fylgja oršum

Ķ síðustu viku stóðu Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Kauphöllin og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir vel sóttri ráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja. Í pallborðsumræðum var m.a. rætt um með hvaða hætti mætti koma að úrbótum í stjórnarháttum fyrirtækja hér á landi, en yfirskrift ráðstefnunnar var: Getum gert miklu betur!

2.6.2010

Getum gert miklu betur!

Viðmið um góða stjórnarhætti hafa með reglubundnum hætti verið í almennri umfjöllun fyrrihluta þessa áratugar. Ljóst má vera að útgáfa Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Kauphallarinnar á leiðbeiningum á því sviði hefur átt drjúgan þátt í því. Því miður er það hins vegar svo, þegar rýnt er til fortíðar, að umræðan náði ekki þeim árangri sem vonast var eftir. Almennar viðtökur við leiðbeiningunum ollu útgáfuaðilum þeirra og öðrum vonbrigðum.

28.5.2010

Skattahękkanir į leišarenda

Ķ umræðunni að undanförnu um nauðsynlega hagræðingu í opinberum fjármálum hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar látið ummæli falla í þá veru að til standi að auka skatta á atvinnulífið enn frekar og eru þar nefndar tölur upp á ríflega tug milljarð. Viðskiptaráð vill í því samhengi benda á að megin þungi í aðgerðum stjórnvalda til að ná jöfnuði í ríkisfjármálum hefur hingað til falist í skattahækkunum.

28.5.2010

Bęta žarf stjórnarhętti til frambśšar

Nú í vikunni stóðu Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Kauphöllin og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir hádegisverðarráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja hér á landi. Þátttaka var góð, en um 100 gestir sóttu ráðstefnuna sem haldin var undir yfirskriftinni Getum gert miklu betur! Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um hlutverk leiðbeininga um stjórnarhætti og mikilvægi þess að fyrirtæki fylgdu þeim eftir.

26.5.2010

Góšir stjórnarhęttir skipta mįli

Į ráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja, Getum gert miklu betur!, sem haldin var í gær á vegum Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins, Kauphallarinnar og rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti var m.a. fjallað um áhrif góðra stjórnarhátta á rekstur fyrirtækja. Hátt í 100 manns sóttu ráðstefnuna, en þar tóku til máls Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, Chris Pierce, forstjóri Global Governance Service í Bretlandi og Páll Harðarsonar forstöðumaður rekstrarsviðs Kauphallar Íslands.

23.5.2010

Getum gert miklu betur! - Rįšstefna um stjórnarhętti fyrirtękja

Žriðjudaginn 25. maí næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX á Íslandi og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti hérlendis. Með fundinum er ætlunin að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en VÍ, SA og Kauphöllin gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.

21.5.2010

Samkeppnishęfni: Sterkir innvišir žrįtt fyrir efnahagsįföll

Samkvæmt skýrslu IMD-viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni hagkerfa, er Ísland í þrítugasta  sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims. Singapúr, Hong Kong og Bandaríkin eru í þremur efstu sætunum, en afar lítill munur er á þjóðunum. 

14.5.2010

Sameining rįšuneyta: hagkvęm og tįknręn tilhögun

Undanfarna daga hafa ríkisstjórnarflokkarnir rætt sín á milli um fyrirhugaða fækkun ráðuneyta, úr tólf í níu, í samræmi við umsamdar stjórnkerfisumbætur í samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Einkum hefur verið rætt um að sameina heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin í eitt velferðarráðuneyti og að atvinnuvegaráðuneyti verði stofnað utan um sjávarútvegs-, landbúnaðar og iðnaðarráðuneytin. Viðskiptaráð Íslands fagnar þessum fyrirætlunum stjórnvalda, enda eru kostir þeirra fjölmargir.

7.5.2010

Bęta žarf upplżsingagjöf atvinnulķfsins

Viðskiptaráð hefur undanfarin misseri hvatt aðildarfélaga sína og önnur fyrirtæki til að afhenda ársreikninga innan lögbundinna tímaramma, en umtalsverð vanhöld hafa verið þar á undanfarin ár eins og vanskilalisti ársreikningaskrár ber með sér. Að baki þessum tilmælum ráðsins liggja tvær ástæður sem annars vegar lúta að beinum hagsmunum tiltekinna fyrirtækja og hins vegar að heildarhagsmunum atvinnulífs og samfélags.

6.5.2010

Jįkvęš umręša um stöšu lķfeyrismįla

Undanfarnar vikur hefur mikil umræða átt sér stað um stöðu lífeyrismála á Íslandi vegna þeirrar skerðingar sem sjóðsfélagar almenna lífeyriskerfisins hafa þurft að taka á sig í kjölfar fjármálakreppunnar. Viðskiptaráð gaf í síðustu viku út skoðun þar sem farið er yfir stöðu lífeyrismála og varpað ljósi á það mikla ójafnræði sem þar ríkir.

6.5.2010

Uppfęrš skżrsla į ensku um stöšu mįla

Nýverið uppfærði Viðskiptaráð skýrslu sína á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation: Status report. Skýrslan, sem kom fyrst út í október 2008, er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.

30.4.2010

Fjölmišlafrumvarpiš: hunsar Alžingi Samkeppniseftirlitiš?

Fyrir menntamálanefnd Alþingis liggur nú frumvarp til laga um fjölmiðla, en Viðskiptaráð hefur líkt og fleiri aðilar skilað inn umsögn um frumvarpið. Meginathugasemdir ráðsins lúta að aðgerðaleysi stjórnvalda við að jafna samkeppnisskilyrði einkarekinna fjölmiðla og RÚV. Þrátt fyrir að frumvarpið feli í sér heildarlöggjöf á sviði fjölmiðla þá er þannig hvergi vikið að samkeppnissjónarmiðum.

29.4.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Jafnrétti ķ lķfeyrismįlum?

Žessa dagana berast reglulega fregnir af skerðingu lífeyrisréttinda innan almenna lífeyrissjóðakerfisins. Hrun íslenska bankakerfisins gekk verulega á uppsafnaðar eignir sjóðanna og hefur reynst flestum þeirra þungt í skauti. Afleiðing slælegrar ávöxtunar í sjóðssöfnunarkerfi er skerðing réttinda enda verður ekki öðruvísi staðið undir lífeyrisgreiðslum til lengri tíma.

23.4.2010

Skżrsla rannsóknarnefndar nżtt til umbóta

Ķ síðustu viku skilaði rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna skýrslu þar sem niðurstöður hennar voru kunngerðar. Meginhlutverk nefndarinnar var að draga upp heildarmynd af aðdraganda að falli bankanna og leita orsaka. Samhliða voru birtar niðurstöður vinnuhóps sem leggja átti mat á hvort skýringar á falli bankanna og tengdum efnahagsáföllum mætti finna í starfsháttum og siðferði.

23.4.2010

Rįšstefna um skżrslu rannsóknarnefndar nś um helgina

Háskólarnir á Akureyri, Bifröst og í Reykjavík halda sameiginlega ráðstefnu í Reykjavík og á Akureyri um helgina þar sem átján sérfræðingar skólanna leitast við að svara þeim spurningum sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis vekur. Tilgangur ráðstefnunnar er að halda áfram umræðu og greiningu rannsóknarskýrslunnar.

25.3.2010

Skapa žarf tękifęri til fjįrfestinga

Į morgunverðarfundi Viðskiptaráðs, Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna, sem fram fór í gær var m.a. rætt um gjaldeyrishöftin, vexti Seðlabankans og mikilvægi þess að stjórnvöld móti hér stefnu til framtíðar. Áhugaverðar umræður sköpuðust meðal þátttakenda í pallborði og er hér farið yfir það helsta sem fram kom þar.

24.3.2010

Opin umręša um fjįrfestingu og gjaldeyrishöft

Rúmlega 90 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs um fjárfestingaumhverfið hér á landi sem fram fór í morgun. Í máli Ragnars Guðmundssonar, forstjóra Norðuráls, kom fram að þrátt fyrir allt væri hér margt sem stuðli að jákvæðu fjárfestingaumhverfi. Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, talaði um að mikilvægt væri að taka fyrstu skrefin til afnáms haftanna sem fyrst.

23.3.2010

Fjįrfestingaumhverfiš į Ķslandi: Erum viš į réttri leiš?

Į morgun, miðvikudag, stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi um fjárfestingaumhverfið hér á landi. Þar mun Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar, meðal annarra, flytja erindið Fjárfestingaumhverfið á Íslandi - Erum við á réttri leið?

23.3.2010

Höftin, rķkisfjįrmįl og efnahagsbatinn

Viðskiptaráð Íslands stendur fyrir morgunverðarfundi á morgun, miðvikudag, en meðal framsögumanna er Arnór Sighvatsson aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands. Erindi hans ber heitið Höftin, ríkisfjármál og efnahagsbatinn, en í því mun Arnór fjalla um samspil þessara þriggja þátta og áhrif þeirra á aðgengi Íslands að lánsfjármagni.

22.3.2010

Morgunveršarfundur: Er Ķsland opiš fyrir fjįrfestingu?

Į miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

19.3.2010

Hagsmunir hverra?

Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum er óvenjulegt um þessar mundir. Mörg eru undir forsjá ríkisbanka eða kröfuhafa þrotabúa bankanna. Fyrir önnur er alger óvissa um framtíð reksturs og eignarhalds því ekki hefur verið tekið á þeirra málum. Verðmæti og störf eru í húfi og það er þjóðarhagur að endurskipulagning á eignarhaldi gangi sem hraðast fyrir sig.

18.3.2010

Morgunveršarfundur: Er Ķsland opiš fyrir fjįrfestingu - Frį oršum til athafna

Į miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

18.3.2010

Fjįrfesting ķ skjóli gjaldeyrishafta

Į miðvikudag stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Málefnaleg umræða um gjaldeyrishöft er einkar mikilvæg á þessum tímapunkti, en fjárfesting er nauðsynleg í endurbyggingu hagkerfisins. Mikilvægt er að við búum vel að því umhverfi og það hvetji til fjárfestinga hvort sem um er að ræða umhverfi fyrir innlenda eða erlenda fjárfesta.

17.3.2010

Morgunveršarfundur: Er Ķsland opiš fyrir fjįrfestingu - Frį oršum til athafna

Miðvikudaginn 24. mars n.k. stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi, en markmið fundarins er að stuðla að opinni umræðu meðal aðila viðskiptalífsins um fjárfestingaumhverfið hér á landi í ljósi gjaldeyrishaftanna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár, en eftir hrun íslensku krónunnar í kjölfar gjaldþrots viðskiptabankanna þriggja kom Seðlabankinn á gjaldeyrishöftum sem enn eru í gildi.

16.3.2010

Er Ķsland opiš fyrir fjįrfestingu?

Į miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

12.3.2010

Umsögn Višskiptarįšs um breytingar į lögum um fjįrmįlafyrirtęki

Viðskiptaráð hefur sent inn umsögn til allsherjarnefndar Alþingis varðandi nýlegt frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Sérstaka áherslu lagði ráðið á aukið gagnsæi og eftirlit með upplýsingum um eignarhald á fjármálafyrirtækjum. Einnig lagði ráðið til að lengra væri gengið með takmarkanir á heimildum banka til að eiga og reka fyrirtæki í óskyldum rekstri.

11.3.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Hagvöxtur eša hugmyndafręšilegir sigrar?

Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri hins opinbera þurfa stjórnvöld að auka skatttekjur og skera niður útgjöld. Sú stefna virðist hafa verið mörkuð af stjórnvöldum að jafna eigi skattgreiðslur af launatekjum og fjármagnstekjum. Liður í því hefur verið að hækka fjármagnstekjuskatt úr 10% í 18%, eða um 80% á síðustu 15 mánuðum.

