Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

25.3.2010

Skapa þarf tækifæri til fjárfestinga

Á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs, Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna, sem fram fór í gær var m.a. rætt um gjaldeyrishöftin, vexti Seðlabankans og mikilvægi þess að stjórnvöld móti hér stefnu til framtíðar. Áhugaverðar umræður sköpuðust meðal þátttakenda í pallborði og er hér farið yfir það helsta sem fram kom þar.

24.3.2010

Opin umræða um fjárfestingu og gjaldeyrishöft

Rúmlega 90 manns sóttu morgunverðarfund Viðskiptaráðs um fjárfestingaumhverfið hér á landi sem fram fór í morgun. Í máli Ragnars Guðmundssonar, forstjóra Norðuráls, kom fram að þrátt fyrir allt væri hér margt sem stuðli að jákvæðu fjárfestingaumhverfi. Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, talaði um að mikilvægt væri að taka fyrstu skrefin til afnáms haftanna sem fyrst.

23.3.2010

Fjárfestingaumhverfið á Íslandi: Erum við á réttri leið?

Á morgun, miðvikudag, stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi um fjárfestingaumhverfið hér á landi. Þar mun Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar, meðal annarra, flytja erindið Fjárfestingaumhverfið á Íslandi - Erum við á réttri leið?

23.3.2010

Höftin, ríkisfjármál og efnahagsbatinn

Viðskiptaráð Íslands stendur fyrir morgunverðarfundi á morgun, miðvikudag, en meðal framsögumanna er Arnór Sighvatsson aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands. Erindi hans ber heitið Höftin, ríkisfjármál og efnahagsbatinn, en í því mun Arnór fjalla um samspil þessara þriggja þátta og áhrif þeirra á aðgengi Íslands að lánsfjármagni.

22.3.2010

Morgunverðarfundur: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu?

Á miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

19.3.2010

Hagsmunir hverra?

Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum er óvenjulegt um þessar mundir. Mörg eru undir forsjá ríkisbanka eða kröfuhafa þrotabúa bankanna. Fyrir önnur er alger óvissa um framtíð reksturs og eignarhalds því ekki hefur verið tekið á þeirra málum. Verðmæti og störf eru í húfi og það er þjóðarhagur að endurskipulagning á eignarhaldi gangi sem hraðast fyrir sig.

18.3.2010

Morgunverðarfundur: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna

Á miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

18.3.2010

Fjárfesting í skjóli gjaldeyrishafta

Á miðvikudag stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Málefnaleg umræða um gjaldeyrishöft er einkar mikilvæg á þessum tímapunkti, en fjárfesting er nauðsynleg í endurbyggingu hagkerfisins. Mikilvægt er að við búum vel að því umhverfi og það hvetji til fjárfestinga hvort sem um er að ræða umhverfi fyrir innlenda eða erlenda fjárfesta.

17.3.2010

Morgunverðarfundur: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna

Miðvikudaginn 24. mars n.k. stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi, en markmið fundarins er að stuðla að opinni umræðu meðal aðila viðskiptalífsins um fjárfestingaumhverfið hér á landi í ljósi gjaldeyrishaftanna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár, en eftir hrun íslensku krónunnar í kjölfar gjaldþrots viðskiptabankanna þriggja kom Seðlabankinn á gjaldeyrishöftum sem enn eru í gildi.

16.3.2010

Er Ísland opið fyrir fjárfestingu?

Á miðvikudaginn (24. mars) stendur Viðskiptaráð fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár og spila gjaldeyrishöft þar stórt hlutverk. Því skiptir miklu að höftin séu í sífelldri endurskoðun og að um þau sé uppi upplýst umræða.

12.3.2010

Umsögn Viðskiptaráðs um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki

Viðskiptaráð hefur sent inn umsögn til allsherjarnefndar Alþingis varðandi nýlegt frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Sérstaka áherslu lagði ráðið á aukið gagnsæi og eftirlit með upplýsingum um eignarhald á fjármálafyrirtækjum. Einnig lagði ráðið til að lengra væri gengið með takmarkanir á heimildum banka til að eiga og reka fyrirtæki í óskyldum rekstri.

11.3.2010

Ný skoðun Viðskiptaráðs: Hagvöxtur eða hugmyndafræðilegir sigrar?

Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri hins opinbera þurfa stjórnvöld að auka skatttekjur og skera niður útgjöld. Sú stefna virðist hafa verið mörkuð af stjórnvöldum að jafna eigi skattgreiðslur af launatekjum og fjármagnstekjum. Liður í því hefur verið að hækka fjármagnstekjuskatt úr 10% í 18%, eða um 80% á síðustu 15 mánuðum.

10.3.2010

Greiðsludreifing og frestur til greiðsluuppgjörs á opinberum gjöldum

Í gær varð að lögum nýlegt frumvarp um breytingar á tollalögum, sem lúta að dreyfingu gjalddaga á vörugjaldi og virðisaukaskatti. Í janúar síðastliðnum vakti Viðskiptaráð athygli fjármálaráðuneytis á mikilvægi þess að að greiðsludreifingu af þessu tagi yrði komið á.

9.3.2010

Samstarf um verðmætasköpun og hagvöxt

Ísland stendur á tímamótum um þessar mundir og sú efnahagslega umgjörð sem nú eru lögð drög að verður arfleifð næstu kynslóða. Til að tryggja framtíðarlífskjör á Íslandi hlýtur stefnumörkun stjórnmálaforystunnar að miða að hámörkun hagvaxtar og um leið hagsældar.

Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta