Fréttir
29.1.2010
EORI: breytt fyrirkomulag tollgęslu innan ESB
Undanfarna mánuði hafa ákveðnar breytingar tekið gildi innan ESB sem varða inn- og útflutning vara til og frá aðildarríkjum sambandsins. Með þessum breytingum hefur verið komið á nýju kerfi innan sambandsins til að tryggja öryggi tollgæslu. Hið nýja kerfi er iðulega nefnt EORI (Economic Operators Registration and Identification System) og felur m.a. í sér að frekari kröfur eru gerðar á upplýsingaskyldu.
29.1.2010
Fyrsti samrįšsfundur hagsmunasamtaka atvinnulķfs
Samráðsfundur allra helstu hagsmunasamtaka atvinnulífs var haldinn þann 26. janúar s.l. en til fundarins var boðað af formönnum Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífs. Tilefni fundarins var að ræða þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku atvinnulíf og samfélaginu í heild, helstu áskoranir mismunandi atvinnugreina, almenna stöðu efnahagsmála og samstarf stjórnvalda og atvinnulífs þessu til úrbóta.
27.1.2010
Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?
Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Nú þegar hafa yfir 200 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
25.1.2010
Višskiptažing 2010: Skrįning hafin
Skráning er nú hafin á Viðskiptaþing 2010, sem haldið verður miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi og ber yfirskriftina Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Skráning fer fram hér.
25.1.2010
Uppfęrš skżrsla į ensku um stöšu mįla
Nú hefur skýrsla Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Iceland Economic Situation: Status report, verið uppfærð. Skýrslan sem kom fyrst út í október 2008 er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.
22.1.2010
Félögum Višskiptarįšs fjölgar
Enn bætist í hóp þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem eru félagar í Viðskiptaráði Íslands. Ráðið hefur frá stofnun þess árið 1917 barist fyrir hagfelldu rekstrarumhverfi íslensks atvinnulífs og er því ljóst að nú, 93 árum síðar, sjá fyrirtæki sér enn hag í hagsmunagæslu ráðsins. Viðskiptaráð berst fyrir hagsmunum aðildarfélaga, jafnt beinum sem óbeinum og starfar sem málsvari viðskiptalífsins gagnvart stjórnvöldum.
22.1.2010
Hagsmunamįl fyrirtękja ķ forgrunni
Viðskiptaráð hefur undanfarið unnið að ýmsum hagsmunamálum íslensks atvinnulífs. Á meðal verkefna má nefna formlega beiðni til fjármálaráðuneytisins þess efnis að greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda verði sem fyrst komið á fyrir árið 2010.
19.1.2010
Hagsmunir heildarinnar rįši för
Žað má sjá bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað frá hruni bankanna. Meðal þeirra neikvæðu er sundurlyndi, hnútukast og skotgrafahernaður sem hefur einkennt umræðuna frá októbermánuði 2008. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greininni „Góð ráð dýr“ eftir Finn Oddsson framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs sem birtist í Fréttablaðinu í gær.
14.1.2010
Nż skošun Višskiptarįšs: Var skattkerfiš vandamįl?
Nú um áramótin komu til framkvæmda viðamestu breytingar sem hafa átt sér stað á íslensku skattkerfi um áratugaskeið. Tekinn var upp þrepaskipt skattlagning á launatekjur, eignaskattur var tekinn upp á nýjan leik, auknir skattar hafa verið lagðir á atvinnufyrirtæki í formi stórhækkaðs tryggingargjalds, nýrra orku- og umhverfisskatta og skattur á fjármagnstekjur hefur nánast verið tvöfaldaður.
12.1.2010
Skattadagur 2010: Nóg komiš af skattahękkunum
Uppselt var á árlegan skattadag Deloitte sem haldinn var í morgun á Grand Hótel í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands o.fl. Í máli fjármálaráðherra, sem setti skattadaginn, kom m.a. fram að framundan væru áframhaldandi breytingar á skattkerfinu þrátt fyrir að mat hagfræðinga væri að halda ætti sköttum óbreyttum til að stuðla að auknum hagvexti.
12.1.2010
Upplżsingaskjal į ensku vegna Icesave
Ķ kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja staðfestingu á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum, hefur átt sér stað talsverð umfjöllun um málið á erlendri grundu. Í ljósi þess að ekki eru allar upplýsingar sem þar birtast mjög skýrar auk þess að vera byggðar á röngum grunni í ýmsum tilfellum taldi Viðskiptaráð rétt að taka saman einblöðung um ferli og stöðu málsins á ensku.
12.1.2010
Nżjar ašferšir viš lausn Icesave-deilunnar
Ķ gær birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu grein sem skrifuð er af Tómasi Má Sigurðssyni formanni Viðskiptaráðs Íslands, Vilmundi Jósefssyni formanni Samtaka atvinnulífsins og Helga Magnússyni formanni Samtaka iðnaðarins.
12.1.2010
Efling į starfsemi Višskiptarįšs
Ķ ljósi þess að atvinnulíf þarf nú, frekar en nokkru sinni áður, á öflugum málsvara að halda hefur stjórn Viðskiptaráð ákveðið að efla starfsemi ráðsins með ráðningu þriggja nýrra starfsmanna. Þeir hófu störf um miðjan desembermánuð og munu vafalítið reynast gagnleg viðbót við þann hóp sem þegar starfar hjá ráðinu.
11.1.2010
Skattadagur 2010
Įrlegur Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins verður haldinn 12. janúar næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík.