10.3.2010

Greišsludreifing og frestur til greišsluuppgjörs į opinberum gjöldum

Ķ gær varð að lögum nýlegt frumvarp um breytingar á tollalögum, sem lúta að dreyfingu gjalddaga á vörugjaldi og virðisaukaskatti. Í janúar síðastliðnum vakti Viðskiptaráð athygli fjármálaráðuneytis á mikilvægi þess að að greiðsludreifingu af þessu tagi yrði komið á.

9.3.2010

Samstarf um veršmętasköpun og hagvöxt

Ķsland stendur á tímamótum um þessar mundir og sú efnahagslega umgjörð sem nú eru lögð drög að verður arfleifð næstu kynslóða. Til að tryggja framtíðarlífskjör á Íslandi hlýtur stefnumörkun stjórnmálaforystunnar að miða að hámörkun hagvaxtar og um leið hagsældar.

25.2.2010

Opinbert starf fyrir alla?

Ķ þeirri aðlögun sem fram undan er í ríkisfjármálum verður illa komist hjá því að flestir hópar samfélagsins verði fyrir einhverri rýrnun lífskjara. Til að lágmarka þann skaða er mikilvægt að leiðarljós aðlögunar verði hagsýni, raunsæi og heildarhagsmunir. Þar knýr á um að stjórnvöld geri sér grein fyrir hagrænum afleiðingum þess að ójafnvægi myndist á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins.

24.2.2010

Lįtum ekki deigan sķga

Yfirstandandi erfiðleikar eru til þess að læra af þeim. Það má þó ekki láta efnahagsörðugleika verða til þess að kreddur um ágæti efnhagslegrar einangrunar, haftastefnu í alþjóðaviðskiptum, verulegra opinberra afskipta eða tortryggni í samskiptum við útlendinga njóti hljómgrunns innan samfélagsins. Við viljum ekki að storminum fylgi algjört logn.

23.2.2010

Vel heppnaš Višskiptažing 2010

Į miðvikudaginn í síðustu viku sóttu um 400 manns hið árlega Viðskiptaþing viðskiptaráðs sem haldið var undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? Í ræðu formanns kom Tómas Már Sigurðsson m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri í viðkvæmri stöðu um þessar mundir og komandi lausnir muni því ákvarða samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins.

18.2.2010

Nż stjórn Višskiptarįšs Ķslands

Į aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í gær, 17. febrúar, voru kynnt úrslit kosningar til stjórnar ráðsins fyrir tímabilið 2010-2012. Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa á Íslandi var kjörinn formaður ráðsins, en hann hefur gegnt stöðu formanns frá október 2009.

17.2.2010

„Höfum seigluna til aš koma okkur ķ gegnum žessa lęgš“

Į Íslandi þarf að mynda pólitíska samstöðu sem fyrst og mikilvægt er að að markviss stefnumörkun á vegum stjórnvalda eigi sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í pallborði fulltrúa íslensks atvinnulífs á Viðskiptaþingi sem nú fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.

17.2.2010

Mennta- og menningarmįlarįšherra afhendir nįmsstyrki Višskiptarįšs

Į árlegu Viðskiptaþingi, sem nú fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands. Í meira en 90 ár hefur Viðskiptaráð Íslands tekið þátt í uppbyggingu íslensks menntakerfis með áherslu á hagnýta menntun á sviðum atvinnulífs.

17.2.2010

Komandi lausnir munu įkvarša samkeppnishęfni ķslenska hagkerfisins

Ķ ræðu sinni á Viðskiptaþingi kom Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri  í viðkvæmri stöðu um þessar mundir. Það hafi gengið illa að blása lífi í atvinnulífið að nýju eftir hrun bankakerfisins, en stöðugt fleiri fyrirtæki verða nú gjaldþrota og fjöldamörg störf hafa tapast.

17.2.2010

Stjórnvöld marki sér skżra stefnu

Žað er mikilvægt fyrir stjórnvöld að marka sér skýra stefnu til uppbyggingar efnahagslífsins, að mati Dr. Richard Vietor, sem nú heldur erindi á Viðskiptaþingi á Hilton Reykjavík Nordica. 

16.2.2010

Višskiptažing 2010: Į fjórša hundraš manns skrįšir

Ríflega 300 manns eru nú þegar skráðir á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem haldið verður á morgun á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf“. Skráningu á þingið lýkur í dag kl. 18:00.

16.2.2010

Višskiptažing 2010: Umręšuvettvangur višskiptalķfs

Į morgun, miðvikudag, fer fram hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands. Þingið er ein stærsta samkoma á ári hverju í íslensku viðskiptalífi og hefur það skapað sér mikilvægan sess í þjóðfélagslegri umræðu hér á landi. Yfirskrift Viðskiptaþings 2010 er: Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf?, en meginefni þingsins varðar  rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála.

15.2.2010

Višskiptažing 2010: Hlutverk stjórnvalda ķ uppbyggingu atvinnulķfs

Aðalræðumaður á Viðskiptaþingi 2010 er Dr. Richard Vietor prófessor við Harvard Business School, en hann mun í erindi sínu fjalla um uppbyggingu efnahagsáætlana sem miða að samkeppnishæfni þjóða. Með erindi sínu mun Vietor veita gestum þingsins góða mynd af leiðum til endurskipulagningar efnahagslífs og hlutverki stjórnvalda við uppbyggingu efnahagsáætlana.

14.2.2010

Višskiptažing 2010: Könnun į višhorfum forsvarsmanna fyrirtękja

Til umfjöllunar á Viðskiptaþingi 2010 verða meðal annars niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð þar sem leitað var eftir viðhorfum forsvarsmanna fyrirtækja til helstu áhrifaþátta rekstrarumhverfis fyrirtækja.  Meðal þess sem fjallað var um eru úrræði fjármálastofnana vegna rekstrarvanda fyrirtækja, afstaða til gjaldmiðils og evrópumála og breytingar á skattaumhverfi.

14.2.2010

Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?

Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Meginefni þingsins varðar  rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála. Nú þegar hafa ríflega 250 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.

11.2.2010

Aukin fjölbreytni ķ forystu ķslensks atvinnulķfs

Ķ gær var haldinn fundur undir yfirskriftinni Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu, en þar kom saman um 300 manna fjölbreyttur hópur karla og kvenna úr atvinnulífinu. Kynjahlutfallið var nokkuð jafnt, en um 43% gesta voru karlar og 57% konur. Þar voru kynntar niðurstöður úr rannsókn Creditinfo, en samkvæmt þeim eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall.

10.2.2010

Višskiptažing 2010: Skattabreytingar leiša til fękkunar starfsfólks hjį 45% fyrirtękja

45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% fyrirtækja í verslun að breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks og í iðnaði er talan um 47%. Þetta kemur fram í skýrslu til Viðskiptaþings, en nú þegar hafa yfir 200 þátttakendur skráð sig á þingið og er gert ráð fyrir húsfylli.

9.2.2010

Veršmętasköpun almenna vinnumarkašarins er forsenda opinberra starfa

Viðskiptaráð Íslands hefur undanfarnar vikur bent á óhagfellda þróun í útgjöldum ríkissjóðs og mikla fjölgun starfsmanna hins opinbera. Nýverið benti aðstoðarframkvæmdastjóri ráðsins, Frosti Ólafsson, á þá staðreynd að meginþorri þeirra sem misst hafa vinnuna frá hruni bankanna koma úr röðum hins almenna vinnumarkaðar á sama tíma og lítil aðlögun hefur átt sér stað hjá hinu opinbera.

9.2.2010

Višskiptažing 2010: Innsżn ķ įstand og įskoranir

Nú fer að líða að Viðskiptaþingi 2010 en það fer fram 17. febrúar næstkomandi. Á meðal dagskrárliða verða pallborðsumræður með fulltrúum íslensks atvinnulífs um málefni þingsins. Þátttakendurnir koma víða að og má því vænta þess að þeir gefi góða innsýn í ástand og áskoranir íslensks atvinnulífs í dag.

8.2.2010

Višskiptažing 2010: 40% ķ samkeppni viš hiš opinbera

40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja opinberar stofnanir eða fyrirtæki í opinberum rekstri vera í samkeppni við sitt fyrirtæki. Þá telja 51% fyrirtækja í þjónustu sig vera í samkeppni við hið opinbera, 49% fyrirtækja í verslun og 58% fyrirtækja í byggingar- eða verktakastarfsemi.

8.2.2010

Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?

Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Nú þegar hafa ríflega 250 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.

5.2.2010

Fjįrmįl rķkisins og leišir śt śr kreppunni

Mikið hefur verið fjallað um fjármál ríkisins á undanförnum vikum og mánuðum. Viðskiptaráð leggur áherslu á það að ríkisfjármálin eru lykilatriði í efnahagslegri endurreisn landsins, en með viðsnúningi í ríkisfjármálum má efla lánshæfismat ríkissjóðs og annarra stofnana hagkerfisins á nýjan leik.

5.2.2010

Umhverfisrįšherra tefur fyrir uppbyggingu

Nú í vikunni synjaði umhverfisráðherra staðfestingar skipulagsbreytingum varðandi Þjórsárvirkjanir og ljóst má vera að ákvörðunin mun tefja mikið áætlaða uppbyggingu á svæðinu. Með afstöðu sinni til stóriðjuframkvæmda stendur umhverfisráðherra með beinum hætti gegn endurreisn hagkerfisins með tilheyrandi búsifjum fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili.

3.2.2010

Hópstefnumót atvinnulķfs

Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu mun koma saman á Hilton Reykjavík Nordica þann 10. febrúar næstkomandi, en þá fer fram fundurinn „Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu“. Forsaga fundarins er sú að í maí 2009 skrifuðu Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök Atvinnulífsins undir samstarfssamning til að hvetja til og leggja áherslu á að konum í forystusveit íslensks atvinnulífs verði fjölgað.

3.2.2010

Dr. Richard Vietor į Višskiptažingi 2010

Ný styttist í hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs en það fer fram 17. febrúar næstkomandi. Að þessu sinni er yfirskrift þingsins Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? en meginefni þess varðar rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála. Aðalræðumaður þingsins í ár verður Dr. Richard Vietor prófessor við Harvard Business School.

29.1.2010

EORI: breytt fyrirkomulag tollgęslu innan ESB

Undanfarna mánuði hafa ákveðnar breytingar tekið gildi innan ESB sem varða inn- og útflutning vara til og frá aðildarríkjum sambandsins. Með þessum breytingum hefur verið komið á nýju kerfi innan sambandsins til að tryggja öryggi tollgæslu. Hið nýja kerfi er iðulega nefnt EORI (Economic Operators Registration and Identification System) og felur m.a. í sér að frekari kröfur eru gerðar á upplýsingaskyldu.

29.1.2010

Fyrsti samrįšsfundur hagsmunasamtaka atvinnulķfs

Samráðsfundur allra helstu hagsmunasamtaka atvinnulífs var haldinn þann 26. janúar s.l. en til fundarins var boðað af formönnum Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífs. Tilefni fundarins var að ræða þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku atvinnulíf og samfélaginu í heild, helstu áskoranir mismunandi atvinnugreina, almenna stöðu efnahagsmála og samstarf stjórnvalda og atvinnulífs þessu til úrbóta.

27.1.2010

Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?

Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Nú þegar hafa yfir 200 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.

25.1.2010

Višskiptažing 2010: Skrįning hafin

Skráning er nú hafin á Viðskiptaþing 2010, sem haldið verður miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi og ber yfirskriftina Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Skráning fer fram hér.

25.1.2010

Uppfęrš skżrsla į ensku um stöšu mįla

Nú hefur skýrsla Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Iceland Economic Situation: Status report, verið uppfærð.  Skýrslan sem kom fyrst út í október 2008 er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.

