Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.5.2010

Skattahækkanir á leiðarenda

Í umræðunni að undanförnu um nauðsynlega hagræðingu í opinberum fjármálum hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar látið ummæli falla í þá veru að til standi að auka skatta á atvinnulífið enn frekar og eru þar nefndar tölur upp á ríflega tug milljarð. Viðskiptaráð vill í því samhengi benda á að megin þungi í aðgerðum stjórnvalda til að ná jöfnuði í ríkisfjármálum hefur hingað til falist í skattahækkunum.

28.5.2010

Bæta þarf stjórnarhætti til frambúðar

Nú í vikunni stóðu Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Kauphöllin og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir hádegisverðarráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja hér á landi. Þátttaka var góð, en um 100 gestir sóttu ráðstefnuna sem haldin var undir yfirskriftinni Getum gert miklu betur! Á ráðstefnunni var m.a. fjallað um hlutverk leiðbeininga um stjórnarhætti og mikilvægi þess að fyrirtæki fylgdu þeim eftir.

26.5.2010

Góðir stjórnarhættir skipta máli

Á ráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja, Getum gert miklu betur!, sem haldin var í gær á vegum Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins, Kauphallarinnar og rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti var m.a. fjallað um áhrif góðra stjórnarhátta á rekstur fyrirtækja. Hátt í 100 manns sóttu ráðstefnuna, en þar tóku til máls Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, Chris Pierce, forstjóri Global Governance Service í Bretlandi og Páll Harðarsonar forstöðumaður rekstrarsviðs Kauphallar Íslands.

23.5.2010

Getum gert miklu betur! - Ráðstefna um stjórnarhætti fyrirtækja

Þriðjudaginn 25. maí næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX á Íslandi og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti hérlendis. Með fundinum er ætlunin að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en VÍ, SA og Kauphöllin gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.

21.5.2010

Samkeppnishæfni: Sterkir innviðir þrátt fyrir efnahagsáföll

Samkvæmt skýrslu IMD-viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni hagkerfa, er Ísland í þrítugasta  sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims. Singapúr, Hong Kong og Bandaríkin eru í þremur efstu sætunum, en afar lítill munur er á þjóðunum. 

14.5.2010

Sameining ráðuneyta: hagkvæm og táknræn tilhögun

Undanfarna daga hafa ríkisstjórnarflokkarnir rætt sín á milli um fyrirhugaða fækkun ráðuneyta, úr tólf í níu, í samræmi við umsamdar stjórnkerfisumbætur í samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Einkum hefur verið rætt um að sameina heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin í eitt velferðarráðuneyti og að atvinnuvegaráðuneyti verði stofnað utan um sjávarútvegs-, landbúnaðar og iðnaðarráðuneytin. Viðskiptaráð Íslands fagnar þessum fyrirætlunum stjórnvalda, enda eru kostir þeirra fjölmargir.

7.5.2010

Bæta þarf upplýsingagjöf atvinnulífsins

Viðskiptaráð hefur undanfarin misseri hvatt aðildarfélaga sína og önnur fyrirtæki til að afhenda ársreikninga innan lögbundinna tímaramma, en umtalsverð vanhöld hafa verið þar á undanfarin ár eins og vanskilalisti ársreikningaskrár ber með sér. Að baki þessum tilmælum ráðsins liggja tvær ástæður sem annars vegar lúta að beinum hagsmunum tiltekinna fyrirtækja og hins vegar að heildarhagsmunum atvinnulífs og samfélags.

6.5.2010

Jákvæð umræða um stöðu lífeyrismála

Undanfarnar vikur hefur mikil umræða átt sér stað um stöðu lífeyrismála á Íslandi vegna þeirrar skerðingar sem sjóðsfélagar almenna lífeyriskerfisins hafa þurft að taka á sig í kjölfar fjármálakreppunnar. Viðskiptaráð gaf í síðustu viku út skoðun þar sem farið er yfir stöðu lífeyrismála og varpað ljósi á það mikla ójafnræði sem þar ríkir.

6.5.2010

Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Nýverið uppfærði Viðskiptaráð skýrslu sína á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation: Status report. Skýrslan, sem kom fyrst út í október 2008, er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.

Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta