Beint į leišarkerfi vefsins

Fréttir

25.2.2010

Opinbert starf fyrir alla?

Ķ þeirri aðlögun sem fram undan er í ríkisfjármálum verður illa komist hjá því að flestir hópar samfélagsins verði fyrir einhverri rýrnun lífskjara. Til að lágmarka þann skaða er mikilvægt að leiðarljós aðlögunar verði hagsýni, raunsæi og heildarhagsmunir. Þar knýr á um að stjórnvöld geri sér grein fyrir hagrænum afleiðingum þess að ójafnvægi myndist á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins.

24.2.2010

Lįtum ekki deigan sķga

Yfirstandandi erfiðleikar eru til þess að læra af þeim. Það má þó ekki láta efnahagsörðugleika verða til þess að kreddur um ágæti efnhagslegrar einangrunar, haftastefnu í alþjóðaviðskiptum, verulegra opinberra afskipta eða tortryggni í samskiptum við útlendinga njóti hljómgrunns innan samfélagsins. Við viljum ekki að storminum fylgi algjört logn.

23.2.2010

Vel heppnaš Višskiptažing 2010

Į miðvikudaginn í síðustu viku sóttu um 400 manns hið árlega Viðskiptaþing viðskiptaráðs sem haldið var undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? Í ræðu formanns kom Tómas Már Sigurðsson m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri í viðkvæmri stöðu um þessar mundir og komandi lausnir muni því ákvarða samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins.

18.2.2010

Nż stjórn Višskiptarįšs Ķslands

Į aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í gær, 17. febrúar, voru kynnt úrslit kosningar til stjórnar ráðsins fyrir tímabilið 2010-2012. Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa á Íslandi var kjörinn formaður ráðsins, en hann hefur gegnt stöðu formanns frá október 2009.

17.2.2010

„Höfum seigluna til aš koma okkur ķ gegnum žessa lęgš“

Į Íslandi þarf að mynda pólitíska samstöðu sem fyrst og mikilvægt er að að markviss stefnumörkun á vegum stjórnvalda eigi sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í pallborði fulltrúa íslensks atvinnulífs á Viðskiptaþingi sem nú fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.

17.2.2010

Mennta- og menningarmįlarįšherra afhendir nįmsstyrki Višskiptarįšs

Į árlegu Viðskiptaþingi, sem nú fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands. Í meira en 90 ár hefur Viðskiptaráð Íslands tekið þátt í uppbyggingu íslensks menntakerfis með áherslu á hagnýta menntun á sviðum atvinnulífs.

17.2.2010

Komandi lausnir munu įkvarša samkeppnishęfni ķslenska hagkerfisins

Ķ ræðu sinni á Viðskiptaþingi kom Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, m.a. inn á það að íslenskt atvinnulíf væri  í viðkvæmri stöðu um þessar mundir. Það hafi gengið illa að blása lífi í atvinnulífið að nýju eftir hrun bankakerfisins, en stöðugt fleiri fyrirtæki verða nú gjaldþrota og fjöldamörg störf hafa tapast.

17.2.2010

Stjórnvöld marki sér skżra stefnu

Žað er mikilvægt fyrir stjórnvöld að marka sér skýra stefnu til uppbyggingar efnahagslífsins, að mati Dr. Richard Vietor, sem nú heldur erindi á Viðskiptaþingi á Hilton Reykjavík Nordica. 

16.2.2010

Višskiptažing 2010: Į fjórša hundraš manns skrįšir

Ríflega 300 manns eru nú þegar skráðir á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem haldið verður á morgun á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf“. Skráningu á þingið lýkur í dag kl. 18:00.

16.2.2010

Višskiptažing 2010: Umręšuvettvangur višskiptalķfs

Į morgun, miðvikudag, fer fram hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands. Þingið er ein stærsta samkoma á ári hverju í íslensku viðskiptalífi og hefur það skapað sér mikilvægan sess í þjóðfélagslegri umræðu hér á landi. Yfirskrift Viðskiptaþings 2010 er: Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf?, en meginefni þingsins varðar  rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála.

15.2.2010

Višskiptažing 2010: Hlutverk stjórnvalda ķ uppbyggingu atvinnulķfs

Aðalræðumaður á Viðskiptaþingi 2010 er Dr. Richard Vietor prófessor við Harvard Business School, en hann mun í erindi sínu fjalla um uppbyggingu efnahagsáætlana sem miða að samkeppnishæfni þjóða. Með erindi sínu mun Vietor veita gestum þingsins góða mynd af leiðum til endurskipulagningar efnahagslífs og hlutverki stjórnvalda við uppbyggingu efnahagsáætlana.

14.2.2010

Višskiptažing 2010: Könnun į višhorfum forsvarsmanna fyrirtękja

Til umfjöllunar á Viðskiptaþingi 2010 verða meðal annars niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð þar sem leitað var eftir viðhorfum forsvarsmanna fyrirtækja til helstu áhrifaþátta rekstrarumhverfis fyrirtækja.  Meðal þess sem fjallað var um eru úrræði fjármálastofnana vegna rekstrarvanda fyrirtækja, afstaða til gjaldmiðils og evrópumála og breytingar á skattaumhverfi.

14.2.2010

Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?

Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Meginefni þingsins varðar  rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála. Nú þegar hafa ríflega 250 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.

11.2.2010

Aukin fjölbreytni ķ forystu ķslensks atvinnulķfs

Ķ gær var haldinn fundur undir yfirskriftinni Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu, en þar kom saman um 300 manna fjölbreyttur hópur karla og kvenna úr atvinnulífinu. Kynjahlutfallið var nokkuð jafnt, en um 43% gesta voru karlar og 57% konur. Þar voru kynntar niðurstöður úr rannsókn Creditinfo, en samkvæmt þeim eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall.

10.2.2010

Višskiptažing 2010: Skattabreytingar leiša til fękkunar starfsfólks hjį 45% fyrirtękja

45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% fyrirtækja í verslun að breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks og í iðnaði er talan um 47%. Þetta kemur fram í skýrslu til Viðskiptaþings, en nú þegar hafa yfir 200 þátttakendur skráð sig á þingið og er gert ráð fyrir húsfylli.

9.2.2010

Veršmętasköpun almenna vinnumarkašarins er forsenda opinberra starfa

Viðskiptaráð Íslands hefur undanfarnar vikur bent á óhagfellda þróun í útgjöldum ríkissjóðs og mikla fjölgun starfsmanna hins opinbera. Nýverið benti aðstoðarframkvæmdastjóri ráðsins, Frosti Ólafsson, á þá staðreynd að meginþorri þeirra sem misst hafa vinnuna frá hruni bankanna koma úr röðum hins almenna vinnumarkaðar á sama tíma og lítil aðlögun hefur átt sér stað hjá hinu opinbera.

9.2.2010

Višskiptažing 2010: Innsżn ķ įstand og įskoranir

Nú fer að líða að Viðskiptaþingi 2010 en það fer fram 17. febrúar næstkomandi. Á meðal dagskrárliða verða pallborðsumræður með fulltrúum íslensks atvinnulífs um málefni þingsins. Þátttakendurnir koma víða að og má því vænta þess að þeir gefi góða innsýn í ástand og áskoranir íslensks atvinnulífs í dag.

8.2.2010

Višskiptažing 2010: 40% ķ samkeppni viš hiš opinbera

40% forsvarsmanna fyrirtækja í íslensku atvinnulífi telja opinberar stofnanir eða fyrirtæki í opinberum rekstri vera í samkeppni við sitt fyrirtæki. Þá telja 51% fyrirtækja í þjónustu sig vera í samkeppni við hið opinbera, 49% fyrirtækja í verslun og 58% fyrirtækja í byggingar- eða verktakastarfsemi.

8.2.2010

Višskiptažing 2010: Er framtķš fyrir ķslenskt atvinnulķf?

Miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi verður hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs haldið á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Nú þegar hafa ríflega 250 þátttakendur skráð sig á þingið, en gert er ráð fyrir húsfylli og hvetjum við því áhugasama til að skrá sig sem fyrst.

5.2.2010

Fjįrmįl rķkisins og leišir śt śr kreppunni

Mikið hefur verið fjallað um fjármál ríkisins á undanförnum vikum og mánuðum. Viðskiptaráð leggur áherslu á það að ríkisfjármálin eru lykilatriði í efnahagslegri endurreisn landsins, en með viðsnúningi í ríkisfjármálum má efla lánshæfismat ríkissjóðs og annarra stofnana hagkerfisins á nýjan leik.

5.2.2010

Umhverfisrįšherra tefur fyrir uppbyggingu

Nú í vikunni synjaði umhverfisráðherra staðfestingar skipulagsbreytingum varðandi Þjórsárvirkjanir og ljóst má vera að ákvörðunin mun tefja mikið áætlaða uppbyggingu á svæðinu. Með afstöðu sinni til stóriðjuframkvæmda stendur umhverfisráðherra með beinum hætti gegn endurreisn hagkerfisins með tilheyrandi búsifjum fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili.

3.2.2010

Hópstefnumót atvinnulķfs

Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu mun koma saman á Hilton Reykjavík Nordica þann 10. febrúar næstkomandi, en þá fer fram fundurinn „Virkjum karla og konur - fjölbreytni í forystu“. Forsaga fundarins er sú að í maí 2009 skrifuðu Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök Atvinnulífsins undir samstarfssamning til að hvetja til og leggja áherslu á að konum í forystusveit íslensks atvinnulífs verði fjölgað.

3.2.2010

Dr. Richard Vietor į Višskiptažingi 2010

Ný styttist í hið árlega Viðskiptaþing Viðskiptaráðs en það fer fram 17. febrúar næstkomandi. Að þessu sinni er yfirskrift þingsins Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? en meginefni þess varðar rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs ásamt sjálfbærni ríkisfjármála. Aðalræðumaður þingsins í ár verður Dr. Richard Vietor prófessor við Harvard Business School.

Póstlisti VĶ
Ašild aš Višskiptarįši
Višskiptarįš į FB
Sękja um ATA skķrteini

Slóšin žķn:

Um VĶ » Fréttir

Flżtileišir

English flag

Mynd


Stjórnborš

Minna letur Stęrra letur Hamur fyrir sjónskerta