22.1.2010

Félögum Višskiptarįšs fjölgar

Enn bætist í hóp þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem eru félagar í Viðskiptaráði Íslands. Ráðið hefur frá stofnun þess árið 1917 barist fyrir hagfelldu rekstrarumhverfi íslensks atvinnulífs og er því ljóst að nú, 93 árum síðar, sjá fyrirtæki sér enn hag í hagsmunagæslu ráðsins. Viðskiptaráð berst fyrir hagsmunum aðildarfélaga, jafnt beinum sem óbeinum og starfar sem málsvari viðskiptalífsins gagnvart stjórnvöldum.

22.1.2010

Hagsmunamįl fyrirtękja ķ forgrunni

Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda verði sem fyrst komið á fyrir árið 2010.

19.1.2010

Hagsmunir heildarinnar rįši för

Žað má sjá bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað frá hruni bankanna. Meðal þeirra neikvæðu er sundurlyndi, hnútukast og skotgrafahernaður sem hefur einkennt umræðuna frá októbermánuði 2008. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greininni „Góð ráð dýr“ eftir Finn Oddsson framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs sem birtist í Fréttablaðinu í gær.

14.1.2010

Nż skošun Višskiptarįšs: Var skattkerfiš vandamįl?

Nú um áramótin komu til framkvæmda viðamestu breytingar sem hafa átt sér stað á íslensku skattkerfi um áratugaskeið. Tekinn var upp þrepaskipt skattlagning á launatekjur, eignaskattur var tekinn upp á nýjan leik, auknir skattar hafa verið lagðir á atvinnufyrirtæki í formi stórhækkaðs tryggingargjalds, nýrra orku- og umhverfisskatta og skattur á fjármagnstekjur hefur nánast verið tvöfaldaður.

12.1.2010

Skattadagur 2010: Nóg komiš af skattahękkunum

Uppselt var á árlegan skattadag Deloitte sem haldinn var í morgun á Grand Hótel í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands o.fl. Í máli fjármálaráðherra, sem setti skattadaginn, kom m.a. fram að framundan væru áframhaldandi breytingar á skattkerfinu þrátt fyrir að mat hagfræðinga væri að halda ætti sköttum óbreyttum til að stuðla að auknum hagvexti.

12.1.2010

Upplżsingaskjal į ensku vegna Icesave

Ķ kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja staðfestingu á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum, hefur átt sér stað talsverð umfjöllun um málið á erlendri grundu. Í ljósi þess að ekki eru allar upplýsingar sem þar birtast mjög skýrar auk þess að vera byggðar á röngum grunni í ýmsum tilfellum taldi Viðskiptaráð rétt að taka saman einblöðung um ferli og stöðu málsins á ensku.

12.1.2010

Nżjar ašferšir viš lausn Icesave-deilunnar

Ķ gær birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu grein sem skrifuð er af Tómasi Má Sigurðssyni formanni Viðskiptaráðs Íslands, Vilmundi Jósefssyni formanni Samtaka atvinnulífsins og Helga Magnússyni formanni Samtaka iðnaðarins.

12.1.2010

Efling į starfsemi Višskiptarįšs

Ķ ljósi þess að atvinnulíf þarf nú, frekar en nokkru sinni áður, á öflugum málsvara að halda hefur stjórn Viðskiptaráð ákveðið að efla starfsemi ráðsins með ráðningu þriggja nýrra starfsmanna. Þeir hófu störf um miðjan desembermánuð og munu vafalítið reynast gagnleg viðbót við þann hóp sem þegar starfar hjá ráðinu.

11.1.2010

Skattadagur 2010

Įrlegur Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins verður haldinn 12. janúar næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík.

Póstlisti VĶ
Ašild aš Višskiptarįši
Višskiptarįš į FB
Sękja um ATA skķrteini

Slóšin žķn:

Um VĶ » Fréttir

Flżtileišir

English flag

Mynd


Stjórnborš

Minna letur Stęrra letur Hamur fyrir sjónskerta