Fréttir
25.6.2010
Fyrirtækjaflótti framundan?
Nýlega bárust þær fréttir að samheitalyfjafyrirtækið Actavis leiti nú að hentugri staðsetningu fyrir höfuðstöðvar sínar. Erfitt er að skilja þessa yfirlýsingu með öðrum hætti en að líklegt megi teljast að höfuðstöðvar fyrirtækisins flytji af landi brott. Sú staðreynd að fyrirtæki þurfi að hefja þá leit gefur vísbendingar um að of margar brotalamir séu í rekstarumhverfi fyrirtækja hérlendis auk þess að vekja upp spurningar um hvort fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið.
24.6.2010
Skattstofnar að gefa eftir?
Nú þegar greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta þriðjung ársins liggur fyrir er ekki úr vegi að staldra við og meta þróun mála eftir upptöku hins nýja skattkerfis. Það sem einkennir uppgjörið einna helst við fyrstu yfirferð er að flestir skattstofnar eru að dragast saman. Má þar t.a.m. nefna tekjuskatt lögaðila, fjármagnstekjuskatt, eignaskatt, virðisaukaskatt af atvinnustarfsemi og vörugjöld af bensíni, olíu, áfengi og tóbaki.
16.6.2010
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs
Nú liggur fyrir greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins. Af uppgjörinu að ráða þá eru flestir skattstofnar leynt og ljóst að dragast saman. Má þar nefna t.a.m. tekjuskatt lögaðila, fjármagnstekjuskatt, eignaskatt og virðisaukaskatt af atvinnustarfsemi. Nokkrir þessara stofna t.a.m. tryggingargjald og virðisaukaskattur af vörum eru þó að skila ríkissjóði meiri tekjum en í fyrra svo einhverju muni.
14.6.2010
Ný skoðun Viðskiptaráðs: Ríkisfjármál - Samstaða um bætt vinnubrögð
Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist hverjum um eiginlega framkvæmd stefnunnar og þá einkum hvoru megin áherslan skuli frekar liggja. Viðskiptaráð hefur fyrir sitt leyti gagnrýnt að aðlögunin hafi farið um of fram með tekjuöflun og bent á aðrar leiðir að sama marki.
11.6.2010
Óljóst hlutverk samráðsnefndar
Í apríl s.l. tilnefndi fjármálaráðherra starfshóp sem ætlað var að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar og umbætur á skattkerfinu. Samhliða starfshópnum var sett á laggirnar samráðsnefnd sem hugsuð var sem vettvangur upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta fyrir starfshópinn. Þar áttu sæti ýmsir aðilar vinnumarkaðarins, en hópnum var ætlað að skila áfangaskýrslu til fjármálaráðherra fyrir 15. júlí n.k.
10.6.2010
Stuðningur við nýsköpun
Stuðningur við nýsköpunar- og frumkvöðlastarf er eitt af þeim málum sem Viðskiptaráð telur skipta verulegu máli við enduruppbyggingu atvinnulífs í landinu. Það á ekki einungis við um sprotafyrirtæki og frumkvöðla innan þeirra heldur einnig rannsóknar- og þróunarstarfsemi sem á sér stað innan rótgróinna fyrirtækja.
9.6.2010
Umbætur fyrir íslenskt viðskiptalíf
Um 90 manns úr breiðum hópi félaga Viðskiptaráðs sóttu vel heppnað Umbótaþing ráðsins sem fram fór á mánudag. Á þinginu komu fram fjöldi ábendinga um vandamál sem þarf að leysa og hugmyndir að úrbótum, sem þátttakendur færðu í sameiningu í fjölbreyttar tillögur að verkefnum fyrir viðskiptalífið.
4.6.2010
Fækkun ráðuneyta: vilji 75% landsmanna
Talsverð umræða hefur verið um fækkun ráðuneyta að undanförnu. Líkt og iðulega virðist sem tvær fylkingar hafi myndast um málið, önnur með og hin á móti, en lítið hefur borið á heildstæðum rökum þessara fylkinga. Önnur þeirra virðist þó eiga talsverðan samhljóm með landsmönnum, en skv. nýlegum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup er það vilji þriggja fjórðu hluta landsmanna að ráðuneytum verði fækkað.
3.6.2010
Athafnir verða að fylgja orðum
Í síðustu viku stóðu Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Kauphöllin og rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir vel sóttri ráðstefnu um stjórnarhætti fyrirtækja. Í pallborðsumræðum var m.a. rætt um með hvaða hætti mætti koma að úrbótum í stjórnarháttum fyrirtækja hér á landi, en yfirskrift ráðstefnunnar var: Getum gert miklu betur!
2.6.2010
Getum gert miklu betur!
Viðmið um góða stjórnarhætti hafa með reglubundnum hætti verið í almennri umfjöllun fyrrihluta þessa áratugar. Ljóst má vera að útgáfa Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Kauphallarinnar á leiðbeiningum á því sviði hefur átt drjúgan þátt í því. Því miður er það hins vegar svo, þegar rýnt er til fortíðar, að umræðan náði ekki þeim árangri sem vonast var eftir. Almennar viðtökur við leiðbeiningunum ollu útgáfuaðilum þeirra og öðrum vonbrigðum.







